Alþýðublaðið - 13.10.1964, Qupperneq 2
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndai. — Fréttastjóri:
Árni Gunnarsson. — RitstjórnarfuUtrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 1490G. — Aðsetur: Alþýðulnisið við
Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
ki\ 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Skipstjórar á skólabekk
ÞAÐ VAKTI þjóðarathygli um síðustu mán-
aðamót, er hópur af beztu síldarskipstjórum ís-
lenzka flotans 'varð að yfirgefa skip sín til að setj-
ast á skólabekk. Þjóðarbúið hefur ef til vill tapað
snilljónum, en ekki dugði að horfa í það. Hinir
ungu og aflasælu menn verða að fylgjast með
tækninni og tryggja sér réttindi til að stýra þeim
skipum, sem nú eru smíðuð stærri og fullkomnari
en áður.
Þetta atvik er lærdómsríkt fyrir þjóðina, af
því að hið sama hefur gerzt og getur enn gerzt í
stórum stíl í öðrum atvinnugreinum, án þess að
það komizt í blöðin. Tæknin fer vaxandi með
hverju ári — en er fólkið nægilega tæknimenntað
til að fylgjast með henni? Hvað verður um alla þá.
sem ekki geta farið frá störfum og sezt á skóla-
bekk á ný? Sitja þeir ekki eftir og missa af tæki-
færum samtíðar sinnar? Verður það fólk ekki
smám saman dæmt tii lægri launa og lélegri lífs-
kjara?
Einmitt þetta er höfuðeinkenni okkar sam-
tíðar. Hin nýju atvinnutæki krefjast miklu meiri
þekkingar og þjálfunar en áður. Þess vegna er það
höfuðverkefni nútíma þjóðfélags að mennta hina
uppvaxandi kynslóð, því að ófaglært verkafólk
verður færra og færra.
Hér á landi hafa verið stigin stór skref í skóla-
'byggingum í tíð núyerandi ríkisstjórnar, stofnað-
ur Tækniskóli og kennaraskóli endurskapaður. Nú-
verandi ríkisstjóm hefur stefnt í rétta átt, en gera
þarf enn betur á næstu árum.
í Noregi hefur jafnaðarmannastjórn fyrir
nokkrum vikum lagt fram fjárlagafrumvarp fyrii
árið 1965. Þar er söluskattur hækkaður úr 10%
í 12%. Það fé, sem fæst fyrir þessa skattahækkun
í Noregi, er fyrst og fremst notað til stóraukinna
framlaga til skólamála, bæði skólaskyldu, náms-
styrkja, kaupa á bókum og kennslutækjum og til
risavaxinna framkvæmda við háskólana. Er það
einkenni á flestum löndum um þessar mundir, hve
mikil áherzla er lögð á framkvæmdir á þessu sviði.
íslenzkir foreldrar hafa ávallt lagt mikið að
sér til að mennta börn sín. Þeir vilja ekki senda
þau út í lífið svo illa undir búin, að tæknin
hlaupi frá þeim og skilji þau eftir í tekjulægstu
störfunum. Þess vegna mun þjóðin vænta þess, að
haldið verði áfram á þeirri braut, sem ríkisstjóm-
in hefur farið síðustu ár. íslendingar mega ekki
dragast aftur úr á sviði almennrar menntunar,
tæknimenntunar eða háskólanáms.
SMUBSTÖÐIN
Ssefún! 4 - Sími 16~2~27
BflUna ar B&iuðar OJótt « rA
Setlma •Uu’ tocmuUr •CamnoUa
AF TILEFNI btéfs um drykkju-
skap og ölæði í flugvélum hafa
rnenh komið' að máli við mig og
viljað leiðrétta. Bréfið, sem ég
birti, var skrifað af tilefni flug-
ferðar frá Akureyri, en í þeirri
ferð kvaff svo rammt að drykkiju-
skap að til vandrseða horfði. Um
isama leyti var gerð tilraun til að
efna til hópferðar tað norffan til
Surtseyjar, en sú hópferff fórst
fyrir. Bréfritarinn virðist hafa rugl
að þessu saman. Annars mun bréf-
ritarinn hafa einnig stuðst við frá
sögn í blaðinu Dagur, sem reynd-
ist líka röng.
ÞAÐ SANNA í ÞESSU máli virð
ist verá þetta. Reynt var >af efna
til nefndrar hópferðar, en það mis
tókst. Hvorki ferðaskrifstofa á Ak-
ureyri né nokkur annar 'aðili átti
hlut að máli i þeirri ferð, sem far
in var. í þessari ferð varð mikill
drykkjuskapur. Farþegarnir munu
hafa verið undir áhrifum, er lagt
var af stað, en þó ekki svo áber-
andi, .að þeim væri vísað frá. Ekki
er annað sjáanlegt en að þeir
hafi haft eitthvað með sér, því að
sumir að minnsta kosti, urðu varla
ferðafærir á leiðinni.
FLUGFELAGH) VEITIR alls
ekki vín í innanlandsferðum, og
það er regia þess, að vísa áber-
andi ölvuðum farþegum frá þegar
lagt er af stað. Hvort tveggja er
þetta rétt og sjálfsagt, en ég
mundi vilja bæta því við , að und-
ir vissum kringumstæðum, þegar
öivun verður áber.andi, er rétt að
snúa við og skila þeim brotlegi'
aftur til sama lands. Ölvun
Sérstætt
eins og yðar
eigið
fingrafat.
E.TH.MATHIESEN h.f.
LAUGAVEG 178 - SÍMI 36 5 70
: s
ic Ölæði í flugvélum.
+ Hópferð, sem ekki var farin.
{ ic Vandræði í flugvél á leið að norðan.
ic Engar vínveitingar í innanlandsflugi.
mimmiimmimiiiiHiumiiimmmimiiiimmmiiimm
oftast hættuleg, en gera má ráð
fyrir að aldrei sé liun eins for-
kastanleg óg á flugi.
ALL MIKIÐ HEFUR verið rætt
um vinveitingar flugfélaganna á
millilandaflugi. Þetta mun vera
siður í öllum löndum, en vitanlega
er þess gætt, að ekki séu veiting-
ar að neinu ráði. Ég hef all oft
flogið milli landa, og ég hef ekki
getað séð, að veitingar flugfélag-
anna gætu komið verulega að sök.
Þar hefur allt verið í liófi og allir
gætt sóma síns eins og frekast
verður á kosið.
EN ÉG HEF tekið eftir því, að
þeir, sem þannig eru gerðir, að
iimiimiiiiimimiiiiiiiiiHiiimiimimiiiii4*,'.iiiiimiililll*i
þeim nægir ekki staupið eða tvö
staupin, sem veitt eru, vilja leita
til pelans eftir að sala byrjar, effi
menn geta keypt einn eða tvo
pela áður en komið -er inn í land
helgina, og þá er hætta á ferðum.
Stundum hafa þessir menn, seiffi
eru sára fáir, verið alveg á tak-
mörkunum, þannig að dómgreind
in hefur sljóvgast, svo að liegðun
þeirra hefur ekki orðið eins og
hún á *að vera.
ÉG VILDI leiðrétta bréfritara
minn um þepa mál, þó að bréf
hans fæli í sér missagnir, áttu á-
bendingar hans erindi við almenffi
ing — og þessi mál er sjálfsagt aV
ræða.
Flugvirkjanemar
LOFTLEIÐIR H.F. hafa I hyggju aö aðstoða nokkra pilta
til flugvirkjanáms í Bandaríkjunum snemma á næsta ári.
Nauðsynlegrt er að umsækjendur séu fullra 18 ára, hafi
gagnfræðapróf, landspróf eða hliðstæða menntun.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félagsins, Uækjar-
götu, Reykjavík og hjá umboðsmönnum félagsins út á
landi.
Umsóknir ásamt afriti af prófskírteinum skulu hafa bor-
izt ráningardeild félagsins fyrir 1. nóvember n.k.
Flugvirkjanemar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS H.F. hefur í hyggju að aðstoða
nokkra pilta til flugvirkjanáms í Bandaríkjunum snemma
á næsta ári.
Nauffsynlegt er aff umsækjendur séu fullra 18 ára, hafi
gagnfræðapróf, landspróf eða hliðstaæða menntun.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félagsins, Lækjar-
götu, Reykjavík og hjá umhoðsmönnum félagsins úti á
landi.
Umsóknir ásamt afriti af prófskírteinum skulu liafa bor-
Í7,t ráðningadeiid félagsins fyrir 1. nóvember n.k.
£ 13. október 1964 - ALÞÝÐUBLA9IÐ