Alþýðublaðið - 10.10.1964, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 10.10.1964, Blaðsíða 5
Frá 18. bingi Alþýðu- sambands Vestfjarða ALÞÝÐUBLAÐINU hafa borist eftirfarandi samþykktir, sem gerðar voru á 18. þingi Alþýðu- sambands Vestfjarða, sem haldið var á ísafirði dagana 24. og 25. september síffast liffinn: Afstaða ASV í kaupgjaldsmáiunum. Alþýðusamband Vestfjarða hef- ur jafnan á þingum sínum ítrekað Þ& marg yfirlýstu stefnu vest- fiszku verkalýðsfélaganna, að kaup gjaldsbarátta launþegasamtakanna og efnahagsmálastefna ríkisvalds- ins eigi fyrst og fremst að beinast að því takmarki að tryggja örugg- an og vaxandi kaupmátt launa, samfara fjölþættri og stöðugri at- vinnu um land allt. Reynsla undangenginna ára hef- ur ótvírætt leitt það í ljós, að á tímum verðþenslu og örtvaxandi dýrtíðar minnkar til muna hlut- deild launþeganna, — einkum lág- Iaúnastéttanna — í þjóðartekjun- um, og þessi þróun hefur gerzt þrátt fyrir harðskeytta og fórn- freka launabaráttu verkalýðssam- takanna. Með tilvísun til fyrri samþykkta Alþýðusambands Vestfjarða varð- andi kaupgjalds- og efnahagsmál- in, þakkar 18. þing ASV miðstjórn Alþýðusambands íslands það mik- ilsverða frumkvæði, sem hún átti að því á s. 1. vori, að upp var tekið víðtækt samstarf á milli verkalýðs samtakanna, samtaka atvinnurek- enda og ríkisstjórnarinnar til að finna leiðir til stöövunar verð- bólgu og til kjarabóta fyrir verka- fólk. Þetta þýðingarmikla samstarf um lausn efnahagsmálanna, sem ASÍ átti frumkvæðið að, hefur skapað verkalýðssamtökunum nýja og mikilsverða möguleika í kaupgjalds- og kjarabaráttunni, sem mikils góðs má af vænta. Sú skamma reynsla, sem feng- izt hefur af fyrrgreindu samkomú- lagi og af þeim samningum, sem síðar voru gerðir á milli verkalýðs félaganna og atvinnurekenda á þeim grundvelli, sem lagður var með samkomulaginu við ríkisvald- ið, bendir ótvírætt til þess, að hér hafi verið stefnt í rétta átt. Um leið og 18. þing ASV ítrek- ar stuðning vestfirzku verkalýðs- samtakanna við þá stefnu, sem mörkuð var með ályktun ASV. um kaupgjalds- og kjaramálin, skorar þingið á verkalýðsfélögin að tryggja áframhaldandi sókn fyrir bættum hag og launum á þeim vettvangi, með það sjónarmið í huga, að grundvallarkrafa verka- lýðsins er og verður alltaf sú, að 8 stunda vinnudagur eigi að nægja til að tryggja launþegunum mannsæmandi lífskjör. Síldar- og humarleit. 18. þing ASV. skorar á Sjávar- útvegsmálaráðuneytið að láta hefja sem allra fyrst leit að hum- armiðum úti fyrir Vestfjörðum og nærliggjandi slóðum. Ennfremur vill þingið benda sama aðila á, að það telur mjög mikilsvert, að síldarleit sé haldið uppi á Vestfjarðamiðum frá því í apríl/maí til októberloka. Steinbítsverði mótmælt. 18. þing ASV. lýsir yfir þeirri skoðun sinni, að lilutur Vestfirð- inga hafi mjög verið fyrir borð borin í sambandi við ákvörðun Verðlagsráðs sjávarútvegsins varð andi verð á steinbíti. Þar sem vestfirzki steinbíturinn er löngu viðurkenndur sem sér- stök gæðavara, og er þar að auki Verulegur hluti af aflamagni línu- báta á Vestfjörðum, mótmælir þingið núverandi steinbítsverði harðlega sem alltof lágu og krefst þess jafnframt, að það verði hækk- að sem fyrst. Jafnframt mótmælir þingið þeirri ástæðulitlu lækkun á fisk- verði, sem smábátaeigendur verða að búa við yfir sumarmánuðina. Þingið telur, að hér sé um svo þýðingarmikinn atvinnuveg að ; ur en aðrar stéttir hafa fengið eða ræða, að frekar beri að styðja og [ koma til með að fá.~ styrkja rekstursgrundvöll hans en j veikja, og krefst þingið af þeim | Stuffningur viff togaraútgerð. sökum leiðréttinga í þessu efni. j 18. þing ASV beinir þeim ákveðnu Friðún hrygningarsvæffa. 18. þing ASV varar við því, að fiskveiðarnar verði reknar þann- ig að um rányrkju á fiskmiðunum sé að ræða. Skorar þingið því á Sjávarút- vegsmálaráðuneytið að láta friða ákveðin veiðisvæði um hrygning- artimann. Launabætur til fiskimanna. Um leið og 18. þing ítrekar fyri'i mótmæli vestfirzku verka- lýðssamtakanna varðandi fisk- verð það, sem oddamaður yfir- nefndar Verðlagsráðs sjávarútvegs ins úrskurðaði að gilda skyldi á síðustu vetrarvertið, skorar þing- ið mjög ákveðið á viðkomandi stjórnarvöld að hlutast til um, að fiskverð verði verulega hækkað frá því, sem nú er. Til grundvallar væntanlegrar hækkunar veröi lagður sá aukni tilkostnaður, sem útgerðin hefur orðið fyrir, svo og það sjónarmið, að fiskimönnum verði ti-yggðar hverju sinni ekki lægri launabæt- tilmælum til ríkisstjórnar og Al- þingis að tryggja togaraútgerðinni öruggan rekstursgrundvöll. Þessi stórvirku atvinnutæki hafa alltaf verið mikilvii'kur og ómiss- andi liður í tekju- og gjaldeyris- öflun þjóðarinnar, sem sízt má án vera. Af þeim sökum telur Alþýðu- samband Vestfjarða það varhuga- vert ástand, að togarafloti lands- manna sé ekki nýttur til fulls. Alveg sérstaklega mótmælir þingið þeirri ólieillastefnu og öf- ugþróun að „selja” togai'ana til •erlendra aðila. Fiskvinnslustöffvum tryggt hráefni. Þar sem telja verður fullvíst, að flestir hinna stæri'i vélbáta á sam- bandssvæði A. S. V. leiti í vaxandi mæli og um lengri tíma en verið hefur til þessa, til fengsælli fiski- miða utan Vestfjarða, beinir 18. þing ASV þeim ákveðnu tilmæÞ um til þingmanna kjördæmisins, að þeir hlutist til um við ríkis- stjórn og Alþingi, að gerðar verði raunhæfar ráðstafanir nægilega tímanlega, sem tryggja fiskvinnslu stöðvum á Vestfjörðum fullnægj- andi hráefni, svo öruggt sé, að jafnan vei'ði um næga atvinnu að ræða enda þótt stærri bátarnir leggi ekki upp í heimahöfnum. í þessu sambandi vill þingið benda á þánn möguleika, að hluta og skorar því ASV á næsta Alþingi að samþykkja slíkt frumvarp. Vega- og samgöngumál. 18. þing ASV álítur að samgöngxi mál Vestfjarða séu í mesta ólestri og skoi'ar á þingmenn kjöi'dæmis* ins að vinna betur að þessum mál- um en gcrt hcfur verið. Framtíð byggðar á Vestfjörðun* er mjög háð samgöngum á milM hinna dreifðu staða innbyrðis, sy» og við aðra landshluta. Þingiff vill benda á, að vegna erfiffra vegalagninga á Vestfjörð- um er ekki hægt að segja annaíi en kjöi'dæmið hafi verið afskipi við úthlutun á vegafé undanfariff. Þingið vill benda á til úrlausnaí þessum málum lagafrumvörp þa% sem Iágu fyrir síðasta Alþingi ura jarðgöng. gegnum Brciðadalsheiðl og um kaup á Vestfjarðaskipi, cg vonar þingið, að þingmenn kjöjr- dæmisins sameinist um þessi vcjj- ferðarmál. Þingið fagnar því að hafinn ey rekstur sjúkraflugvélar fyrir Vest firði og lýsir yfir fyllsta stuðningl við málið. Skattamálin. 18. þing ASV skorar á ríkis- stjórn og Alþingi að láta nú þegas fram fara endurskoðun á skatta- og útsvarslögunum, og gera þæ» gnxndvallarbreytingar á lögunum. af atvinnuaukningarfé sé varið til ■ að tekjuskattur og útsvar sé lagl T0KY01964 Hugur allra íþróttaunnenda beinist nú til Japan. XVIII. Olympíuleikar vorra tíma hefjast í Tokyo, stærstu borg verald- ar, 10. október næstkomandi og lýkur 24. sama mánaffar. Alþýffublaffiff mun birta ítarlegar fréttir frá OTympíuleik- unum daglega. Ingi Þorsteinssob og Guffmundur Gíslason senda blaðinu sérstaklega fréttir af íslenzku keppendunum. Til þess aff fylgjast vel meff Olympíuleikunum verffa allir íþróttaunn- endur aff kaupa Alþýffublaffiff. að greiða verðuppbætur á fisk, i sem línubátar og togarar leggja upp á Vestfjörðum. Afstaffa til vinnuhagræðingar. 18. þing ASV beinir þeim til- mælum til sambandsfélaga sinna, að þau fylgist vel með þeim at- hugunum og tilraunum, sem verið er að gera varðandi vinnuhagræð- ingu og ákvæðisvinnufyrirkomu- lag í hinum ýmsu starfsgreinum, og reyni eftir þvi, sem tök eru til á liverjum stað að hafa hönd í bagga með þeim athugunum. Þingið vill einnig benda á, að það telur að sú grundvallarstefna eigi að ríkja varðandi ,,bónus“- greiðslur í fiskiðnaði og einnig hvað viðvíkur annarri ákvæðis- vinnu, að 8 stunda vinnudagur til grundvallar Sé unnið lengur, þá sé kaup greitt samkvæmt ákvæðum um tímakaup. á í einu lagi um leið og tekna e» aflað. , Ennfremur að réttur launþegr anna sé tryggður svo þeir séu ekk| látnir bera skattbyrðirnar fyrir þann fjölda skattsvikara, sem slæ- leg framkvæmd núverandi skatta- eftirlits virðist ekki ná'til. Auk þess skorar ASV á ríkisvald ið að herða til muna eftirliíið með innheimitu söluskattsins, og bend- ir jafnframt á, að innheimta haps væri mun öruggari ef hann yrðí innheimtur við tollafgreiðslu vör- unnar. Í ; Orlofsheimili á Vestf.jörffuia. 18. þing ASV felur stjórn sana- bandsins að vinna að undirbún- ingi að byggingu orlofsheimilis verkalýðssamtakanna á sambandft- svæðinu. Skipulagsmál verkalýðssamtakanna. 18. þing ASV telur að stofnxpr Ennfremur tclur þingið, að það v«’kamannasambands íslands haf* tímakaupsfólk, sem vinnur starf, sem er í tengslum við ákvæðis- vinnu, eigi siðferðislegan rétt á því að fá aukaþóknun greidda á tímakaup sitt. Læknaþjónusta og sjúkramál. 18. þing ASV telur að ástand í heilbrigðismálum Vestfjarða sé algjörlega óviðunandi og háska- ... legt, og telur að allra ráða verði í °n llnum> verið æskilegt og nauðsynlegt sce*' í skipulagsmálum samtakanna. Þingið telur því, að skipulags- mál Alþýðusambands íslands eigl að leysa í samræmi við þá öhjá- kvæmilegu þróun, sem stofnun séí sambandanna byggizt á. Þar sem enn er ekki til íulls unnt að gera sér grein fyrir réttar stöðu og hlutverki fjórðungsszaa- bandanna við hliðina á sérsíffW- __________________ telur þingið ekkl að leita til að tryggja það að lækn t'mubært að_ hin einstöku félqg ar séu sarfandi í öllum læknishér- uðum. Þingið lýsir yfir þeirri skoðun sinni, að það álítur að í frumvarpi því um Landsspítala íslands, sem flutt var á síðasta Alþingi, hafi 1 A. S. V. gerist strax aðilar ,að Verkamannasambandi íslands effa Sjómannasambandi íslands. Þingið felur stjórn ASV að leifa eftir því hvort Alþýðusambaifd - Vestfjarða sem heild geti geii* * A V UI W OIuUOlU **I|IIII^If XIIIX X , — x .. . _ , t j verið bent á raunhæfa- og árang- í ^a 3 an 1 Verkaihannasanabaqd - ; ursríka leið til að tryggja íbúum i dreifbýlisins nauðsynlega heil- brigðisþjónustu og skapa þeim i jafnframt sjálfsagt jafnrétti í þeim | efnum við íbúa höfuðborgarinnar, inu, og veitir þingið stjórninhf- heimild til að sækja um ínngöngu °f sá möguleiki er fyrir hendíi. i, Þingið leggur hina ríkurtn Frh. á 13. síffu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. október 1964 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.