Alþýðublaðið - 10.10.1964, Síða 2
Bitstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndai. — Fréttastjóri:
Árni Gunnarsson. — RitstjórnarfuUtrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Rcykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — ÍJtgefandi: Alþýðuflokkurinn.
ALÞINGI
ALÞINGI kemur saman í dag og mun, ef að
líkum lætur, sitja á rökstólum fram á næsta vor.
Mörg vandamál bíða úrlausnar þingsins, bæði
stundarerfiðleikar þjóðarbúsins og grundvallar-
.mál, sem varða langa framtíð.
Fjárlög eru jafnan fyrsta mál hvers þings og
f járlagaumræða fyrsta viðureign flokkanna, sem út
varpað er til þjóðarinnar. Að þessu sinni má búast
við að erfitt reynist að ná endum saman, þar sem
ríkisstjórnin hefur tekið að sér miklar niðurgreiðsl
iur á innlendum búvörum til að halda vísitölu niðri
•og hindra verðbólgu. Er nú þegar augljóst, að Al-
þingi verður að horfast í augu við þann vanda að
tryggja fé til þessara ráðstafana á einn eða annan
hátt. Hins vegar hefur þjóðin nýlega látið frá sér
heyra um skatta- og útsvarsmál, þannig að varla
verður unað við þyngri byrðar en þegar hvíla á
herðum skattgreiðenda.
Samkomulag ríkisstjórnarinnar við verkalýð-
inn í <vor og bændur í haust nýtur mikils stuðnings
tneðal landsmanna og þarf ekki að draga í efa, að
þjóðin vill frið og samvinnu á þeim vígstöðvum —
en ekki ófrið. Kemur nú til kasta Alþingis að lög
festa ýms atriði, sem samið hefur verið um, svo
sem lengingu orlofs, endurbætur á húsnæðislán-
ium, hærri ræktunarstyrki og stuðning við fátæka
hændur. Verður varla um þessi mál deilt.
Hins vegar er víst, að deilur verði um næstu
skref í raforkumálum, svo og hvort veita eigi er-
lendum aðilum rétt til að reisa stóriðjuver í sam
feandi við virkjanir næstu ára. Um þau atriði eru
tnjög skiptar skoðanir í landinu, eins og við er að
feúast. Þótt opinberir aðilar og alls konar sérfræð
ingar hafi mikið um þau mál fjallað,. hefur þjóðin
sem heild ekki fengið teljandi upplýsingar um þau
Og getur því ekki rætt þau af viti. Þarf sem fyrst
að Ieggja spilin á borðið, svo að gagnlegar umræð-
ar geti hafizt og landsmenn geti gert sér grein fyr-
ir þessu örlagamáli. Fossamál rifjast upp á aldaraf
mæli Einars Benediktssonar, og bíður almenningur
'þess að fá að heyra, hvað nú er á ferðinni.
Öll verða þessi mál rædd — og mörg fleiri —
í steinhúsinu við Austurvöll. Er að lokum rétt að
minna á, að engin opinber stofnun býr við svo
furðulega léleg starfskjör sem Alþingi, og hefur
þingið um langt árabil vanrækt gersamlega að
hugsa fyrir húsnæði og landrými, sem sæmi Al-
þingi íslendinga. Er nú kominn tími til, að ákvarð
aninverði teknar í því máli, enda þótt framkvæmd-
ir taki sinn tíma.
Auglýsingasíminn er 14906
m
■fr Enn um skatta og útsvör.
ic Mörg bréf segja sömu sögu.
, Álagningin kom gjörsamlega á óvart.
• + Fyrsta verk alþingis veröur að vera ný athugun —
og ný lög.
ENN er lítið lát á bréfunum um
skatta- ofi útsvarsmálin, en sá galli
er á þessum bréfum, að ég sagði
það sem þau segija marg sinnis
um daginn, og öll eru bréfin svo
að segja alveg eins. Aðalefni
þeirra er að segja frá því hvern-
ig skatta- og útsvarsbyrðin kemur
niður og er það ljót saga og ekki
'aðeins Ijót heldur og hörmuleg
þegar maður veit það, að undirrót
in eru skattsvik þeirra, sem betur
mega.
vonlegt er. Það er ekki rétt, sem
hann segir að þingmenn séu skatt
frjálsir. Þeir mega draga frá þing
farakaupj sínu 15 þúsund krónur
vegna ferðakostnaðar. Það er þa@
eina, sem þeir fá til frádráttar af
sínum launum.
Hannes á horninu.
SEGJA MÁ, að þessi mál verði
ekki útrædd fyrr en einhverju rétt
læti hefur verið komið á, og við
skulum vona >að eitt fyrsta mál
þess alþingis, sem er að koma
saman, verði endurskoðun á skatta
óg útsvarslögunum, enda starfar
nú nefnd í þvi máli og gallar nú-
verandi laga eru loksins orðnir
Ijósir. Hörmulegt er, að lögin
virðast koma .alþingismönnum eins
á óvart og almenningi, eða að
minnsta kosti útkoman 'af þeim.
Eftir skrá um íslenzkar þjóðsögur liefur fjöldi bóka-
mauna beðið um áraraðir. Er nú komin út i fallegri og
hentugri útgáfu. Fæst í bókabúðum.
•> .
SKRÁ UM ÍSLÉNZKAR
ÞJÖÐSÖGUR ÖG.
SKYLD lUT
í GÆR FÉKK ég síðasta btéfið.
Bréfritarinn .segir meðal annars:
„Ég er einn af þeim launamönnum
sem er í opinberu starfi. Ég hafði
beðið í tvo áratugi eftir því að fá
launakjör mín bætt og loksins
fékk ég það á síðastliðnu ári. Á-
samt þeim lagfæri^gum, vinnu
barna minna og annarri auka-
vinnu, komst ég upp í nokkuð há-
ar tekjur.
SAMAN UEKIK I I K 11)
STE IX I)ÓR: STEI \ DÚKS.S0.
FRÁ ill.ODÚM
Bókaútgáfan Þjóðsaga. Afgreiðsla Þingholsstræti 27.
Símar 24216 og 17059.
ÞETTA v.arð til þess, <að utsvar
mitt og skattar hækkuðu um 200
%. Mér kom álagningin á mig
svo gjörsamlega á óvart, að ég átti
engin orð, enda verð ég að segja
það álit mitt, að þetta er hreint
ekkert annað en þjófnaður miðað
við álagningu á aðra þjóðfélags-
borgara, sem lifa margfallt dýr-
ara lífi í öllum greinum heldur
en ég.
FRÁ ÞVÍ AB skattskráin kom
út í sumar, hef ég ekkert fengið
útborgað og fæ ekki fyrr en í
fyrsta lagi eftir áramótin — og
verðum við nú að lifa á því, sem
krakkarnir okkar vinna sér inn
mcð blaðasölu og er hver eyrir tal
inn úr lófum þeirra. Maður er
gjörsamlega eyðilagður með slíku
framferði. Engar áætlanir stand-
ast, þó .að allt sé sparað, og ég ve|ð
að segja það, að í raun og veru
er verið vitandi vits <að eyðileggja
afkomu okkar sem ekki getum
svikið undan,
ÞAÐ ER I.ÁTIÐ viðgangast, að
alls konar braskaralýður er lát-
inn vaða uppi, en okkur er liegnt,
sem erum duglegir að vinna og
streitumst við að vera heiðarleg-
ir. En ef til vill er það þetta, sem
maðurinn átti við, sem þú sagðir
frá um daginn, að „við viljum
hafa þetta svona“, með öðrum orð
um, að skapa stéttaskiptingu og
auka liana með því að hygla bur-
geysunum en níðast á launaþeg-
um.“
BRÉFRITARINN er reiður, sem
Aðstoðarlæknisstaða
Staða aðstoðarlæknis II við Kleppsspitalann er laus til
umsóknar frá 15. nóvember 1964. Staðan veitist til 2ja
ára. Laun samkvæmt reglum um laun opinbtrra starfs-
manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, náms-
feril og fyrri störf sendist stjórnarnefnd rikisspitalanna,
Klapparstíg 29 fyrir 7. nóvember n.k.
Reykjavík, 7. október 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Útsala
hjá Daníel í fullum gangi
Allt á að seljast.
Verzlunin hættir.
★ Aðeins nokkrir dagar eftir.
10—50% afsláttur.
★ Gerið góð kaup á meðan birgðir endast
Verzlun Daníels, Laugavegi 66
Duglegir sendisveinar
ÓSK AST.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins. Sími 14 900.
2, 10. október 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ