Alþýðublaðið - 10.10.1964, Side 3
/
Dean Rusk á fánadegi Leifs heppna:
„Tákn um samskipfi
NOREGS og Bandar."
MÚLALUNDUR
VVashington, 9. okt. (XTB-R).
Bandaríkjamenn héldu í fyrsta
skipti í dag hinn nýja dag Leifs
Eiríkssonar hátíðlegan til minn-
ingar um norræna víkinginn, sem
fann Norður-Ameríku fyrir nær
eitt þúsund árum.
í Washington var Dean Rusk
Utanríkisráðherra afhent gömul
norsk stríðsöxi sem gjöf til banda
rísku þjóðarinnar. Viðstaddir at-
höfnina voru einnig tveu- nafnar
Leifs Eiríkssonar, þeir Leif Er-
iksen frá Sarpsborg í Noregi, 16
ára gamall, og Leif Erickson frá
Moorhead í Minnesota, 17 ára.
Sarpsborgarpilturinn, sem af-
henti utanríkisráðherranum hina
beittu stríðsöxi, kvað viðeigandi
að Noregur og Bandaríkin skiptu
með sér hinum dýrmætu leifum
vitum að þið munuð líta á hana
sem minjagrip um fyrstu Evrópu-
mennina, sem komu til þessa
lands, sagði norski pilturinn, er
hann afhenti öxina.
Dean Rusk, sagði, að hátíða-
höldin í dag og tilkynning John-
sons forseta um fánadaginn væru
1 tákn um hin hlýlegu og nánu sam
skipti Noregs og Bandaríkjanna.
Rusk sagði, að í morgun hefði
sér borizt kveðja frá Halvard
Lange utanríkisráðherra, sem
þakkaði Bandaríkjunum fyrir að
gera 9. október að degi Leifs
Eiríkssonar.
DANSKUR RAÐ-
HERRA FER FRÁ
frá hinum volduga víkingatíma. j
Öxin er þjóðardýrgripur, og við
rr
Arrnann vann
í KVÖLD fór fram úrslitaleikur-
inn í. hraðkeppninni í liandknatt-
leik. Honum lauk svo, að Ármann
sigraði Val með 10 mörkum gegn
1. Leikurinn fór fram að Háloga-
landi.
Mcðal þátttakenda í mótinu var
\ þýzka handknattle'iksliðið frá há-
skólanum í Mijnster, það sama og
kom hlngað ósigrað frá Bandaríkj-
unum. Liðið var slegið úr keppn-
inni í annarri umferð.
I -
Kaupmannahöfn, 9. okt, (ntb-r).
Danska stjórnin gaf í dag út
yfirlýsingu um kringumstæður í
sambandi við lausnarbeiðni H. Lar
sen Bjerres fiskimálaráðherra eft
ir að „Ekstrabladct” hafði haldið
því fram, að ráðherraskiptin stöf-
uðu ekki af heilsubresti ráðherr-
ans eingöngu. Að sögn blaðsins
var hart lagt að ráðherraniun
vegna málaferla, sem fram fóru
fyrir 15 árum og leiddu til þess
að hann varð að greiða 500 d. kr.
sekt.
í yfirlýsingunni segir, að þegar
Bjerre hafði verið skipaður ráð-
herra hefði hann fengið tvö bréf.
í öðru bréfinu var krafizt að
skjalfest yrði að forsætisráðherr-
anum hefði verið tjáð, að Larsen
Bjerre hefði verið dæmdur í 500
króna sekt 1952 fyrir brot á skatta
löggjöfinni. í hinu bréfinu sagði,
að Larsen Bjerre gæti valið um,
hvort hann segði af sér eða hvort
Khanh hótar
kommum
hann vildi opinberar umræður um
gömlu málaferlin.
Larsen Bjerre sýndi forsætis-
ráðherranum þegar bréfin. Senni-
lega hafa bréfin orðið til þess, að
Larsen Bjerre, sem áður hefur
þjáðst af hjartasjúkdómi, hafi
slegið niður aftur, enda varð að
flytja hann þegar í stað á sjúkra-
hús. Síðan fór hann þess á feit, að
hann segði af sér sem fiskimála-
ráðherra.
----------4
Forseti Uuruguay j bar fram
tillögu í veizlu í Montevi-
deo til heiðurs Frakkíandsforseta
sem er í tveggja daga heimsókn
í Uruguay. Gizannastasio hvatti
Frakka til að stuðla að
auknum útflutningi landa Róm-
önsku Ameríku til Evrópu.
Framlvald af síðu 16.
geti úrskurðar þ. '15. september
1932, að lögtök skuli fara fram
fyrir ógreiddum opinberum gjöld
um samkvæmt gjaldheimtuseðli
1962 og þann 13. júní 1963 kemur
fyrir fógetarétt í Reykjavík krafa
Gjaldheimtunnar um að lögtak
verði gert hjá Múlalundi fyrir ó-
greiddum gjöldum. Fyrir Gjald-
heimtuna flutti málið Guðmund-
ur Vignir Jósefsson, forstjóri
sömu stofnunar, en af hálfu Múla-
lundar, Ragnar Ólafsson hrl. í
greinalrgerð sinni stegir Ragnar
m. a.: „Múlalundur er rekinn af
SÍBS í samráði við félagsmálaráðu
neytið og undir eftirliti þess,
smbr. framlagða reglugerð.
Tilgangur stofnunarinnar er að
veita öryrkjum starf við þeirra
hæfi. Múlalundur er ekki rekinn
til að afla SÍBS fjár né í öðru fjár
gróðaskyni, heldur er stofnunin
rekin sem vinnuhæli til að skapa
öryrkjum möguleika til starfa, og
má því jafna stofnuninni við rekst
ur sjúkrahúss, t. d. Landakots-
spítala, sem er einkafyrirtæki, en
þó ekki rekið til að skapa ágóða.
Það er því ekki hægt að heim-
færa starfsemi Múlalundar undir
atvinnurekstur í skilningi áður-
nefndra lagagreina, þar sem talað
er um að atvinnurekstur, sem
skattfrjáls félög reka, sé skatt-
skyldur, því að það ákvæði
verður að skýra á þann veg, að
líkur atvinnurekstur sé rekinn til
framdráttar félaginu, eða félags-
mönnum, en ekki sem sjúkrahús
éða öryrkjavinnustofa, eins og
Múlalundur er, en stofnunin nýt-
ur opinbers styrks til starfsemi
sinnar, auk þess sem SÍBS legg-
ur stofnuninni til fé.
í sjálfu sér væri það undarleg
ráðstöfun, ef hið opinbera skatt-
legði starfsemi, sem er hluti af
nauðsynlegum sjúkna- og heil-
brigðisráðstöfunum, sem ríki og
bæ ber að halda uppi.“
í svari sínu til ríkisskattanefnd
ar, gerir stjórn Múlalundar enn
frekari grein fyrir rökum til
skattfelsis stofnunarinnar. Bent
er á, að vinnustofur Kleppsspital-
ans og Vífilsstaða séu ekki skatt-
skyldar, né heldur verkstæði
blindrafélagsins. Enn fremur seg
ir svo orðrétt í svarinu:
„Skjólstæðingar vorir í Múla-
lundi kóma ýmist beint af sjúkra
húsinu eða úr löngu iðjuleysi í
heimahúsum, ellegar sækjum við
það á biðstofur fátækraframfærsl-
unnar ákveðnum aðilum til hag-
ræðis og hugarléttis.
Sameiginleg einkenni fólksins
við komu þess til okkar ei’u þau
að hafi það yfir líkarsþreki að búa
skortir hæfni, en búi það yfir
hæfni skortir þrekið. Þar er að
finna ástæðuna til þess, að skjól-
stæðingar vorir hafa löngum setið
auðum höndum í landi, þar sem
skortur á nýtu vinnuafli er tii
stórtjóns fyrir atvinnuvegina.
Skjólstæðingar voi’ir koma og
fara, fara þegar þeir hafa notið
kennslu og þjálfunar eins og kost
ur er á, en vanheilir og vankunn-
andi teknir í þeirra stað jafnóð-
um. Ekki hefur þetta atriði stuðl
að að hagkvæmum rekstri í Múla
lundi, en sú er bót í máli, að þjóð
arbú vort hefir af því liaft hagn-
að, bæði beinan og óbeinan og er
það vel.“
í úrskurði fógetaréttar, sem
kveðinn var upp 20. marz 1964 var
í meginatriðum fallist á rök Múla
lundar og var synjað um fram-
gang lögtaksgerðarinnar. Sigurð-
ur Gríriisson borgarfógeti kvað
upp úrskurðinn, og var hann stað-
festur í Hæstarétti eins og óðúr
er sagt. :
IHMIMUtMMMHHMMMHMM
Saigon, 9. okt. (Ntb-Rt).
Nguyen Khanh forsætisráðherra
sagði 1 dag, að Suður-Víetnam
gæti gert loftárásir á hernaðar-
lega mikilvæga staði í grannlönd-
um, t. d. Norður-Víetnam og Suður
Kína.
Hann sagði, að 'aðeins yrði að
sjá um, að ráðizt yrði á rétta staði
á réttum tíma. Þetta væri mikil-
væg ákvörðun, sem hafa mundi i
för með sér erfiðleika í alþjóða-
málum og innanlands. Hann gæti
ekki sagt hvenær eða hvernig
árásirnar yrðu gerðar, en herafli
Suður-Víetnam væri fær um að
gena þetta.
Einn bandarískur liðsforingi
beið bana í dag er hermenn Viet-
cong neyddu þyrlu til að lenda.
Aðrir af áhöfninni, fjórir menn,
komust undan.
Eftir nokkra daga verður 13
suður-víetnamískum liðsforingj-
um og sjö óbreyttum borgurum
stcfnt fyrir líerrétt í Saigon sak-
aðir um þátttöku í hinni misheppn
uðum byltingum fyi’ir mánnði. Ef
þeir verða fundnir sekir verða þeir
dæmdir til dauða. Meðal hinna
ákærðu eru leiðtogi stærsta verka
lýðssambands landsins og þrír her
foringjar, m. a. Duong Van Duc og
Lm Vn Pht, sem stjórnuðu her-
sveitunum er sóttu inn í Saigon 13.
september.
Á blaðamannafundi sínum í
dag neitaði Klianh hershöfðingi
að svara spurningu um hvort hann
teldi að Bandaríkjamenn hefðu
verið viðriðnir byltingatilraunina.:
Hann kvað marga trúarleiðtoga og
stjórnmálamenn hafa beðið sig’
urri'að halda áfram störfum ríkis-
leiðtoga en kvaðst hlakka til að
taka við fyrri stöðu sinni í hern-i
um í næsta mánuði.
Dregið í dilka!
Á forsíðu Þjóðviljans í gær
voru tvær merkilegar klausur.
Önnur hvetur MÍR-félaga (MÍR
= Menningarsamtök íslands og
Ráðstjórnarríkjanna) til að fjöl
menna á aðalfund, sem átti að
vera í MÍR-salnum í Þingholts
stræti 27 þá um kvöldlð.
Aðeins „stelnsnar" frá MÍR-
klausunni var mynd af tveim
Kínverjum og undir frétt um
afmælishátíð Kínavina á ís-
landi. Voru Kínverjar þessir
hingað komnir til að vera við-
staddir hátíðahöld KÍM, Kín-
versk-íslenzka menningarfél-
affsins.í tilefni af 15 ára afmæli
Rauða-Kina. Átti að halda
hátíðina í Tjarnarkffi, uppi á
nákvæmlega sama tíma og að-
alfundur MÍR var boðaður.
Nú er spennandi að vita
hverjir fóru á MÍR-fundinn og
hverjir fóru til KÍM. Kannski
hefur það verið ætlunin með
þessu að draga komma í dilka,
þá sem ganga eftir Moskvulín
unni og hina sem eru Kínverj
um hlynntir.
AÐALFUNDUR REYKJA*
arkjör og önnur venjuleg aðalfundarstörf, ennfremur 'full-
truakjor á 10. ráðsteínu MÍR. Að dagskrá lokinni verður
$M kvikmvnd frn finvÁfWlfiDrmm ..... i_i Li ' i
" l kvöld,- íösludag, heldur
KípverEk-íslenzka - menxxing-
arfélagid fund í tileíni af 15
ára aímæii Kínverská ai-
þýðulýðveldisins, sem var 1.
okt. s. 1. Pundurinn verður
i Tjamaxkftfíi, uppi og hefst
kl 20,30.
• Form^öur KlM. dr. Jakob
Benediktsspn, flytur ávarp.
Gcstur félagsins Yuan Lu-lin,
mennmgarfuiltrúi kinverska
seridiráðaiii í Kaupmann.a-
........................
höfn flytur erindi og sjödar
verða nýjar kínvcrskar kyik-
myndir. Fundurinn er íyrir
félagsmenn og gesti þclrra.
* f Bókabúd Máls og menning-
ar hafa KÍM og Mál ög mcnn-
ing sýningu á nokkrum kin-
verskum tiriiaritum um
stjórnmál, listir, íþró'.tir,
æskuiýðsmál og málefni
kvenna, á enuku, þýzku.
frönsku, - sænsku og *'
arito.
tHMMMMMHMMMMMMHMM
ALÞÝÐUBLAÐIÐ -10. október 1964' 3