Alþýðublaðið - 13.10.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 13.10.1964, Blaðsíða 1
Sorg grúfir nú yfir Flat- eyri við Önundarfjörð. Af þremur bátum staðarins hefur einn farizt og annars er saknað. Fjórir menn hafa týnt lífi og óttazt er um þrjá til viðbótarar. 44. árg. — Þriðjudagur 13. október 1964 — 233. tbl. Hannes Oddsson lá í rúminu vestur á Flateyri þegar At- þýðublaðsmenn komu í heimsókn. Hann er talsvert þrekaður eftir volkið í gúmbátnum, en á batavegi. Mummi var fyrsti báturinn hans sem formanns og róðurinn á laugardag annar róðurinn á vertí'ðinni. — Mynd: JV. MIIMMI SOKK A ÞREM MÍNÚTUM Leitað var að Snæ- feili í allan gærdag Reykjavík, 12. okt. - GO VÉLBÁTURINN Sæfeli SII 210 er týndur. Ekkert hefur spurzt til bátsins síðan á miðnætti á laug- ardag, þegar hann var staddur aust ur af Hornbjargi á leið frá Akur- eyri til Flateyrar, þar sem hann er gerður út. Á bátnum eru 3 menn. Mjög víðtæk leit er hafin úr lofti, á sjó og landi, en'hún hafði ekki borið árangur seint í kvöld. Leitarskilyrði úr lofti voru afleit í dag, en bátar frá ísafirði og varð skip hafa leitað á Húnaflóa og út af Hornströndum. Leitarveður hefur verið slæmt og bátarnir orð- ið að halda sig langt frá landi. Verið er að athuga um mögu- leika á að leita fjörur á Ströndum, en það er erfitt vegna þess að Strandir eru að mestu í eyði. Vita vörðurinn á Hornbjargi, Jóhann Hjálmarsson verður fenginn til að leita fjörur frá Horni suður á Barðsvík, en fólk á Dröngum, sem er bær norðan Ófeigsfjarðar, fengið til- að leita þaðan í Geir- hólm í Reykjafjörð nyrðri, en 6 manna leitarflokkur fari frá ísa- firði og verði kominnfum Skorar- heiði í Furufjörð á Ströndum á morgun. Þar mun ’ flokkurinn skipta sór í tvennt og gnnar hópur inn leita norður að Barðsvík og Framh. á 13 síðu. Reykjavík 12. okt. GO. VÉLBÁTURINN Mummi frá Flateyri fórst í róðri á laugardaginn. Me3 bátnum fórust 4 menn, en tveir björguðust eftir mikla hrakninga í gúm- báti. Þeir voru skipstjórinn, Hannes Oddsson og Ólafur Öyahas vélstjóri. Þá er leitað dauðaleit að v.b. Sæfelli, einnig frá Flateyri, en sá bátur var að koma frá Akureyri, þar sem hann var í slipp. Síðast heyrðist frá honum á Húnaflóa og beinist leitin einkum að Ströndum. Á Sæfelli eru 3 menn, allir frá Fiateyri. Mummi fór í róður aðfaranótt laugardags og þegar hann var ekki kominn að á sunnudagsmorgun var Siysavarnafélaginu gert aðuart og hófst þá þegar víðtæk leit, sem ekki bar árangur fyrr en seint utn kvðldl ið að mennirnir tveir fundust, þá komnir á gúmbátnum undir miðjak Breiðafjörð. Hannes Oddsson formaður á Mumma var talsvert þrekaður, þeg ar vlð náðum tali af honum vest- ur á Flateyri í dag. Hann lá í rúm- inu heima hjá tengdaforeldrum sínum og fengum við að ræða við hann stutta stund. Hannesi segist svo frá: — Það mun hafa verið um hálf- þrjú leytið á laugardag, að við vorum staddir 11 mílin- NNV af Sléttunesi og vorum að draga lín- una í suður. Vissum við þá ekki fyrri til, en straumhnútur tekur sig upp hjá bátnum og kastar hon- um á hliðina, alveg á möstur. — Veðrið var ekki mjög slæmt, en þungt í sjó og mikill straumur.. Styrishúsið fylltist strax af sjó, • ramh - bls 4 Sæfell SH 210 Ungir jafnaðarmenn á Norðurlöndum mótmæla aðförinni a5 Loftleiðum Reykjavík, 12. okt. ÁG. ÆSKULÝÐSS AMBAND jafnaðarmanna á Norðurlönd- um (Nordens Sovialdemokrat- iske Ungdom), sem Saniband ungra jafnaðarmanna er aðili að, hefur í dag afhent utanrík isráðherrum Noregs, Danmerk ur og Svíþjóðar harðorð mót- mæli við tilraunum til að daga úr flugi Loftleiða til Skandina víu. Blaðinu barst í dag fréttatil- kynning frá Sambandi ungra jafnaðarmanna um þetta mál og jafnfram.t mótmælin, sém af hent voru samtímis f löndun- um þrem. Mótmælin íara hér á eftir: Til utanríkisráðherra Sviþjóð Framh. a íbla. 4 Mummi IS 366

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.