Alþýðublaðið - 13.10.1964, Blaðsíða 10
Éámé&
nwmimtljSéé
VORN Fremara var
mjög' sundurlaus gegn
þýzka háskólaliðinu frá Mtin-
ster í leiknum á sunnudag-
inn. Á myndinni sézt þýzk
ur leikmaður athafna sig á
línunni. Framarar verða að
iajra vörn sína fyrir leikinn í
EvTÓpubikarkeppninni.
Myndir: JV.
?hi ii i 1
KR(a) VANN KR(b) 2:1
JÖFNUM LEIK
iPlng KSÍ háð
28.-29. nóv.
ÁRSÞING Knattspyrnusam-
bands tslands verður haldlð í
húsi Slysavarnafélags tslands
við Grandagarð dagana 28. og
v 29. nóvember næstkomandi.
FRAM OLLI V0NBRI6ÐUM
ILEIKNUM VIÐ MtíNSTER
tslandsmeisturum Fram tókst aðhvert markið af öðru með langskot
„merja“ jafntefli í leik við þýzka | um. Um miðjan hálfleikinn var
stúdentaliðið frá Munster í íþrótta j staðan 10 gegn 3 Þjóðverjum í vil,
húsinu á Keflavíkurflugvelli á en undir lok hálfleiksins tókst
sunnudaginn, 20 gegn 20.
Þjóðverjarnlr voru mun frísk-
ari i upphafi leiksins, en Fram
var ekki svipur hjá sjón, miðað
við leiki liðsins í fyrravetur. —
Vörnin var opin og hikandi og
Munster-liðið átti frekar auðvelt
með að finna glufur. Aðallega var
það langskyttan Nestermann, seœ
gerði usla í vörn Fram og skoraði
UÐMUNDUR VARÐ 5. í 4.
RIÐLI í 400m FJÓRSUNDI
Guðmundur Gíslason varð 5.
í fjórða riðli 400 m. fjórsunds-
ins á mánudagsmorgun á 5:15,-
5 mín., sem er íslandsmet
í 50 m. laug. Guðmundur sigr-
aði m. a. Finnann Vaahon-
ranta, sem er Norðurlandamet-
hafi í þessari grein. Úrslit í
riðlinum urðu þessi:
Gerhard Hetz, Þýzkalandi,
4:57,6 mín., Csaba Ali, Ung-
verjalandi, 5:05,4, Sven Olle
Ferm, Svíþjóð, 5:10,5, A. Flem
ing Alexander, Ástralíu, 5:10,-
8, Guðmundur Gíslason, ísl.,
5:15,5, Vaahoranta, Finnlandi,
5:16,2. Guillermo Davila, Mex-
iko, 5:27,1. Narong Chok-Um-
nuay, Thailandi, 5:44,1. Guð-
mundur var með 23. bezta tím
ann í 400 m. fjórsundi, sem má
teljast mjög sæmilegt. Hol-
lendingurinn Jiskoot var með
lakastan tíma þeirra, sem kom-
ust í úrslit, 5:04,4 mín. Lakasti
tíminn I 400 m. fjórsundi var
5:44,1 mín.
Ilrafnhildur Guðmundsdótt-
ir tók þátt í undanrásum 100
m. skríðsundsins á mánudags-
morgun, hún synti í 4. riðli og
varð sjötta á 1:06,4 mín.
Á sunnudag tók Guðmund-
ur Gíslason í undanrásum 100
m. skriðsundsins. Hann varð 8.
I sínum riðli á 59,0 sek., sem
er svipaður tími og hann hef-
ur náð bezt áður á þessari
vegalengd í 50 m. laug.
Fram aðeins að rétta hlut sinn,
enda var þá elns og liðið vaknaði
að dvala og hraði kom í spUið.
Magnús Pétursson, dómarl • var
óspar á vitaköstin, í fyrri hálfleik
voru dæmd sjö!
Lið Fram kom mun ákveðnara
til lelks eftir hlé og auðséð var,
að nú átti að láta til skarar skríða.
Þjóðverjar hugsuðu aftur á móti
meira um það, að faalda forskoti
sínu, og e.t.v. hefur það orðið til
þess, að sigurinn hljóp þeim úr
greipum. Nokkrum sinnum varð
Magnús að dæma af þeim boltann
vegna augljósra tafa. Endasprett-
ur Framara var góður.
ustu mínútu tókst Ingólfi Óskars-
syni að jafna úr vítakasti og Iitlu
munaði að hann skoraði 21. mark
ið nokkrmn sekúndum fyrir Ieiks
lok. Annars voru Framarar óör-
uggir í vítaköstum, a.m.k. þrjú
fóru í súginn.
Augljóst er, að Fram verður að
bæta mikið leik sinn, ef liðið á
að eiga nokkra möguleika í sæn-
sku meistarana í Evrópubikar-
keppninni í næsta mánuði. Ing-
ólfur Óskarsson var bezti maður
liðsins, hann skoraði átta af mörk-
unum og var sífellt ógnandi. Ann-
ars hefur heyrzt, að Ingólfur sé
jafnvel á förum til Svíþjóðar, til
að leika með sænsku 2. deildar-
Iiði. Það væri mikill skaði fyrir
Fram og íslenzkan handknattleik
éf svo væri.
í liði Þjóðverjanna voru Nest-
érmann (nr. 10) og landsliðsmaður
Framh. á bls. 11
AÐSÓKNIN að leik KR-a og KR-b
í Bikarkeppninni á sunnudaginn,
sýndi að búist var við snörpum
átökum, sem og lika varð. Eftir
hinn næsta óvænta sigur B-liðs-
ins yfir nýbökuðum íslandsmeist-
urunum í þessari keppni á dög-
unum, var liðið orðið eftirlæti
áhorfendanna og það liðið í keppn
inni, sem mestrar hylli naut. Þetta
kom greinilega fram í leiknum á
sunnudaginn. Hvatningarhróp og
eggjanir áhorfenda beindust allar
að því, að það dygði sem bezt í
átökunum. En þrátt fyrir það þótt
B-liðið léki af miklum dugnaði,
einkum þó í síðari hálfleiknum,
tókst því ekki að ganga með sigur
af hólmi, í þetta sinn. Snerpa þess,
sigurkraftur og neistaflug var
heldur ekki eins áberandi nú og
gegn Keflvíkingunum. Hér var við
„bræður að berjast”, sem ósjálf-
rátt hefur að segja?
Er 10 mín. voru af leik skoraði
A-liðið* Ólafur Lárusson sendi
boltann inn, eftir að hafa leikið á
bakvörðinn. Fleiri mörk voru ekki
skoruð í fyrri hálfleiknum, og
átti B-liðið ekki tækifæri til að
jafna. En A-liðið átti möguleika
til að bæta öðru marki við, er Sig-
þór skallaði í stöng úr sendingu
Gunnars G. Er 20 mín. voru liðnar
af síðari hálfleik bætti A-liðið
öðru marki við Sigþór nýtti vel
fyrirsendingu, sem miðvörðurinn
„kiksaði” á, sendi knöttinn boð-
leiðis inn. En i þessum hálfleik
sótti B-liðið sig verulega. Tvíveg-
is bjargaði Bjarni Felixsson á línu,
og Heimir mátti hafa sig allan við
að halda markinu hreinu, og það
tókst honum þar til á 30. min. að"
Jón Sigurðsson sendi boltann inn
óverjandi skot úr viðstöðulausri
loftsendingu. Var þetta glæsilega
gert hjá Jóni. Tvívegis áttu A-lið-
ar upplögð marktækifæri, en
skutu yfir af örstuttu og opnu
færi, í bæði skiptin. Þarna hefði
boltinn átt að liggja í netinu, ef
rétt hefði verið að staðið. Sömu-
leiðis hefði skot Theódórs, sem
var of laust, og Bjarni varði á línu,
einriig átt að hafna í markinu. Úr-
slitin 4:2 hefði ekki verið órétt-
mæt. Dómari var Valur Benedikts
son og dæmdi vel. EB.
Vín, 11. okt. (NTB-R).
Austurríki sigraði Sovétríkin í
knattspymu á sunnudag með 1
marki gegn engu.
Akranes sigraði
Kefiavík 2:1
Akurnesingar sigruðu Kefl-
víkinga í úrslitaleik „Litlu bikar-
keppninnar” á Njarðvíkurvelli á
sunnudag með 2 mörkum gegn
1. Urðu því Akurnesingar sigur-
vegarar keppninnar á þessu ári,
hlutu alls 6 stig. Keflvíkingar 5
og Ilafnfirðingar 1. Þeir Albert
Gnðmundsson og Axel Kristjáns-
son gáfu á sínum tíma fjóra bik-
ara til þessarar keppni og afhentí
, Albert Guðmundsson þann síð-
asta eftir leikinn á sunnudag. Við
það tækifærl tilkynnti Albert, að
þeir félagar hefðu ákveðið að
gefa aðra fjóra bikara til keppn-
innar.
þj'óðverji frír á
í leiknum gcgn Fram.
f 1,0 13. október 1964 — ALÞÝÐUBLAÐÍÐ