Alþýðublaðið - 10.10.1964, Qupperneq 9
Enska kirkjan hefur byggt nýjan skóla í Kantaraborg-, sem heitir Christ Church Coilege. Á efri
myndinni sést mynd af skólanum, kennslustofur tii vinstri, en kirkja skólans til hægri. Hún er mjög
nýtízkuleg og er einn veggurinn t. d. aigjörlega úr gleri. Á neffri myndinni sést kór og aitari hinnar
nýju kirkju. Þessi nýi skóli verður vígður síðar í þessum mánuði af erkíbiskupnum í Kantaraborg.
*:;'3 £ §
á, að ríkisstjórnin beiti sér fyrir
stöðvun verðbólgunnar á hvern
þann hátt, sem fært þykir, og
verði í því sambandi athugað, að
lækka innláns og útlánsvexti, en
taka jafnframt upp vísitölubætur
á sparifé og visitöluálag á skuldir.
Jafnframt verði gætt ítrastá sþarn
aðar og hagsýni í ríkisrekstrinum.
Fundurinn beinir því til þing-
manna Alþýðuflokksins, að þeir
beiti sér á næsta þingi fyrir léið-
íéttingum á tekjuskatts- og útsvars
lögunum, m. a. með stórhækkuð-
um persónufrádrætti, fjölgúh og
lengingu viðmiðunarþrepá' ;> við
álagningu óg fastara eftirlit með
og könnun á framtölum og að skatt
ar verði innheimtir af launúm jafn
óðum og þaú eru greidd.
Jafnframt vill fundurinn, að
gaumgæfilega sé athugað, hvort
ekki beri að- hverfa meir að
óbeinni skattlagningu, skattleggja
evðsluna, en bæta stórum f jölskyld
um það upp i hækkuðum persóriu
frádrætti og hækkuðum fjölskyldú
bótum. i"
Hækka yrði og aðrar bætur al-
mannatrygginga þessu til jafnvæg
is í þessu sambandi fagnar fund-
urinn því, að formaður flokksins
hefur sem félagsmálaráðherra lát-
ið hefja athugun og undirbuhing
löggjafar að stofnun lífeyrissjóðs
fyrir alla landsmenn.
: Fundurinn álítur, að eftirlit riieð
verðlagi á vörusölu og ýmiskonar
þjónustu sé náuðsynlegt til þess að
vinna á móti verðbólguþróun, og
telur því rétt, að verðlagseftirlit
verði áfram haldið og aukið, þar
sem ástæða þykir til.
Þá væntir fundurinn þess, að
framlög til Byggingalánasjóðs
verkamanna verði aukin, svo að
veita megi 450—500 þús. kr. lán til
hverrar 3-4 herbergja íbúðar
byggðrar á vegum sjóðsins frá
næstu áramótum.
Að lokum lýsir fundurinn því
yfir, að á meðan ríkisstjórnin vinn
ur að hagsmunamálum alþýðunnar
á svipaðan hátt og verið hefur, lít-
ur fundurinn svo á, að rétt.sé að
halda núverandi stjórnarsamstarfi
áfram.
SENDISVEINN
óskast hálfan daginn.
Gott kaup.
Prentsmiðjan HÓLAR H. F.
Þingholtsstræti 27. Sími 24216.
SILFUR-PLAST
Einangrun í öllum þykktum fyrirliggjandi.
Þakpappaverksmiðjan
Sími 50001.
Skrífstofustúlka
Stúlka óskast til starfa á skrifstofu allan daginn. Þarf
að hafa góða vélritunarkunnáttu og einhverja þekkingu
á bókhaldi. Tilboð merkt: „Skrifstofustúlka — 9394“ |
sendist Alþýðublaðinu.
Hef opnoð aftur
í húsi Helga Magnússonar & Co.
Tryggvagötumegin.
Verzlun Benónýs Benónýssonar
MÁLARAMEISTARAR —
HÚSBYGGJENDUR
,,ULBRIKA“
Veggjaplast
er sannkallað undra-efni.
Hefur marga kosti fram yfir málningu:
★ Mikið höggþol, myndar
þykka húð, má nota
sem- spartl.
★ Fyllir holur og teygir sig
yfir sprungur.
★ Falleg áferð, fín eða gróf
eftir vild.
★ Auðvelt í notkun.
Fæst í öllum málningarlitum.
Einkaleyfishafar:
STEINHÚÐUN HF.
— Sími 23882.
Áskriftasíminn er 14900
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. október 1964 $