Alþýðublaðið - 16.09.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 16.09.1964, Blaðsíða 16
,SAS hefur nú tryggt sér stuðning ríkisstjórnannaá Flugmálastjóri um deilu SAS og Loftleiöa Reykjavík, 15. sept. - ÁG FLUGMÁLASTJÓRI, Agnar Ko foed Hansen kom til landsins um lielgina af fundi flugmálastjóra Evrópu, sem haldinn var í Vínar- borg. Þar var ákveðið að fundur flugmálastjóra Norðurlandanna yrði haldinn hér í Reykjavík næst komandi mánudag, en þar munu verða rædd mál Loftleiða og SAS. Blaðið hafði tal af flugmála stjóra í dag. Sagði liann, að þenn- :an fund myndu sitja sömu menn og komu hingað til fundar sl. vet- ur. Á þessum fundi yrði reynt að ná samkomulagi um fargjöld Loft- • leiða til langs tíma, - helzt til árs. í sambandi við frétt eins dag- Jílaðanna í gær um að sænskur /þingmaður hefði borið fram til- 'lögu, þar sem þess væri krafizt að íslendingar og Finnar fengju jafn rétti á við hinar Norðurlandaþjóð irnar i umræðum flugmálastjóra landanna, sagði Agnar, að þessi krafa væri óþörf. íslendingar hefðu átt við fullt jafnrétti að búa á fundum flugmálastjóranna, og mál íslendinga þar sízt fyrir borð borin. Loftleiðamálið hefði verið á döfinni á þessum fundum í ein 12 ár, og flugmálastjórar hinna Norðurlandanna leyst okk- ar erfiðleika eins og bezt hefði verið hægt á hverjum tíma. Með mikilli áleitni og ágengni hefði SAS nú tekizt að tryggja sér stuðning ríkisstjórna Svíþjóðar, Danmerkur og Noregs i baráttunni gegn Loftleiðum og mætti nú bú- ast við breyttri stefnu í þessu máli. Agnar kvaðst vona, að á fundinum á mánudag yrði hægt að leysa vandamálin, en færi hann út um þúfur þá yrði þetta mál við- Bók á dönsku um íslenzk börn Reykjavík, 15. sept. - ÞB „BÖRN PÁ ISLAND” heitir 46 . eíðna hefti, sem danska kennara- sambandið hefur gefið út. Höf- undur heftisins er Ármann Kr. •i Einarsson rithöfundur. Heftið er «itt af mörgum, sem danska kenn arasambandið hefur gefið út um T>örn i ýmsum hlutum heims. Hefti þessi eru ætluð til upp- fyllingar á námsefni kennslubóka í landafræði, sem oft vill verða fremur þurr fröðleikur, Börn pá Island skiptist í 24 kafla, sem eru 'Jiafðir stuttir til þess að halda at- ffcygli lesendanna vakandi. í þeim : er fjallað um helztu þætti íslenzks f.^jóðlífs. Köflunum er veitt sam- '?hengi með því að í þeim öllum dkemur við sögu íslenzkur drengur S aldur við dönsku lesendurna, «em bókin er ætluð. Drengurinn, «em lieitir Jón, er reykvískur sjó- ínannssonur og gefst tækifæri til ! kynna lesendum fiskveiðarnar, jþegar rætt er um föður hans. Þeg- •r sumrar er Jón sendur í sveit og sagt er frá því, sem drífur á daga hans þar. Síðan er sagt frá síldveiðum og inn á milli eru frá- sagnir af sérkennum landsins, hinum björtu nóttum, jarðhitan- um og loks Surtsey, sem gerð eru góð skil. Heftið, sem er prýtt' fjölda mynda, er mjög læsilegt og fal- legt útlits. Kópavogslögregl- una vantar vitni IIINN 8. þessa mánaðar um klukk an 12.30 varð drengnr, sem kom á reiðhjóli -niður Bröttubraut í Kópavogi, fyrir bifreið, sem ók vcstur Nýbýlaveg. Þeir, sem kynnu aó liafa orðið vitni að þessu slysi, eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögregluna í •Kópavogi. FENGU VERÐLAUN FYRIR FALLEGASTA GARÐINN i Kefiávík, 15. sept. UNDANFARIN ár liefur farið fram í Keflavík val á falleg- asta heimilisskrúðgarðinum og v ;.. nú í ár er því vali ný- lokið. Verðlaun voru aflient inn . síðustu helgi/ Að þessu sinni hlaut verðlaunm garður hjón- anna Kristínar Jóhannesdótt- ur og Sigurðar Magnússonar að Smáratúni 10. Garður þessi er 7 ára gamall og má undarlegt þykja hve vel þeim hefur tek- izt á svo stuttum tima, enda hafa þau lagt mikla vinnu, sem> þai> telja sig ekki sjá eftir, íj fegurð hans. T Framh. á bls. 4 i komandi ríkisstjórna, en ekki flugmálastjóx-anna. 44. árg. — Miðvikudagur 16. september 1964 — 210. tbl. -♦ Síðari hluta sunnudagsins var þessi óvenjulega mynd tekin ofan úr Sigluf jarðarskarði. Mjög stór borgarisjaki var þá á reki norð-austur af Siglufirði og má vel greina hann í hringnum á myndmni. Fjarlægðin í beinni línu frá Siglufj irðarskarði og út að ísjakanum var um 20 km. og er því augljóst að jakinn er mjög stór. Á myndinni sést yfir kaupstaðinn, fjörðinn og til hægri er Nesnúpur, en vestur úr honum, fyrir fjarðarmynnið, gengur Siglunes. — Mynd: Ó. R. BORGARÍSJAKl ÚT AF SIGLUFIRÐI Siglufirði, 14. sept. - ÓR NÚ í sumar hefur verið óvenju mikið af liafís hér við landið. Varla hefur liðið svo dagur, að ekki hafi verið getið um einn eða fleiri borgarísjaka á sigl- ingaleiðum við landið. Sérstak- lega á þetta við Vestur- og Norð urland, en þar út af eru þessa dagana margir ísjakar á reki, bæði stórir og smáir. Mörg ár eru t. d. liðin frá því að menn gátu greint borgarís- jaka með berum augum frá Siglufirði, en það var hægt í gær. Mjög stór borgarísjaki var á reki um sjö mílur norður af Siglunesi, og sást hann mjög vel frá Siglufirði. Sást hann fyrst frá Siglunesi á laugardag, en var þá í u. þ. b. 12 mílna fjarlægð. Rak hann síðan nær landinu og austar og sást mjög vel héðan úr bænum strax á sunnudagsmorgun. Á sunnu- daginn rak hann Iengra austur og var kominn út af Eyjafirði seint á sunnudag, og sást þá vel frá Vaðlaheiði, en þangað kom margt manna til a'ö horfa á jakann. Ekki hafa fengizt nákvæmar upplýsingar um stærð borgarís- jakans, en sjómenn, sem sigldu framhjá honum á sunnudag, gizkuðu á að hann væri a.m.k. 60-70 metra hár og 3-400 m. á lengd. Samkvæmt lögmálum eðlisfræðinnar eru 9/10 hlutar ísjakans neðansjávar, en að- eins 1/10 hluti ofansjávar. Má því telja sennilegt, að þessi borgarísjaki risti 5-600 metra djúpt. í morgun (mánudag) höfðu straumar breytzt og kom jak- inn nú aftur siglandi til baka frá Eyjafirði og hefur í dag ver ið að smáþokast fyrir Siglunes og hefur nú fengið til fylgdar einn stóran jaka og fimm minni. í kvöld var þessi flota- deild komin fram undan Sauða nesi (vestan megin Siglufjarð- ar), og virtist stefna inn á Skagafjörð. , Þessi mynd er tekin síðari hluta sunnudags af borgarísjak anum út af Siglufirði. Myndin er tékin í gegnum sjónauka nokkru norðan við kaupstaðinn. Neðst á myndinni sér á Siglunes og má greina þar hús, sem gott er til að bera saman við stærð jakans. Nauðsynlegt er þó að taka tillit til þess, að ísjakinn er í a.m.k. ellefu km. fjarlægð frá húsinu, en virðist samt vera margfalt stærri en það. — Mynd: Ólafur Ragwarsson. i ■ tMMHUMUUMMMtMHtMMMMHMMMWMMMWS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.