Alþýðublaðið - 16.09.1964, Blaðsíða 11
Ensku blöðin hrósa
K.R. fyrir leikinn
KR-ingar mjög ánægðir með
móftökur og allan aðbúnað
SVO sem áður hefur verið getið
hélt meistaraflokkur KR í knatt-
spyrnu utan til Englands á laugar-
daginn til að leika seinni leik sinn
í Evrópubikarkeppninni, við Liver
pool. Fór leikurinn fram á An-
field Road, leikvangi Liverpool á
mánudagskvöldið var. Leikar fóru
svo að Liverpool sigraði, svo sem
við var búizt. En hinsvegar stóð
KR sig mun betur en reikna mátti
með, eftir leikinn við Liverpool
hér, að dæma. En þá sigraði Liver-
pool með 5:0.
Á heimavelli var sigur Bretanna
6:1, að vísu, en eftir fyrri hálf-
leikinn var staðan þó aðeins 2:1
þeim í vil. Og leikurinn þá furðu
jaín, eins og reyndar útkoman
sýnir. í síðari hálfleik kenndi hins
vegar verulega aflsmunar og skor-
uðu Bretar þá 4 mörk gegn engu.
Hafði svo á úthaldsforða landanna
gengið, eftir d.iarflega baráttu í
Ólafur vann Val-
björn og setti
3 ný drengjamet
í GÆRKVÖLDI var háð fimmtar
þrautarkeppni Meistaramóts ís-
lands. Ólafur Guðmundsson KR
sigraði á nýju drengja- og ung-
lingameti, 2823 st. Hann átti sjálf-
ur gömiu metin, 2680 stig. Árang-
ur Ólafs í einstökum greinum:
langstökk 6.89 m. spjótkast 45.07
m., 200 m. 22,4 sek. kringlukast
33.19 m. og 1500 m. hlaup 4.44,7
mín. Árangur Ólafs I 200 m.
hlaupi fimmtarþrautarinnar er
nýtt drengjamet. Valbjörn Þorláks
son, KR varð annar með 2813 stig.
og Kjartan Guðjónsson, ÍR, þriðji
með 2479 stig.
fyrri hálfleiknum, að þeir máttu
lítt rönd við reisa, spretthörku og
leikni mótherjanna í þeim síðari,
svo sem úrslitin gefa til kynna.
Eftir fréttum að dæma var Heim
ir markvörður sá sem mestrar
hylli naut hinna 32 þúsund áhorf-
enda, sem komu á leikinn. En hann
átti sérlega góðan leik, og bjarg-
aði hvað eftir annað, með leikni
sinni, hinum erfiðustu skotum.
HÖRÐUR FELIXSSON
var sterkur í vörninni.
Alþýðublaðið átti stutt samtal
við Gunnar Guðmannsson frá
Liverpool í gær, en það var hann
og Gunnar Felixson, er unnu mjög
vel saman að marki því, sem KR
skoraði á 23. mín. leiksins. Gunn-
ar Felixsson rak endahnútinn á þá
aðgerð, m'eð hörkugóðu skoti upp-
undir slá.
Gunnar Guðmundsson lét mjög
vel af móttökum öllum, og sér-
staklega rómaði hann hina sér-
stæðu vinsemd hinna 32 þúsund
Unglingamóí íslands í sundi
háö í Sundhöllinni í kvöld
UNGLINGAMEISTARAMÓT ÍS-
LANDS í sundi 1964, fer fram í
Sundhöll Reykjavíkur í kvöld, mið
vikudaginn 16. september og hefst
Jd. 8. Þetta er í annað sinn sem
mót þetta er haldið, en í fyrra var
það haldið á Selfossi.
Mótið er stigakeppni á milli fé-
I laganna sem taka þátt og fá 6
| fyrstu i hverri grein stig. Fyrsti
maður fær 7 stig og síðan 5-4-3-2
og 6. maður fær 1 stig. í fyrra sigr
aði Ármann í stigakeppni þessari
og hlaut 101 stig en Selfoss varð í
öðru sæti með 95 stig. Efalaust
* Frh. á 14. síðu.
áhorfenda, sem tóku KR-liðinu
með kostum og kynjum er það
birtist á leikvanginum. Klöppuðu
því lof í lófa, ekki síður en mót-
herjunum, er vel tókst til, og er
KR skoraði hváðu við margrödd-
uð húrrahróp. Ekki hvað sízt
hvöttu áhorfendur KR-ingana í
siðari hálfleiknum, og eggjuðu þá
fast.
Leikið var við flóðljós, og hvað
Gunnar það vera æfintýri líkast
að leika knattspyrnu við þá að-
stöðu. Völlurinn var sem grænt
flosteppi sagði hann, og mjög góð-
ur, dálítið háll að vísu, eftir úr-
hellisrigningu um daginn, en ekki
hafði þá rignt um lengri tíma þar
um slóðir. Hinsvegar var upp-
stytta meðan leikurinn fór fram.
Gunnar sagði að þetta væri einn
bezti leikur, sem KR hefðu leikið
um lengri tíma, þ. e. fyrri hálf-
leikurinn, en í þeim síðari hefði
þolleysi gert vart við sig og hefði
það öðrum fremur átt sinn þátt £
ósigrinum. Á þessum leik og Laug
ardalsleiknum á dögunum, hefði
verið mikill munum, að því er KR-
iiðið áhrærði, hvað það hefði verið
miklu betra nú en þá.
Móttökur allar af hálfu Liver-
pool hefðu verið með ágætum og j
aðbúnaður allur. í stutt ferðalög I
hefði verið farið með liðið um ná-
grennið og gefin kostur á að skoða
það markverðasta, svo sem naum-
ur tími hefði unnizt til.
Leikurinn í heild var hinn
drengilegasti, enginn hlaut hin
minnstu meiðsli eða varð fyrir
neinu hnjaski.
Um leikiffn var allmikið
skrifað og voru blaðaummæli yf-
irleitt verið vinsamleg og dómar
góðir. Liðsoddar Liverpool hefðu
verið mjög ánægðir með leikinn
og aðsóknina.
Við komum heim annað kvöld
(þ. e. í kvöld) glaðir og reyfir,
ánægðir yfir skemmtilegri för og
vissulega lærdómsríkari, sagði
Gunnar að lokum.
Helsingfors, 13. sept
NTB . FNB)
Finnar sigruðu Svía í frjálsum
íþróttum með 210.5 stigi gegn
199.5. Olympíuleikvangurinn var
fullsetinn báða dagana, eða 95
þúsund manns. Engin met voru
sett, en góður árangur náðist í
mörgum greinum.
Búdapest, 13. sept. (NTB-AFP).
Alain Gottwalles setti frábært
heimsmet í 100 m. skriðsundi í
landskeppni Ungverja og Frakka
synti á 52.9 sek. Það er 7/10 úr
sek. betra en met Santos frá Bras-
ilíu. Frönsk sveit jafnaði Evrópu-
met í 4x100 m. skriðsundi, synti á
3.39. 2. mín.
Fred Hansen stekkur 5 metra á Bislet í Osló.
Út er komin bókin Sjálfsvörn?
sem kennir fólki að verjast
Fyrir skömmu var gefin út bók,
sem kennir fólki að verjast árás.
Nú á dögum, þegar líkamsárásir
eiga sér stað svo að segja dag-
lega, getur slík bók sem þessi
orðið gagnleg. Bók þessi, sem
nefnist SJÁLFSVÖRN er byggð á
hinni fornu japönsku sjálfsvarnar
glímu Ju-Jutsu, sem í Japan hef-
ur verið stunduð öldum saman.
Sjálfsvarnarglima þessi er stund-
uð í dag í fjölmörgum löndum,
sérstaklega mikið í Bandaríkjun-
um og ýmsum Evrópulöndum. í
bókinni eru fjölmargar og greini-
legar skýringarmyndir, ásamt
greinargóðum texta, og á fólk að
geta lært brögðin án þess að kenn-
ari sé nærstaddur, þó það að
sjálfsögðu væri æskilegast.
Fyrir utan það að sjálfsvarnaiv
glíma þessi veitir fólki ágæta lík-
amsáreynslu getur hún einnig ver-
ið afar nytsöm, ef árás á sér stað,
því þeir sem ná valdi á henni
munu reyna það að hún er afar
sterkt varnarvopn, enda geta jafn-
vel afllitlir karlmenn og konur,
sem hana, kunna, ráðið við fíl»
efldustu karlmenn. Má því segja
að bók þessi sé mjög nauðsyn-
leg nú á tímum, þar sem dæmin
sýna að fólk er oft illa leikið at
árásarseggjum, og vorkennir eng-
inn slíkum seggjum þó þeir fái
ærlega ráðningu. Bókaútgáfan.
Bangsi géfur bökina út og er
verð hennar kr. 67,50 með sölu-
skatti. (
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 16. sept. 1964 %%