Alþýðublaðið - 07.07.1964, Síða 11
/
77 bandaríkjamerm
voru valdir í OL-liðið
EINS og við skýrðum frá í blað-
inu á sunnudag var háð fyrsta
úrtökumót Bandaríkjamanna í
frjálsum íþróttum fyrir Olympíu-
leikana í Tokyo í New York á
laugardag og sunnudag.
Að þessu móti loknu eru sigur-
vegararnir öruggir umJTokyoferð,
en annar og þriðji maður í hverri
grein fá tækifæri á móti í Los An-
geles í september. Það var aðeins
í stangarstökkinu, sem spádómar
brugðust, Fred Hansen var ekki
sigurvegari, heldur heimsmethaf-
inn fyrrverandi, John Pennel, sem
stökk 5.20 m.
Ýmsir af þekktustu frjálsíþrótta
mönnum Bandaríkjanna, sem flest
ir höfðu reiknað með sem Olymp-.
íuþátttakendum,- fá ekki tækifæri
í Los Angeles, þ. á m. stangar-
stökkvarinn John Helses, sem ekki
tókst að stökkva 4.65 m. að þessu
sinni, Adolph Plummer, heimsmet-
hafi Í440 yds hlaupi (44.9), Dave
Archibald, einn bezti 400 m. hlaup
ari heims, og Jim Dupree, sem
flestir höfðu reiknað með í Tokyo.
Úrtökunefndin samþykkti að Bob
Hayes, sem ekki gat keppt um
Iielgina skyldi fá að vera með í Los
Angeles, en hann er af flestum
talinn bezti spretthlaupari heims.
Hér kemur listi yfir þá, sem
sigruðu í New York og einnig þá,
sem fá annað tækifæri í sep-
tember:
100 m. Trenton Jackson, 10.1
sek. - Með í Los Angeles: Bob
Hayes, Jerry Ashworth, Sharlie
-Greep, Mel Pender, Bernie Rivers,
Darrell Newman og Dick Stebbins.
200 m.: Henry Carr, 20.2 sek.
Með í LA: Dick Stebbins, Paul
Drayton, John Moon.
400 m.: Ollan Cassel, 45.9 sek.
'Með í LA: Ulis Williams, Mike
Larrabee, Bob Tobler.
800 m.: Jerry Siebert. Með í
■LA: Norman Groth, Darnell Mit-
chell, Ran Smith, Barry Sugden.
1500 m.: Dyrol Burleson, 3:38.8
mín. Með í LA :Tom O’Hara, Jim
•Grelle, Jim Ryun, Archie San Ro-
mani, Bob Day.
5000 m. Bob Schul, 13:38.0
mín. Með í LA: Garry Lindgren,
WAWWWWWWWWWWV
Vestur Þjóðverji
setti evrópumet í
stangarstökki,
Leverkusen, 5. júlí,
(NTB - AFP)
í félagskeppni í Leverkusen í
dag setti Wolfgang Reinhardt
nýtt Evrópumet í stangar-
stökki, 5,11 m. Fyrst bætti
hann met Preussgers um 1
sm. stökk 5.03 m síðan var rá
in liækkuð í 5.11. m., sem
Reinhardt stökk einnig yfir.
Bill Dellinger. (Jim Beatty verð-
ur ekki með).
10.000 m.: Peter Mcarble
29:03.4 mín.
3000 m. hindrunarhlaup: Jeff
Fischback, 8:33.2 mín. Með í LA: |
Georga Young, Mike Leliner, Vic
Zwelak.
110 m. grind: Hayes Jones,
13,4 sek. Með í LA: Blaine Lind-
grén, Elias Gilbert, Willey Gerald
Cerulle.
400 m. grind: Jay Luck, 49.4
sek. Með í LA: Rex Cawley, Bill
Hardin, Chris Staffer.
Kúluvarp: Dallas Long, 20.02
m. Með í LA: P. O. Brien, Randy
Matson, Dave Davis og Gary Gub-
ner.
Kringlukast: A1 Oerter, 62.94
m. Með í LA: Jay Silvester, Dave
Weill. Rink Babka.
Sleggjukast: Harold Conolly,
69.03 m. Með í LA: A1 Hall, Ed
Burke, Bill McWilIiams.
Spjótkast: Jim Stevenson,
77.9 m. Með í LA: Frank Covelli,
Ed Stuart, Bob Bordone, Jan Si-
korsky.
Hástökk: John Thomas, 2.15
m. Með í LA: John Rambo, Ed
Carruthers, Otis Burrell.
Langstökk: Ralph Boston: 8.37
m. (í meðvindi). Með í LA: Darrel
Horn, Bill Miller, Charles Hays,
Gayle Hopkins.
Stangarstökk: John Pennel,
5.20 m. Með í LA: Fred Hansen,
Ron MorriS, Dave Tork.
Síffasta greinin var 4x400 m., það eru .Þórarinn Ragnarsson, KR
og Kjartan Guðjónsson, sem sjást.
Akurnesingar sigruðu
Þrótt auðveldlega 7:2
ÞRÓTTUR var grátt leikinn af Ak-
urnesingum í seinni umferð ís-
landsmótsins sl. sunnudagskvöld.
Beið þar geigvænlegan ósigur,
með 7 mörkuífi gegn aðeins tveim.
Þróttur býrjaði samt rétt laglega
og með talsverðum umsvifum. Sú
dýrð stóð í nákvæmlega 10 mínút-
ur og gaf fyrstu tvö mörk leiksins.
Atfylgi Þróttar og árangur
fyrstu mínútur, vakti verðskuld-
aða athygli og jafnvel vonir um
giftusamleg úrslit.
Það var Ingvar h. útherji, sem
skoraði fyrra markið á 5. mín.
Vanhugsuð viðbrögð og mistök í
Staðan í 1. deild
ÍA og Þróttar er þessi:
Akranes 7 5 0 2 21:13 19
Keflavík 5 3 2 0 12:6 8
KR 4 3 0 1 9:5 6
Valur 6 2 0 4 17:5 4
Fram 6 114 11:17 3
Þróttur 6 114 7:17 3
vörn ÍA átti þó meginþáttinn í
því að svona fór. Hinsvegar var
hitt markið, sem kom á 10. mín-
útunni, eða í lok „gullaldartíma-
bils” Þróttar í leiknum, mjög vel
gert, en það var skorað með skalla,
af Jens Karlssyni, innherja, úr
aukaspyrnu, sem Haukur tók prýði
lega.
Síðan snýst taflið við og Akur-
nesingar taka til óspiltra málanna.
: Sækja fast á með fylktu liði. Á-
rangur lætur heldur ekki lengi
standa á sér. Þegar, rúmri mínútu,
eftir síðara mark Þróttar, kemur
i þeirra fyrsta, af sjö. Eyleifur send
| ir hnitmiðaða sendingu fyrir Rík-
harð, sem afgreiðir knöttinn við-
I stöðulaust i netið. Þetta mark kom
úr ágætri sóknarlotu og vel sam-
ræmdri. Nokkrum mínútum síðar,
er það Ríkharður sem á sendingu
til Eyleifs, sém skýtur þegar. Gutt
ormur missir af boltanum, sem
hrekkur í stöng og úr frákastinu
fær hann höndlað hann. Þarna
munaði mjóu. Á 25. mín jafna Ak-
urnesingar með glæsilegri sókn og
sendingu Eyleyfs til Skúla, sem
viðstöðu laust rennir knettinum
inn, framhjá Guttormi. Aðeins
þrem mínútum seinna taka Akur-
nesingar forystuna, eftir auka-
spyrnu sem Sveinn Teitsson fram
kvæmdij með góðri loftsendingu,
inn að markinu, og Ríkharður
Framhald á síðu 4.
KR sterkast
(Framhald a£ 10. síðu).
Ólafur Guðmundsson, KR, 23,1
Skafti Þorgríms., ÍR, (úrv.) 23.7
Reynir Hjartarson, ÍBA, (úrv./24.0
Kjartan Guðjónsson, ÍR, 25.2
800 m. lilaup:
Halldór Guðbjörns. KR, 2:00.0 mín
Agnar Levý, KR, 2:00,3 mín.
Þórarinn Arnórs. ÍR, (úrv.) 2:02.6
Helgi Hólm, ÍR, 2:03.6
Vilhj. Björns. UMSE (úrv.) 2:08.1
3000 m. hlaup:
Kristl. Guðbj. KR, 8:47.6 mín.
Halldór Jóhannesson, KR, 8:56.2
Hafst. Sveins. HSK, (úrv.) 10:06.2
Guðm. Guðjóns. ÍR (úrv.) 10:57.8
4x400 m. boðhlaup:
Unglingasveit KR 3:30.3 mín.
Sveit ÍR 3:37.6 mín.
Stangarstökk:
Valbjörn Þorláksson, KR, 4.15 m.
Páll Eiríksson, KR, 3,65 m.
Valg. Sigurðs, ÍBA, (úrv.) 3.55 m.
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 3.15
Þrístökk:
Þorvaldur Benedikts. KR, 13.88 m.
Úlfar Teitsson, KR, 13.49 m.
Jón Þ. Ólafsson, ÍR (úrv.) 13.40
Ólafur Unnsteins. ÍR, (úrv.) 13.21
Eyleifur skorar með skalia
HEIMSMET í
LANGSTÖKKI
KV. 6,70 M.
Moskvu, 5. júlí - (NTB-AFP).
I TATJANA Tsjelkanova setti nýtt
[heimsmet í langstökki kvenna á
miklu alþjóðlegu frjálsíþróttamóti
á Lenin-leikvangi um helgina,
hún stökk 6.70 m. — 8 sm. betra
en gamla metið, sem hún átti sjálf.
Hinn gamalkunni pólski spjótkast-
ari Janusz Sidlo kastaði 85.03 m.
í 10 km. hlaupi sigraði Nikolay
Dutov á 28:59.6 mín. Mót þetta
var haldið til minningar um bræð
urna Znamenskij og alls tóku um
600 íþróttamenn og konur frá 15
löndum þátt í mótinu.
Af öðrum góðum afrekum má
nefna sleggjukast: Klim, Sovét,
66.58 m. (sjötti maður 65.19 m.)
400 m. grind: Anissimov, Sovét,
50,8 sek., 100 m. Figurola, Kúba,
10.2 sek. - 5000 m. Orientas, Sovét,
13:45,0, Wiggs, Englandi 13:45.6.
Spjótkast: 'ú
Björgvin Hólm, ÍR, (úrv.) 60.97 no„
Valbj. Þorláksson, KR, 59.85 m.
Kristján Stefáns. ÍR (úrv.) 57.75
Páll Eiríksson, KR, 57,54 m.
Kjarían Guðjónsson, ÍR kastaði
58,32 m. utan kepni.
Keppni fór fram í tveim auka-
greinum, 80 m. grindahlaupt
kvenna og 200 m. hlaupi sveina,
úrslit urðu: ’ (
80 m. grindahlaup kvenna:
Sigríður Sigurðardóttir, ÍR 13.8
Linda Ríkharðsdóttir, ÍR, 14.2 1
200 m. hlaup sveina.
Þórður Þórðarson, KR, 25.6 sek,
Jón Magnússon, KR, 27,2 sek.
Úrslit stigakeppni:
KR - Úrval 119:73.
KR - ÍR 121:69.
Patterson vann
Machen auÖveld-j
lega á stigum i
Stokkhólmi, 5. júlí
(NTB - TT)
Floyd Patterson, fyrrverandi
heimsmeistari í þungavigt
vann öruggan sigur yfir Ed-
die Machen á stigum liér í
Stokkhólmi í dag. Keppnin
var 12 lotur og hinn brezki
dómari, Teddy Waltham
dærndi Patterson sigur með
59 stigum gegn 49. Pattérson
kom miklum höggum á and-
stæðing sinn og margir töldn
furðulegt, að Machen skyldi
standa uppi. í 11. lotu hóf
\Machen örvæntingarfulla
sókn og reyndi að gera út um
keppnina, en án árangurs.
Líkurnar á því, að Patterson
fái möguleika á keppni um
heimsmeistaratitilinn hafa
aukizt að mun eftir þessa
viðureign.
Það voru um 35 þúsund á-
horfendur á Rásunda, er
keppnin fór fram. Búizt hafði
verið við söngvaranum
fræga Frank Sinatra, en
hann kom ekki og það vakti
mikla sorg meðal Ijósmynd-
ara, blaðamanna og kven-
þjóðarinnar!
wwmwwwwmwwwmi
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. júlí 1964