Alþýðublaðið - 16.07.1964, Side 1
*, A * V ***> •
HER sést Júffóslavinn Stevan
Majstorovic vera aS taka kvik
mynd fyrir júgóslavneska sjón
varpiS á StjórnarráSsblettin-
um. Hann er einn af miklum
fjölda sjónvarpsmanna, sem
gista ísland í sumar.
SJÖNVARPAÐ FYRIR
JÚGÓSLAVfU
OKSWD
44. árg. — Fimmtudagur 16. júlí 1964 — 158. tbl.
BARRY VERÐUR
FRAMBJÓÐANDI
San Francisco, 15. júlí.
(NTB-Reuter).
BARRY GOLDWATER, öldunga-
deildarþingmaSur, gat í dag gert
ráS fyrir hreinum sigri á tilnefn-
ingar-þingi repúblikana í San
Francisco. Eftir atkvæSagreiSsl-
urnar í grær um stefnuskrána var
ljóst, aS mik,ill meirihluti fulltrú-
anna stySur þau sjónarmlS, sem
Goldwater hefur látiS í Ijós, og
svo virSist sem sigurvissa öldunga
dcildarmannsins sé á rökum reist.
Hann verSur frambjóSandi flokks
síns í forsetakosningunum.
Sjálfur tilnefningarfundurinn
hófst séint í kvöld (kl. 21,30 eftir
ísl. tíma). Atkvæðagreiðslan átti
að fara fram milli kl. hálf fjögur
og hálf sex eftir íslenzkum tíma
á fimmtudagsmorgun.
, sem áður hlaut að ríkja
um stuðninginn við hinn öfgafulla
öldungadeildarmann frá Arizona,
hvarf með öllu í gær, þegar þing-
ið hafnaði með yfirgnæfandi meiri
hluta atkvæða tilraun Serantons
og fylgismanna hans til að breyta
stefnuskránni á þann veg, að sterk
SJONVARPSMENN ALDREI
FJÖLMENNARI HÉR EN NlJ
ar yrði tekið til orða um mann-
réttindamálið.
Atkvæðagreiðslan fór fram að
viðhöfðu nafnakalli og tiilaga
Scrantons og fylgismanna li&ns var
felld með 409 atkvæðum gegn 87.
Fjórtán blökkumenn, sem þingið
sitja, lýstu því yfir í dag, að þeir
mundu ganga af fundi í mctmæla
skyni við tilnefningu Goldwaters,
Framliald á síðu 13.
Nýjiistu fréttir:
BARRY GOLDWATER
ÞEGAR bla'ðið fór í prentun í
nótt voru allir enn sannfærðir um,
að Goldwater yrði valinn fram-
hióðandi repúblikana. í ræðu, sem
hann flutti á flokksþinginu í
kvöld kallaði hann Johnson mesta
svindlara og hrapp allra tíma og
kvað hann hafa verið gegn jafn-
rétti þar til í ár. Goldwater gerði
þar með mannréttindalögin að
kosningamáli. Hvort ræða þessi
hefur áhrif á möguleika hans til
framboðs var ekki vitað í nó'.t.
Vaðandi síld á
Selvogsbanka
Reykjavík, 15. júli. — GG.
MJÖG hefur aukizt sókn sjón-
varpsmanna til landsins í sumar
og munu aldrei hafa verið svo
margir starfsmenn erlendra sjón-
varpsstöðva á. ferð hér á landi á
einu sumri sem í sumar. Er það
SLYS Á HVAL-
FJARÐARSTRÖND
í DAG varð mjög liarður árekst
ur á þjóöveginum skammt frá
Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd.
Skullu þar saman bílarnir R
14831 og R 15513. Við árekstur-
inn" fékk kona í öðrum bilnum
heilahristing og skarst töluvert
mikið, að því er Páll Gíslason,
sjúkrahússlæknir á Akranesi,
tjáði blaðinu í kvöld, Auk þess
skarst eitt barn nokkuð og marð-
iSt.
ýmist, að menn koma einir og ]
sjá sjálfir bæði um kvikmyndun
og hljóðritun tals og annað, sem
til þarf, en sömuleiðis hafa verlð
og eru væntanlegir heilir flokkar
manna, sem taka upp sjónvarps-
efni, er flytja skal í heimalöndum
þeirra.
Skulu hér taldir nokkrir þess-
ara sjónvarpsmanna, sem blaðinu
er kunugt um. Frá belgíska sjón-
varpinu er hér maður að nafni
Hermans, sem tekur skólafilmu.
Hann er búinn að vera hér síðan
síðast í júní og mun vera á för-
um.
Menn eru hér frá báðum sjón-
várpsnetunum 1 í Vestur-Þýzka-
landi. Hanns-Ulrich Pusch frá
Deutsches Fernsehen ARD er hér
með 4 eða 5 aðstoðarmenn og tvo
bíia. Hann tekur alls konar efni,
Hinn er Heinz Hemming frá
Zweites deutsehes Fernsehen, sem
er með nokkra aðstoðarmenn. —
Hann er nýkomir-n og verður hér
fram í miðjan ágúst.
Þá er að geta fraftsks rithöf-
undar, búsetts 1 Stokkhóimi, Bir-
man de Reiles. sem hér cr á-
samt kvikmyndatökunjanni pólsk-
um, að nafni Witold Leszynski.
Framh. á bls. 13
Vestmannaeyjum, 15. júlí ES.GO.
SÍLD sást vaða á Selvogsbanka
í nó't og er búizt við að Vest-
mannaeyjabátar, sem eru á síld-
veiðum við eyjarnar fari þangað,
en dofnað hefur yfir veiðunum
við Eyjar að undanförnu. Afli tog
báta var ágæ ur þangað til núna
siðustu dagana að ekkert hefur
fengizt nema marglitta og alls-
konar drasl og segjast sjómenn
ekki vita dæmi annars eins.
Þann 10. þ. m. voru þessir bát-
ar hæstir á síldveiðunum við Eyj
ar:'
Reynir 9556 tunnur, Pétur Ingj
aldsson 8290, Gullborg 7365, Meta
5879, Kristbjörg 5355, Ófeigur II.
4779, Huginn 3913, Halkion 3863,
Marz 2463, Erlingur III. 1871, Ó-
feigur I. 1452 og Kári 1010 tunnur.
Mestallur aflinn hefur farið í
bræðslu, en Iítilsháttar í frystingu
en síldin er stór og átumikil og
erfið til vinnslu.
SUNDMÓT
ÞESSI mynd af startinu I 200
m. flugsundi í landskenpni
íslendinga og Dana í Kaup-
mannahöfn um síðustu helgi.
tók ljósmyndari Alþýðublaðs
ins, Jóhann Vilberg. Næstur
á myndinni er Guðinur.dur
Gíslason, en hann setti nýtt
íslandsmet í greininni. Hinn
naumi sigur Dana, 39 á rnóti
38, kom Dönum mjö>r á
óvart.
\