Alþýðublaðið - 16.09.1964, Side 1
„Fyrst vér höfum þegiö hið góða af Guði, ættum vér
þá ekki einnig að taka hinu vonda? Nakinn kom ég af
móðurskauti, og nakinn mun ég aftur fara. Drottinn gaf,
og Drottinn tók. Lofað veri nafn Drottins."
ReyKjavík, 15. sept. — HP.
ÚTFÖR forsetafrúarinnar, Dóru Þórhallsdóttur, var gerff frá Dóm-
Hkirkjunni í Reykjavík síffdegis í dag, og fluttl biskupinn yfir íslandi,
tierra Siprbjörn Einarsson, líkræffuna. Kl. 10 fyrir hádegi fór fram
tninningarathöfn um frú Dóru í sóknarkirkju forsetahjónanna heima á
Bessastöffum. Sóknarpresturinn, séra Garffar Þorsteinsson, prófastur,
flutti þar minningarræðu, en aff lokinni minningarathöfninni á Bessastöff-
um var kistu forsetafrúarinnar ekiff aff Dómkirkjunni í Reykjavfk þaffan
sem útförin fór fram. Mikill mannfjöldi fylgdi forsetafrúnni til grafar, og
voru báffar kirkjurnar þéttskipaðar við minningarathöfnina og útförina, og
nokkrir stóðu inni auk mannfjöldans, sem safnazt hafffi saman úti fyrir.
Meðal viðstaddra við minningar
athiifnina á Bessastöðum og útför
ina í Reykjavík voru ráöherrar á-
samt frúm sínum, biskupinn yfir
íslandi, handhafar forsetavalds,
erlendir sendiherrar, formenn
allra þingflokka og fleiri gestir.
Öll athöfnin var látlaus og virðu
leg og fór mjög vel fram, ogr
sást á öllu, að þjóðin var að kveðja
ástsæla forsetafrú hinztu kveðju.
Fánar blöktu í hálfa stöng víða
um land, og stjórnarráðinu og öðr
um opinberum skrifstofum, fyrir-
tækjum og Vinnustöðum í Reykja
vík og úti á landi var lokað vegna
útfararinnar, sem var útvarpað.
Sólskin var og bjart yfir, en norð
austangola og fremur kalt.
Minningarathöfnin á Bessastöð
um liófst kl. 10 f. h. Fimmtán mín
útum áður <gengu nánustu ættingj
ar og venzlafólk forsetafrúarinn-
ar, forseti-nn, herra Ásgeir Ásgeirs
Son, börn forsetahjónanna, tengda
börn og barnabörn í kirkju heim
an frá Bessastöðum. en klukkum
var hnVigt. Kár kú'kjunn;ar
þar sem kista forsetafi-úarinnar
stóð, sveipuð íslenzka þjóðfánan-
um, var skrýddur blómum, og kist
an var skreytt blómum og blóm-
sveigum, sem hiaðið hafði verið
að henni.
Minningarathöfnin hófst á þvi,
að Páll Kr. -Páls-on lék sálmafor-
leik í g-moll eftir Bach á orgel
Bessastaðakirkju, en síðan söng
kirkjukórinn sálminn ,,Á hendur
í opnunni í dag eru mynd- ]!
ir, sem ljósmyndarar blað- <;
sins tóku í gær við útför jj
forsetafrúarinnar Dóru Þór- !!
hullsdóttur. $
iWMMWWMttWMIMMMMW
fel þú honum“. Sóknarpresturinn,
séra Garðar Þorsteinsson, flutti
síðan minningarræðuna og lagði
út af þessum orðum í 60. kapítula
Jesaja, spámanns: „Rís upp, skín
þú, því að ljós þitt kemur, og
dýrð Drottins rennur upp yfir
þér. Drottinn skal vera þér eilíft
ljós og Guð þinn vera þér geisl-
andi röðull“. Séra Garðar minntist
frú Dóru Þórhallsdóttur einkum
sem eiginkonu, móður og húsmóð
ur, talaði ura einkalíf hennar
og kvað birtu leika um allar minn
ingar um hana. Minnti hann m.a. á,
að hún hefði talið sig mikla gæfu
konu, ekkl vegna þess, að síðustu
12 árin hefði hiin skipað æðsta
Framhald á 2. síðu.
2 slösuðust
við Stapann
Reykjavik, 15. sept. - KG
VÖRUBIFREH) með yfirbyggðum
palli lenti út af Keflavíkurvegin-
um rétt við Stapa klukkan rúm-
lega eitt í dág. Bifreið þessi er frá
varnarliðinu og voru í henni þrír
íslendingar. Slösuðust tveir þeirra,
en þó ekki hættulega.
Bifreiðin lenti í hvarfi á vegin-
um og eru líkur á því að við það
hafi stýrisútbúnaðurinn farið úr
sambandi. Fór bifreiðin á liliðlna
og er töluvert skemmd.
Af mönnunum þrem, sem í bíln-
um voru, þurfti að flytja tvo til
aJVgerffar í sjúkrahúsið, en að
henni lokinni voru þeir fluttir
heim. Var bflstjórinn skrámaður
í andliti og kvartaffi um verk í
baki, en annar farþeginn kvart-
aði um verk í handlegg.
^gÉÉH?
í
III SI'sTli
SR VILL STÆKKA 3 VERK-
SMIDJUR FYRIR 95 MILI.J.
Reykjavík, 15, sept - ÁG
STJÓRN Sildarverksmiðja ríkisins
hefur nú ákveðið að fara fram á
heiinild sjávarútvegsmálaráðr
herra til ýmissa framkvæmda við
verksmiðjurnar á Seyðisfirði,
Reffarfirði og Raufarhöfn. Er
þarna um að ræða ýmsar endur-
bætur og stækkun á verksmiðjun-
um, og kostnaður áætlaður 95
milljónir króna. Blaðinu bárnst í
gær tillögnr og greinargerð stjórn
arinnar í sambandi við þetta mál.
í upphafi greinargerðarinnar
■segir: „Svo sem kunnugt er hef-
ur síldveiðin á sumarvertiðinni
verið aðallega á austursvæðinu
síðustu árin o>g i sumar hefur nær
engin veiði fengizt vestan við s
Rauðanúp á Melrakkasléttu. Síld-
veiðiflotinn fer að sjálfsögð- fyrst
og fremst til þeirra hafna með
afla sinn til löndunár, sem næstar ’
eru miðunum, þ.e. hafna á svæðinu
norðan frá Raufarliöfn subur til
Djúpavogs.”
Framhald á siðu 4