Alþýðublaðið - 16.09.1964, Qupperneq 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 16. sept. 1964 ^
Taj Mahal í Agra, Indlandi, er af mörgum talin fegursta bygging heims.
Útsýsi býður upp á hóp
ferð kringum hnöttinn
Reykjavík, 15. sept. — HP.
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn
á 10 ára afmæli á þessu ári. Hef-
ur hún frá upphafi starfað undir
Stjórn Ingólfs Guðbrandssonar og
gengizt fyrir fjölmörgum hópferð
ttrjár ibækur
frá Scbönberg
Reykjavík, 15. sept. — IIP.
DANSKA útgáfufyrirtækið
„Det Schönbergske forlag“ hefur
nýlega sent blaðinu þrjár nýút-
komnar bækur. Var útkomudagur
þeirra 4. september, en bækurnar
eru: „Leve i et Tárn“, sem er
dönsk þýðing á skáldsögunni „The
Fumpkin Eater“, eftir Penelope
Mortimer, „Dyr og Börn“, eftir
danska dýrafræðinginn Mogens
Höjgaard og „Magt og ret“, eftir
Ivar Strahl, en tvær síðarnefndu
bækurnar eru gefnar út í vasa-
bókaflokki forlagsins, „Schön-
bergs Kulturelefanter.“
Bók Ivar Strahls fjallar um rétt
arfarsleg efni, en „Dyr og börn“
hefur að geyma ýmsan fróðleik og
ráðleggingar til foreldra, sem eiga
börn, sem áhuga hafa á dýrum eða
eiga dýr. „Leve i et Tárn“, er
fyrsta bók Penelope Mortimer,
sem þýdd er á dönsku. Skáldkonan
fæddist í Wales og hefur fengizt
við ritstörf frá barnsaldri. Á síð-
ari árum hefur hún skrifað um
bækur í Sunday Times, samið sög-
ur fyrir The New Yorker, auk þess
sem allmargar bækúr hafa kom-
ið út eftir hana í Bretlandi, en
„The Pumpkin Eatcr“ mun vera
þeirra frægust, enda hefur verið
gerð kvikmynd eftir bókinni, og
hefur sú mynd orðið víðfræg.
um við miklar vinsældir almenn-
ings, og hefur hún því öðlazt 10
ára reynslu í skipulagningu hóp-
ferða. Nú hefur Útsýn ákveðið að
efna til fyrstu hópferðarinnar
kringum hnöttinn frá íslandi í
haust. í sumar hafa allar hópferð-
ir Útsýnar til útlanda verið full-
skipaðar, en hnattferðin er nokk-
urs konar afmælisferð í tilefni 10
ára afmælisins. Var ákveðið að
efna til hnattferðarinnar fyrir
áeggjan nokkurra af fyrri viðskipta
vinum skrifstofunnar, sem þegar
hafa ákveðið þátttöku í henni, en
í ferðina komast 16-29 manns, og
eru nú aðeins fá pláss eftir. Far-
arstjóri verður Ingólfur Guð-
brandsson, en ferðin kostar um
90 þúsund krónur.
Ferðin mun hefjast hinn 30. okt.
n. k. og standa í 38 daga. Fyrsti
viðkomustaðurinn verður París,
en síðan Beirut í Libanon, sem
oft er nefnd París Austurlanda,"
og höfuðborg írans, Teheran, og
verður dvalizt nokkra daga f þess
um sagnaheimi Þúsund og einnar
nætur. Síðan liggur leiðin til Ind
lands og verður dvalizt bæði í
Bombay og höfuðborginni Dehli,t
en auk þess farið til Agra og hið
fræga musteri Taj Mahal skoðað,
en það er oft talin fegursta bygg-
ing heims. Eftir dularheim Ind-
lands tekur við Bangkok í Thai-
landi, sem talin er ein fegursta,
litríkasta og sérkennilegasta borg
Austurlanda. Hof dögunarinhalr,
svo eitthvað sé nefnt, er talið eitt
af undrum veraldar, og hinn fljót-
andi markaður borgarinnar verður
öllum minnisstæður.
Næsti áfangastaður er Manila á
Filippseyjum, þar sem spönsk á-
hrif eru enn all sterk, en staður-
inn er annars skemmtilegt sam-
bland hins vestræna og austræna
heims. Á Filippseyjum þykir lofts
lag mjög gott á þessum tíma árs,
og náttúrufegurð er þar mikil.
Framhald á síðu 10.
Reykjavík, 15. sept. — GO.
Á LAUGARDAGINN var 26.
Iðnþingi íslendingra slitið á Ák-
ureyri. Allmargar ályktanir voru
gerðar á þinginu og þessar helzt-
ar:~'Álykíun frá allsherjarnefnd
um vinnuhagræðingu í iðnaði, þar
sem hvatt er til aukinnar nýtingar
framleiðsluþátta tií hasbóta fyrir
atvinnurekendur og neytendur,
með því að taka upp alhliða hag-
ræðingarstarfsemi í iðnaðinum.
Þingið fagnar opinberu framlagi
í þessu augnamiði og jafnframt
því sem mælt er með tillögum
framkvæmdastjóra IMSÍ um notk
un fjársins, er því beint til stjórn-
ar Landssambands iðnaðarmanna,
hvort ekki’sé hægt að koma hér á
fót hagræðingarráðunautaþjónustu
á vegum sambandsins, ejns og
þeirri sem rekin er á-hinum Norð
urlöndunum. Þá beinir þingið því
til Félagsinálaráöuneytisins, að
LI fái opinberan stuðning til að
þjálfa menn í hagræðingarmálum.
Ályktun um húsnæðis og lóða-
mál iðnaðarins frá alisherjar-
nefnd. Þar er fagnað skipulagn-
ingu iðnaðar-hverfa í Reykjavík og
beint til annarra bæjar og sveitar
félaga að þau skipuleggi sérstök
I iðnaðarhvérfi og leysi þannig loca
I mál iðnaðarins. Lögð er áherzla á,
að iðnaðinum sé ekki íþyngt með
háum lóðagjöldum, sem greiðist
strax við byrjun framkvæmda,
heldur verði greiðslufrestur veitt
ur á þeim. Þingið hvetur LI til at>
i hafa forgöngu um að félagssamtt-k
! iðnaðarmanna úti á landi leysi hús
| næðismál sín á félagslegum grund
j velli til að lækka byggingarkpstn-
j að, auðvelda útvegun lánsfjár og
I flýta framkvæmdum.
j Ályktun um Iðnlánasjóð frá
; fjármálanefnd: Þar leggur þingið
enn áherzlu á eflingu sjóðsins,
j þar sem þörf iðnaðarins fýrir f jár
j festingarfé hafi aukizt hin síðsri
ár. Þingið álítur eðlilegt að úsm
lag ríkissjóðs til sjóðsins verðl
jafnhátt iðnlánasjóðsgjaldinu, ein»
og á sér stað um framlög rikisíns
, til fjárfestingarsjóða landbúnaðar
og sjávarútvegs. Skorað er á iðn-
aðarmálaráðherra, að hann beiti
sér fyrir áframhaldandi lánveit-
ingum til Iðnlánasjóðs af PL-480
lánsfé.
Þá voru gerðar á þinginu álykt-
anir um eftirtalin mál: Iðnaðsr-
banka íslands, endurkaup fram-
Framhald á 10. síðu
Tóku upp 303 kvæðalög og
afhentu Þjóðminjasafninu
Kvæðamannafélagið Iðunn 35 ára
Reykjavík, 15. sept. — HP.
KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐ-
UNN í Reykiavík er 35 ára í dag,
en einn helzti hvatamaðurinn að
stofnun þess 15. sept. 1929 var
Björn Friöriksson, verkamaður.
Stjórn félagsiús boðaði blaðamenn
á sinn fund síðastliðinn laugardag
og skýrði þeim frá sögu og starfi
félagsins í stórum dráttum, en
kvöldið áður afhenti stjórnin þjóð'
minjasafninu að gjöf segulband
með 303 kvæðalögum, sem félags
menn hafa kveðið inn á bandið, en
við upptökuna voru tvær vísur
kveðnar við hverja stemmu.
Það var 1. september 1929, sem
Björn Friðriksson, sem var mikill
unnandi íslenzkra kvæðalaga, boð
aði nokkra kvæðamenn á fund til
að ræða stofnun kvæðamannafél-
ags, og var á þeim fundi kosin
undirbúúingsnefnd. Auk Bjöxtns
áttu sæti í henni Kjartan Ólafsson,
Jósep Húnfjörð, Kristjó Jónsson
og Ingibjörg Friðriksdóttir. Nefnd
in boðaði síðan til stofnfundar í
Gúttó 15. september, og voru þar
samþykkt félagslög og kjörin
stjórn, en stofnendur voru 33.
Fyrstu stjóm Iðunnar skipuðu
Kjartan Ólafsson, formaður, Björn
Fi-iðriksson, ritari, Jósep Húnfjörð
gjaldkeri. Auk þeirra þremenning
anna, sem allir gegndu for-
mennsku i félaginu á sínum tíma,
hafa þeir Sigurður Jónsson frá
Haukagili og Ríkarður Hjálmars-
son verið formenn þess, og er Rík
arður nú formaður Iðunnar.
Kvæðamannafélagið Iðunn setti
sér strax það markmið að safna
saman og varðveita kvæðalög og
lausavísur, og var strax í upphafi
hafizt handa um þá söfnun. 1935
var ráðizt í það stórvirki á þeirrar
tíðar vísu að kveða gamlar stemm
ur inn á silfurplötur. Vöru gerð
tvö eintök af silfurþlötunum með
þessari upptöku. Hélt félagið
sjálft öðru þeirra, en afhenti Þjóð
minjasafninu hitt til eignar og
varðveizlu. Á silfurplötunum frá
1935 eru 200 stemmur, sem félags
menn kváðu inn. Voru það eink-
um 10 manns, sem það gerðu, og
þá fyrst og fremst þeir Björn Frið
riksson og Kjartan • Ölafsson. Ið-
unn hélt svo áfram söfnun kvæða-
laga, og eftir að segulbandið kom
til sögunnar hefur öllum þeim
stemmum, sem til hefur náðst, ver
ið haldið saman, og á þessu árl
var hafizt handa um nýja upptöku
kvæðalaga á segulband. Þanróg
hafa félagsmenn á þessu afmælis-
ári Iðunnar kveðið inn á segú>
band 303 stemmur og tvær vís-
ur við bverja þeirra. Gömlu kvæða
lögin, sem kveðin voru inn á siif-
urplöturnar 1935, eru þar með-
talin, þannig að 103 stemmur hafa
bætzt við, en enn er eftir að ganga
þannig frá 60-80 stemmum, sem
vitað er, að núverandi félagsmenn
kunna.
Ennfremur hefur félagið látið
fjölrita „Lagboða við rímnalög**;
en í þvi riti eru prentaðar alíar
þær vísur, sem kveðnar voru inn
á segulbandið i ár. Ef vitneskja
fyrir hendi, er getið höf. vísu
lags, hvaðan það er af landinu,
hver kenndi stemmuna upphaflpga
í félaginu og hvaða félagsmaður
kvað hana inn á bandið. Hver yisa
verður lagboði fyrir lögin á band-
inu, og verður því skráin óipisa-
andi handbók Iðunnarfélaga, 00
Framhald á síðu 10.
FJÖLMENNU
ÞINGI LOKIÐ