Alþýðublaðið - 16.09.1964, Blaðsíða 10
ÞESSI mynd var tekin
fyrir nokkrum dögum. Sýnir
hún þéttbyggðasta hluta
Keykjavíkurborgar, sem nú
hefur fengið á sig nokkurt
svipmót stórborgar. í baksýn
eru snæviþakin fjöll, sem
setja kaldranalegan blæ á
umhverfið. Mætti ætla að
þarna ríkti ve ur þó enn hafi
verið 19. vika sumars þegar
myndin var tekin.(Mynd: jy)
/ k
amfvtwwvmwiwwww
þeirra í sjónvarpinu getur ráð
ið miklu um það hvor þeirra
verður forsætisráðherra.
HÓPFERÐ
Framhald af síðu 7.
: Ein stærsta borgin og sú, sem
esinna sterkast aðdráttarafl hefur
1, Austui'löndum fjær, er Hong
Kong. Eftir 4 daga þar verður
ferðinnj haldið áfram til Japan
<|g dvalizt þar vikutíma í stærstu
borg heimsins, Tokyo, og viðar í
landi sólaruppkomunnar, sem býr
yfir margháttuðum töfrum feg-
urðar og aldagamallar menningar.
Við komuna til Honolulu á Hawai
munu dökkar blómarósir i strápils
'nm væntanlega taka á móti ferða
löngunum og krýna þá blómsveig-
um, en þar verður dvalizt í 3 daga.
Að því lpknu liggur leiðin þvert
yfir Bandarikin, þar sem stanzað
'verður í San Fransisco og New
’Ýork,' en til Reykjavikur verður
"komið aftur 6. desember.
Kvikmyndir
(Framhald af 6. siSu).
kvikmyndatökurnar í októbermán
uði, — en kvikmyndahandritin
vantar víst enn.
Öilum þrem er sammerkt um
það, að þeir eru fullvissir um, að
þeirra kvikmynd komi til með að
ganga bezt í fólkið!
Það er auðvitað. Annars væru
þeir ekki að þessu bagsi.
Vigfús Sigurðsson, frá Hafnar i
firði og Gunnar Björnsson frá
Reykjavik áttu að ganga úr stjórn
sambandsins. Gunnar baðst ein-
dregið undan endurkjöri, en Vig-
fús var endurkjörinn. Ingólfur
Finnbogason var kjörinn í stað
Gunnars.
NÝ STEFNA
Framhald af 5. síðn
'f- þetta forskot haft mjög mikla
þýðingu fyrir Wilson, því að
f kjósendur munu dæma um per
* kónulega eiginleika og hæfi-
‘ leika flokksforingjanna til for
3 sætisráðherratignarinnar þeg-
; ar þeir koma fram í nokkrum
sjónvarpsþáttum, sem hver
. mun standa í fimm stundar-
fjórðunga, fram að kosningum.
Dómur kjósenda lun framkomu
Hvernig er hægi
Framhald af 6. síðu
handa um sáttatilraunir. Sé eftir
þær rannsóknir komizt að þeirri
niðurstöðu, að sáttatilraunir eigi
rétt á sér, — er langt og erfitt
verk framundan, og aðeins í þriðja
hverju tilviki munu sáttatilraunir
bera jákvæðan árangur. En vissu-
lega er þessi þriðji hluti verður
alls erfiðisins, — einkum ef börn
eru í hjónabandinu, — að þv£ er
greifinn segir.
IÐNÞING
(Framhald at 7. afSu).
leiðsluvíxla, lausaskuldir iðnaðar-
ins, erlent lánsfé, áætlanagerð í
iðnaði, verðlagsmál, tollamál, um
tillögu iðnfræðslunefndar frá
1961, erfiðleika á útvegun kennara
og um útflutning iðnaðarvara og
markaðsathuganir.
Sveinbjörn Jónsson forstjóri
Ofnasmiðjunnar og Indriði Helga-
son, rafvirkjameistari á Akureyri
voru gerðir að heiðursfélögum LI,
en Sveinn Tómasson slökkviliðs-
stjöri á Akureyri og Jóhann Frf-
mann fyrrverandi skólastjóri Iðn
skólans á Akureyri voru sæmdir
heiðursmerki iðnaðarmanna úi
gulli.
Iðunn 35 ára
Framhald af 7. síðu
við kvæðalagakennslu. Á föstu-
dagskvöld afhenti stjórn Iðunnar
þjóðminjaverði segulbandið með
nýju upptökunni, og hefur þjóð-
minjasafnið bandið til eignar og
varðveizlu, eins og silfurplöturn-
ar forðum en 2. eintak geymir
félagið sjálft. Má segja að félagið
hafi gefið sjálfu sér og þjóðinni
skemmtilega afmælisgjöf á 35
ára afmælinu. Þeir félagsmenn,
sem mest hafa unnið að upptök-
unni og kveðið stemmurnar inn
á segulbandið, eru systurnar Elísa-
bet og Rósa^ Björnsdætur, dætur
Bjöms Friðriksþoniar, Þórður
Jófnsson og systkinin Flosi og
Hörður Bjarnasynir og Nanna
Bjarnadóttir.
Auk þess, sem að framan er
talið, hafa frá upphafi verið haldn-
ir að meðaitali 14 fundir á vetri
í félaginu auk árshátíðar, sem
í vetur verður nokkru veglegri
en venja er vegna afmælisins.
Fundirnir hafa verið haldnir ann-
an og fjórða la'ugardag hveirs
mánaðar. Á sumrin fara félags-
menn vanalega einu sinni í ferða-
lag, og er þá stundum mikið ort,
frá 100 og allt upp í meira en
200 vísur í ferð. Á fundum fél-
agsins er kveðskapnum haldið við
og fólk æft í honum. Er skipuð
þriggja manna nefnd á hverjum
fundi til að undirbúa þann næsta
og sér svokölluð rfmhalaganefnd
um æfingar milli funda. Oft er ort
á fundunum, vísum safnað. saman
og þær lesnar upp i fundarlok.
Gestir koma oft á fundi og flytjá
þar erindi eða fara með vísur, og
hafa margir hagyrðingar verið
í þeirra hópi. Svoköliuð vísna-
nefnd heldur saman skrifuðum
Vísum á vegum félagsinB. Fé-
lagar í Iðunni eru nú miili 140 -
150, og eru margar konur í þeim
hópi. Stjórnina skipa nú Ríkarður
H.iáhnarsson, formaður, Sigur-
björn Stefánsson, ritari, XJlrich
Richter, gjaldkeri, Þórður Jóns-
son, varaformaður, Rósa Bjöns-
dóttir, upptökustjóri, Jóhann
Garðar Jóhannsson, formaður
vísnanefndar, og Elísabet Björns-
dóttir, formaður rímnalaganefnd-
ar.
íburðarmikEar...
Framhald af 13. síðu
Ilattar voru annars fyrirferð-
arlitlir og féllu vel að höfðinu.
Mikið bar á eins konar lambhús-
hettum, sem bundnar voru und-
ir kverk eða smeygt yfir höfuðið
og litlum kollum á hvirflinum.
Ekkert mátti auka á höfuð-
stærðina.
Mikið bar á eyrnalokltum, stutt-
um við dagklæðnað og sportföt,
síðum við samkvæmisklæðnað.
Ýmislegt fleira sáu þær í Par-
ísartízkunni forvitnilegt í Paris-
ai-borg, en nú eru þær komnar
heim og vinna af kappi við að
framleiða eitthvað fallegt handa
íslenzkum konum fyrir veturinn.
Frú Rxina, verzlunarstjórinn,
lagði áherzlu á, hve íslenzku,
ofnu efnin hefðu reynzt vel. Kjól-
ar, pils og dragtir úr íslenzkum,
ofnum efnum, rynnu út eins
og heitar lummur. Konur
erlendra sendii'áðsstarfsmanna
og islenzkar konur búsettar er-
lendis væru ekki hvað sízt fíknár
í þennan varning, og létu sumar
hverjar senda sér út samkvæmt
pöntunum klæði úr íslenzku efni
til að skarta í veizlum á erlendri
grund.
Síð pils úr vaðmáli þykja kjör-
gripir á slikum stöðum, sögðu
þær í Parísartizkunni.
Eg leit ágirndaraugum á svart-
an flaueliskjói með svörtum
blúndupífum framan á ermunum
um leið og ég fór út, — og ekki
var hann heldur dónalegur rauði
kjóllinn í „tasíunum”, sem lá í
mjúkum fellingum á likama ungu
sýningarstúlkunnar, en þó voru
þessi k'Iæði aðeins smjörþefurinn
af því, sem koma skal í vetur.
HKG
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif-
enda í þessum hverfum:
Bogahlíð
Höfðahverfi
Hverfisgötu
Barónsstíg
Hauðarárholt
Miðbæinn
Afgreiðsla Alþýðublaðsins
Sítni 14 900.
Duglegir sendisveinar
ÓSKAST.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins. Sími 14 900.
Í0 16. sept. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ