Alþýðublaðið - 10.10.1964, Blaðsíða 16
f
SLÁTUR SELT UNDIR
LÖGREGLUVERND
Reykjavík, 9. okt. — ÓTJ.
ÞÚSUNDIR manna hafa þyrpzt
að til að kaupa slátur og fleira
góðgæti, á sláturmarkaði Slát-
urfélags Suðurlands við Grens
ásveg. Framanaf var aðsókn
næsta lítil, það var eins og all-
ir vildu draga þetta fram á sið-
ustu stundu, kannske í von um
að þá yrði mesta ösin búin. En
það gengur ekki, þegar allir
hugsa þannig. Árangurinn er
sá', að fólk hefur mátt biða tím-
um saman í löng.um biðröðum
með „koppa sína og kyrnur”
eftir að fá afgreiðslu. Þegar
blaðamaður og.ljósmyndari Al-:
þýðublaðsins komu á vettvang,
biðu hátt á annað hundrað
raanns í sal, bak við verzlun- .
ina. Menn höfðu fengið númer,
og voru svo kallaðir upp, þeg-
ar að þeim kom. Með því móti
svindlaði enginn sér fram fyrir
náungann. Og til þess að
tryggja enn betur, að réttlætis
væri gætt í hvívetna, gengu 2
herðabreiðir lögregluþjónar um
meðal fólksins, og litu eftir að
allt væri í lagi. Að því er Guð-
jón Guðjónsson verzlunarstjóri
segir hefur salan aldrei verið
svona gífurlega mikil, og reikn-
aði hann með áð hún væri nú
þegar tvöfalt meiri en í fyrra,
Ætlunin var að markaðinum
skyldi ljúka í kvöld, en þeirri
ákvörðun hefur verið breytt, og
gefst fólki enn tækifæri til að
krækja sér í sláturkepp á
þriðjudag og miðvikudag.
MULALUNDUR EKKI
SKATTSKYLDUR
iteykjavík, 9. okt. — Gf>.
B DAG var kveðinn upp í Hæsta
«étii dómur í máli, sem Gjald-
'theimtan í Reykjavík höfðaði gegn
Múlalundi fyrir fógetarétti, vegna
’tneintrar gjaldskyldu stofnunar-
ínnar við ríki og borg. Hæstirétt-
"ttr staðfesti þann úrskurö fógeta-
tréítar, að stofnunin Múlalundur
€etl ekki talist reka atvinnu á
'i»ann hátt sem almennur skilning-
ttr er lagður í í lögum, helduf
ffsili starfsemi stofnunarinnar und
<!• sérákvæði uni líknarfélög og
•Rkylda starfsemi og sé Múlalund-
tu- þvi gjaldfrjáls. Gizur Ber-
Weinsson dómari í Hæstarétti skil
■wði sératkvæði, sem gengur í gagn
■*sl;eða átt.
Fórsaga málsins er sú, að með
liréfi dags. 21. ágúst 1962 svaraði
’ríkisskattanefnd erindi Múlalund
ar um. niðurfellingu skatta fyrir
árið 1961 á þá leið, að samkvæmt
tilvísaðri reglugerðárgrein yrði að
úrskurða stofnunina skattskylda
og beiðni um lækkun var vísað
frá ‘ vegna þess að framtal hafði
ekki borizt. Skyldu álagðir skattar
því standa óbreyttir.
Múlalundí hafði verið gert að
greiða kr. 122.925.00 í opinber
gjöld fyrir skattaárið 1961, sem
kom til innheimtu árið 1962.
Stofhunki greiddi 46.'388 krónur
upp i gjöldin, eða sem svaraði til
slysa- lifeyris- og atvinnuleýsis-
tryggingagjaldi. Önnur gjöld, að
upphæð 115.472.oo kr. taldi hún
sér ekki skylt ,að greiða. Vísaði
liún í því sambandi til þess, að
stofnunin væri í rauninni þjálfun
ar- óg kennslustofnun fyrir ör-
yrkja og væri rekin með halla.
Slíkar stofnanir væru nú víða um
heim reistar af ríki eða bæ eða
þéim í sameiningu og rekstur
þeirra auk þess styrktur ríkulega.
Vísað var til þess, að Reykjalund-
ur, hliðstæð stofnun, hefði verið
rekin síðan árið 1945 án þess að
greiða nokkurn tíma opinber gjöld.
Mikil áherzla væri lögð á það
víða um heim að styðja sjúka til
sjáifsbjargar og væri starfsemi
SÍBS á Reýkjalundi og í Múla-
lundi .víða höfð til fyrirmyndar í
því efni. Óskaði stjórn stofnunar
innar síðan eftir því við ríkis-
skattanefnd að Múialundur yrði
undanþeginn framtalsskyldu með-
an hann 'starfaði með sama hætti
og í sama tilgangi og reglugerð
hans mælir fyrir um.
Síðan gerðist það, að borgarfó-
Framh. af bls. 3.
UNDIR hausnum „Hlerað“ var í
gær birt óstaðfest frétt um þá
bræður Þorstein Gíslason og Egg-
ert Gíslason skipstjóra. Þessi frétt
hefur reynzt rakalaus með öllu og
hér með borin til baka. Eru þeir
bræður beðnir afsökunar.
Laugardagur 10. október 1964
SAS spáð ósigri
gegn Loftleiðum
DEILA SAS og Loftleiða kemst
bráðum á úrslitastig, segir danska
blaðið „Berlingske Aftenavis“.
Þótt Ioftferðasamningur íslands
og Norðurlanda renni út 31. okt.
telur blaðið hugsanlegt að eftir
þann tíma muni Loftleiðir halda
áfram ferðum með hinum nýju
„risaflugvélum“ sínum og „halda
áfram að ræna milljónatekjum af
SAS“.
Þar sem Loftleiðir hafi ekki
staðið við samninginn og stöðugt
fjölgað farþegum sínum yfir At-
lantshaf telur blaðið mjög sann-
gj'arnt að gerður verði nýr samn-
ingur til að takmarka taumlausa
hagnýtingu Loftleiða á markaðn-
um á kostnað SAS. En haldi ferð
ir Loftleiða áfram verði ekki hægt
að saka fiugmálayfirvöld Norður
landa eða SAS. Þetta yrði niður-
staða ákvörðunar, sem utanríkis-
ráðherra Norðurlanda tækju með
tilliti til pólitískra samskipta við
ísland.
íslendingar tefla djarft, segir
blaðið, og telja sig geta það vegna
gruns um, að þegar til kastana
komi geti Danir, Svíar og Norð-
menn ekki fengið sig til að vinna
hinum íslenzka „litla bróður"
mein.
Blaðið segir það undarlega hafa
um verið viðkvæmir gagnvart ís-
gerzt, að meðan Danir hafi stund-
lendingum, enda liggi það í hlut-
arins eðli að samskipti landanna
séu sérstaks eðlis, hafi Syíar og
Norðmenn staðið fast á því hing-
að til, að krefjast verði þess, að
loftferðasamningnum sé fylgt út
í æsar og takmarka beri farþega-
flutninga Loftleiða.
Nú virðist Svíar og Norðmenn
hins vegar í þann veginn að taka
/ I ■
IEUNDUR trúnaðarmanna
(hverfisstjóra) Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur verður
haldinn I Alþýðuliúsinu við
Hverfisgötu (inngangur frá
Ingólfsstræti) þriðjudaginn
13. þ. m. klukkan 8,30 é. h.
Úundarefni:
1; Erlendur Vilhjálmsson,
■ fonnaður félagsins, iæð-
'ir vetrarstarfið.
2. Ti’únaðarmenn gera til-
lögur um fulltrúa félags-
ins á flokksþing.
3. Eggert G. Þorsteinsson,
alþingismaður, ræðir um
húsnæöismál og svarár
fyrirspurnum.
HWWUWWWWWWWM
upp þá afstöðu Dana, að „menn
megi ekki vera vondir við litla
bróður", og vilja fara hægt í sak-
irnar. Loftleiðir viti þetta að sjálf
sögðu og hagnýti sér.
Blaðið telur að, fyrirhugaðar við
ræður fulltrúa flugmálayfirvalda,
samgöngumálaráðuneyta og utan-
ríkisráðuneyta Noregs, Danmerk-
ur og Svíþjóðar muni frekar fjalla
um það, hvað samskiptin við ís-
land geti þolað, en flugmál. í
þessu sambandi sé mikilvægt, a5
Framhald á síðu 4
wwwwywwwtwww
Emilía Jónasdólfir
skemmfir á fundi
Kvenfélagsins
Kvenfélag Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík byrjar vetr-
arstarfsemi sína með fundi
mánudagskvöld, 12. okt. kl.
8,30 í Iðnó, uppi.
Fundarefni:
1. Rætt um vetrarstarfið.
2. Kosning fulltrúa á flokks-;
þing og aðalfund Banda-
lags kvenua.
3. Rætt um bazar og fleiri
f járöflunarleiðir.
Á eftir verður kaffidrykkja
skemmtiatriði. Frú Emilía
Jónapdóttir, leikkona fer
með gamanþátt.
w*wwwwíw««»w»ww
A-USTINN
I MÚRARA-
FÉLAGINU
Fulltrúakjör til A.S.Í. þings í
Múrarafélagi Reykjavíkur fer
fram í skrifstofu félagsins í dag,
frá kl. | e. h. til kl. 9 e. h. og á
morgun (sunnudag) kl. 1 e. h. til
kl. 10 e. h.
í kjöri eru tveir listar, A-listi
borinn fram af stjórn og trúnaðar
mannaráði og er þannig skipaður:
Aðalfulltrúar: Eggert G. Þor-
steinsson, Einar Jónsson og Hilm
ar Guðlaugsson.
Varafulltrúar:
Jón G. S. Jónsson, Kristján Hár
aldsson og Hilmar Guðjónsson.
B-listi er borinn fram af Ber'g
steini Jónssyni, Ragnari Hansen
o. fl. fyrir hönd kommúnista, sem
reynzt hafa öflugastir sundrungar
menn í félaginu undanfarin ár.
Múrarar kjósið snemma og fylk
ið ykkur um A-listann.