Alþýðublaðið - 07.07.1964, Qupperneq 9
3
Nefnd athugar breytingar
•mmmmmammmmmmmmmmm^—mmma^mmmmmmmmmmmammmm
á stjórn borgarinnar
•a gervi sjálft, — hver verður
(ii 11111111111M, ii 111'.11 iiiitn1111ii11timiiiiii■ iiii■ 111111
Á FUNDI borgarstjórnar á fimmtu
dagskvöld var gerð samþykkt um
stjórn Reykjavíkurborgar, en mál-
ið var til annarrar umræðu. Hin
nýja samþykkt felur í sér staðfest-
ingu á þeim hefðum, sem myndast
hafa, en hefur ekki í för með sér
neinar stórvægilegar breytingar.
Á fundinum var felld tillaga frá
öllum minnihlutaflokkunum um
að fjölga fulltrúum í borgarstjórn
úr 15 í 21.
í umræðunum um málið lagði
Óskar Hallgrímsson á það áherzlu
að líta beri á samþykktina, sem
bráðabirgðasamþykkt, en endur-
skoðun á stjórn á borgarinnar
yrði að fara fram hið fyrsta og var
samþykkt tillaga frá honum þess
efnis, að kjósa skuli 7 manna nefnd
til þess að athuga, hvort rétt sé að
gera breytingar á stjórn borgar-
innar.
Lagði Óskar á það áherzlu, að
borgarráð hefði ekki getað haft
það frumkvæði og eftirlit, sem ætl
azt var til, og stafaði það af hinu
mikla álagi, sem á það br lagt.
Yrði því að dreifa verkefnunum á
hagkvæmari hátt. Mætti t. d. gera
Gamla bíói
í KYÖLD kl. 8 verða sýndar í
Gamla bíói tvær fræðslukvikmynd
ir á vegum hinnar nýju leilar-
stöðvar Krabbameinsfélagsins.
Fyrri myndina, „Tíminn og tvær
konur“ fjallar um nauðsyn þess,
fyrir konur, að koma í tæka tíð
til Iæknis eða leitarstöðvar til
skoðunar svo frekar sé hægt að
fyrirbyggja krabbamein í Iegi.
Skýringar með þessari mynd eru
á ísl., fluttar af Þórarni Guðna-
syni lækni. Seinni myndin sýn-
ir leiðbeiningar fyrír konur um
sjálfsathugun á brjóstum. Jafn-
framt verður fræðsluriti um þetta
efni úthlutað.
Yfirlæknir leitarstöðvarinnar,
frú Alma Þórarinsson, flytur stutt
ávarp á undan sýningunni, sem
hefst stundvíslega kl. 8. Aðgang-
ur er ókeypis og cinungis fyrir
konur.
NÝ LJÓÐABÓK
NYLEGA kom út ný ljóðabók
eftir Ingólf Jónsson frá Prest-
bakka og nefnir hann hana Feykis
hólar. í bókinni eru 38 kvæði.
Ingólfur Jónsson hefur áður
sent frá sér tvær Ijóðabækur og
ennfremur barnabækur. Ljóðin i
þessari bók eru flest um landíð og
þjóðina, sem það byggir, ljúflega
kveðin og innilega.
Þetta er falleg bók í allstóru
broti.
það með því að fjölga borgarstjór-
um eða skipa borgarráð mönnum,
sem ekki hefðu önnur störf með
höndum og skiptu málefnunum á
milli sin.
GAGNFRÆÐASKÓLA Vesturbæj
ar var slitið í 36. sinn 1. júní s.I.
Óskar Magnússon skólastj. skýrði
stuttlega frá skólastarfi á liðuu
skólaári og úrslitum prófa. Inn-
ritaðir voru 211 nemendur í 9
deildum. í fyrsta sinn frá stofnun
skólans var enginn 1. bekkur starf
ræktur þar í vetur sem Ieið.
Fastir kennarar voru 14 auk
skólastjóra, en stundakennarar
voru fjórir. Undir gagnfræðapróf
gengu 69, og stóðust 66. Hæstu
einkunn á gagnfræðaprófi hlaut
Óli Már Aronssonar úr verknáms
deild, 8,52, en næsthæstur var
Ólafur Símonarson úr bóknáms-
deild með 8,21.
67 þreyttu unglingapróf, hæstu
einkunn hlaut Guðmundur Gríms-
son, 8,52. Á 3. bekkjarprófi var
hæstur í verknámsdeild Hólmgeir
Pálmason með 8,30, en í bóknáms
deild Jóhannes Rafn Kristjánsson,
7,95.
í landsprófsdeild varð að þessu
sinni hæstur á prófi Bjarni Gísla-
son, 8,88! Verðlaun voru veitt þeim
nemendum, er sköruðu fram úr í
námi, og einnig þeim nemendum,
er unnu að félagsstörfum og höfðu
á hendi trúnaðarstörf fyrir skól-
ann.
Biskupinn vísit-
Biskup íslands, herra Sigur-
björn Einarsson, vísiterar Stranda
prófastsdæmi og er áætlun hans
sem hér segir:
Þriðjudaginn 7. júlí kl. 2 Árnes.
Miðvikudaginn 8. júlí kl. 2
Kaldrananes.
Sama dag kl. 8.30 Ðrangsnes.
Fimmtudaginn 9. júlí kl. 2
Staður í Steingrímsfirði.
Sama dag kl. 8.30 Hólmavík.
Föstudaginn 10. júlí kl. 1
Kollof jarðarnes.
Sama dag kl. 5 Óspakseyri.
Laugardaginn 11. júlí kl. 2
Staður £ Hrútafirði.
Sunnudaginn 12. júlí kl. 2
Prestsbakki.
Þess er vænzt, al sóknarnefndir
og annað safnaðarfólk komi til
kirkju til viðtals við biskup. Sér-
staklega óskar biskup að fá ferm-
ingarbörn ársins og önnur ung-
menni sókngnna til viðtals.
Skólaslit í Gagn-
fræðaskóla Vest-
urbæjar
Fræðslumyndir
fyrir konur í
erar á Ströndum
Bótagreiðslur
almannatrygginga í Reykjavík
ÚTBORGUN ELLILÍFEVRrS hefst að þessu sinni
miðvikudaginn 8. þ. m. og útborgun ÖRORKULÍFEYRIS
hefst föstudaginn 10. þ. m.
«
Eins og áður er tilkynnt, eru skrifstofur vorar lokað-
ar á laugardögum mánuðina júní - september.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
Laxveiði
Enn er óráðstafað nokkrum veiðileyfum fyrir sumarið
1964 í Korpu (Úlfarsá) í Mosfellssveit. Veiðileyfin verða
til sölu hjá Albert Erlingssyni, Verzlunin Veiðimaðurinn,
Hafnarstræti 22, sem gefur allar nánari upplýsingar.
Áburðarverksmiðjan h.f.
Rafmagnstæknifræðingar
Rafmagnsverkfræðingar
Samband íslenzkra rafveiína og Ljóstæknifélag íslands
óska að ráða rafmagnsverkfræðing eða rafmagnstæknifræð-
ing til starfa. Umsóknir sendist Sambandi íslenzkra raf-
veitna, pósthólf 60, Reykjavík,. fj-rir 1 ágúst næstk.
Nánari upplýsingar í síma 18222.
Keflavík
Tilboð óskast í að byggja rennusteina meðfram mal-
bikuðum götum í Keflavík Nánari upplýsingar gefur
byggingarfulltrúinn. Sími 1553.
BÆJARSTJÓRINN.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir af
fólks- og vörubílahjólbörðum.
Veitum yður þjónustu alla daga, helga sem
virka, frá kl. 8,00 árd. til 23,00 síðd.
öryggi ofar öllu. — Góð bjólbarðaþjónusta
er öryggi á vegum úti.
HJÓLBARDAViÐGERÐIR
MÚLA v/Suðurlandsbraut. — Sími 32960.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. júlí 1964 j|>i