Alþýðublaðið - 10.10.1964, Side 10
8/29 KEPPENDUR FRÁ
NÍUTÍU OG ÁTTA ÞJÓÐUM
KLUKKAN átta mínútur yfir sex
eftir íslenzkum tíma mim japanski
fimleikamaðnrinn Takarhi Ono,
sem nú tekur þátt í Olympíuleik-
um í fjórða sinn, sverja olympíu-
eiðinn og átta þúsund dúfum verð-
ur sleppt lausum sem tákn þess,
að 18. Olympíuleikarnir séu hafn-
ir.
„ Setningarathöfnin að þessu
Olympíuandi -
,mottoá og eiður
'• Olympíuandinn: Hið veigamesta við oiympíuleikina er ekki af
'■ sigra heldur að vera með. Hið veigamesta í tilverunni er ekki að
‘sigra, heldur að berjast vel. I
Epnkunnarorð oiympíþt^ikanna: Citius
(sem þýðir hraðar hærra — sterkar).,
Altius
Fortius
Olympíueiðurinn: Við sverjum, að við tökum þátt í hinum olym-
písku leikum í heiðarlegri olympiskri keppni, og að við virðum
gildandi reglur. Við keppum i anda riddaramennsku til heiðurs fyrir
land vort og íþróttina.
sinni verður mjög litrík og Jap-
anir fylgjast með henni af mikl-
um áhuga. Öll sæti á Olympíu-
leikvanginum eru löngu uppseld
og milljónir manna munu fylgjast
með athöfninní í sjónvarpi og út-
varpi.
Samkvæmt venju ganga Grikk-
ir fyrstir inn á leikvanginn, síð-
an koma löndin hvert af öðru í
stafrófsröð, en síðastir koma Jap-
anir. Þegar þátttakendur hafa stillt
sér upp á leikvanginum mun for-
seti japönsku framkvæmdanefnd-
arinnar, Daigoro Yasukawa og for
seti alþjóða-olympíunefndarinnar,
flytja stutt ávörp. Klukkan 5,58
rís keisarinn úr sæti sínu og seg-
ir leikana setta. Átta japanskir
ihermenn munu nú bera olympíu-
fánann að hinni 15,21 m. háu flagg
stöng og hann dreginn að húni.
Olympíusöngurinn verður síðan
sunginn. Borgarstjóri Rómar færir
borgarstjóra Tokyo fánann frá
Olympíuleikunum í Róm. Nokkr-
um augnablikum síðar mun hinn
19 ára gamli stúdent frá Waseda
háskólanum, Yochinori Sakai, birt
ast með olympíueldin í norður-
enda leikvangfsins, hlaupa einn
hring og síðan fer hann upp háar
tröppur og kveikir olympíueldinn,
sem mun loga dag nótt til 24. októ-
ber, þegar leikunum lýkur.
Þátttökuþjóðirnar nú eru 9G, en
alls eru kepepndur rúmlega átta
þúsund. Að setningarathöfninni
lokinni hefst baráttan um olym-
písk verðlaun með tilheyrandi
gleði og sorg, eins og gengur.
Þjóðverjar þjarma að Sigurði
Óskarssyni á línunni.
HKRR sigraði Miin-
ster léttilega 26-22
íslenzku olympíukeppendur, ásamt fararstjóra. Talið frá vinstri: Jón Þ. Ólafsson, Ingi Þorsteinsson,
/ararstjóri, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Valbjörn Þorláksson og Guðmimdur Gíslason. — (Mynd: IM).
ÞÝZKA háskóialiðið frá Miinster
lék fyrsta leik sinn hér á landi að
Hálogalandi i fyrrakvöld og mætti
úrvalsliði Handknattleiksráðs
Reykjavíkur. Reykvíkingar sigr-
uðu örugglega og verðskuldað í
leiknum, skoruðu 26 mörk gegn
22, en i hléi var 9 marka munur,
17 gegn 8.
★ Oblíð faðmlög.
Þjóðverjamir leika býsna vel en
kunnu greinilega illa við sig í
litla salnum að Hálogalandi, eins
og öll erlend lið, sem hingað koma
til keppni. Hálogalandsáhorfendur
hafa vissulega séð sterkari lið, en
þýzku stúdentarnir munu áreiðan-
lega sýna heilsteyptari leik ó
Keflavíkurvelli á morgun, þegar
þeir mæta íslandsmeisturunum
Þjóðv'erjarnir leika fast, óblíð
faðmlög og létt barsmíð frá byrj-
un til enda, en þannig er hand-
knattleikurinn og erfitt fyrir dóm
ara að kljást við. Dómarinn, Hann-
es Þ. Sigurðsson vísaði fimm leik
mönnum af leikvelli í 2 mínútur
til kælingar, eins og sagt er, og
þrem þeirra tvívegis!
★ Fyrri halfieikur 17-8.
Fyrstu 5 mín. leiksins könnuðu
liðin styrkleika hvors annars og
það sést 1-1 og 2-2 á markatöfl-
unni. Lið HKRR virtist þó greini-
lega sterkari aðilinn og næstu
tvær mínúturnar skoruðu Þórar-
inn Ólafsson og Hörður Kristins-
son glæsileg mörk. Úr því tókst
Þjóðverjum aldrei að jafna metin
og stöðugt hallaði á ógæfuhlið, —-
Reykjavíkurúrvalið lék á köflum
ágæta vel, það var skorað með
langskotum og af línu jöfnum
höndum og þýzku stúdentarnir
réðu ekki við neitt. Eins og fyrr
segir vár 9 marka munur i hléi,
17-8 M
★ Miinster vann síðari hálfieik.
Miinster-liðið mætti mun harð-
skeyttara til leiks efir hlé, greini-
Framhald á 11. síðu.
Olympíu-
hringarnir
OLYMPÍUHRINGIRNIR.
Margir spyrja, hvað hinir
fimm olympíuhringir tákni.
Þeir tákna hina fimm heims
hluta, blár fyrir Evrópu,
gulur fyrir Asíu,
ir Afríku,
líu og svo undarlegt scm
það kann að virðast, rauður
fyrir Ameríku.Olympíuhring
irnir voru teknir upp 1914
sem tákn leikanna.
Til er líka olympíufáni. —
Hann er gerður af hringun-
um á hvítum feldi og úr lit-
um oiympiufánans má gera
alla þjóðfána heims.
9 klukku
munurá
vík og Tokyo
Það er níu klukkustunda
mvnur á íslenzkum tíma og
Tobyo tíma. Tökum dæmi,
þegar klukkan er 9 að
morgni í Tokyo er miðnætti
í Reykjavík. Þegar kl. er 14
í Tokyo er hún 5 að morgni
í Reykjavik. Aðalkeppni
hvers dags hefst kl. 14 og
lýkur kl. 18 skv. Tokyo-tíma,
þ.e.a.s. 5 til 9 að morgni
lenzkur tími.
^0 10. október 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ