Alþýðublaðið - 13.10.1964, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 13.10.1964, Qupperneq 3
v<r \ . ** . ÞRIR RUSSAR EINU MOSKVU, 12. október (NTB- Reuter). — Rússar náðu aftur tals verðu forskoti fram yfir Banda ríkjamenn í dagr, þegrar geimfari méð þrem mönnum var skotið á braut í mestu jarðfirð, sem mann að greimfar hefur komizt í. í kvöld hermdi fréttastofan Tass, að öll áhöfnin og' tæki geimfarsins störfuðu með eðlilegairo luetti. Sagt var, að ferðin stæði senni- lega í viku, en þetta er óstaðfest af opinberri hálfu. Geimfarinu „Voskhod“, sem þýð Heybruni fyrir norban Reykjavík, 12. okt. ÓTJ. UM 75 hestar af heyi voru rifnir út ur brennandi hlöðu, að Lóma- tjörn I Höfðahverfi, snemma í morgrun. Árrisull nágrannabóndi Sá reyk leggja úr hlöðunni, og liraðaði sér á vettvang til þess að feera aðvart. • Skömmu seinna dreif að mann- f jölda af næstu bæjum,og var unn- ið af miklu kappi við að moka brennandi heyinu út. Alþýðublað- ið átti tal við Sverri Guðmunds- son bónda að Lómatjörn, og sagð- ist hann ekki vera alveg viss um eldsupptökin. Sér þætti líklegast að ofhitnað hefði í hlöðunni, en það mælti þó á móti að hann hefði ekki orðið var við neinn óeðlileg- án hita í henni að undanfömu. — Sverrir sagði, að tjónið væri ekki mjög mikið. Þessir 75 hestar af heyi sem fleygt hefði verið út, yæri ekki svo illa farið, og vel mætti nýta mikið af því, ef veður liéldist gott. En ef rigndi, væri það strax ónýtt. Alls voru um 300 liestar af heyi í hlöðunni. Kona slasast í árekstri Reykjavík, 12. okt. - ÓTJ KONA skarst á andliti og fæti í hörkuárekstri milli jeppabifreið- ar og Vauxhallbifreiðar. á vega- mótum Keflavíkurvegar og Krýsu- víkurvegar, um hálf sex í gær. Jeppinn var að beygja inn á Keflavíkurveginn, í áttina til Hafn arfjarðar er Vauxhallbifreiðin, sem var að fara framúr, skall á hlið Jians af miklum krafti. Báðir bílarnir voru óökufærir, en enginn annar meiddist. ir sólarupprás á rússnesku, var skotið frá leynilegum skotstað kl. 07.30 að ísl. tíma í morgun. Þetta er sjötta mannaða geimfar Rússa, en hið fyrsta sem mannað er fleir um en einum geimfara. Opinber ti-lkynning, sem Tass birti um kl. 17 að ísl. tíma, var á þá leið, að áhöfnin hefði gert lífeðlisfræðilegar rannsóknir í þriðju og fjórðu hringílerðinni. Þegar geimfarið fór umhverfis jörðu í fjórða skipti snæddi áhöfn in hádegisverð. Öll tæki um boi’ð starfa eins og ráðgert hafði verið, og stöð- ugt er fylgzt með líðan áhafnar- innar frá geimstöðinni á jörðu niðri. Sovézka sjónvarpið hefur sýnt nokkrar myndir frá „Voskhod", og þar mátti greinilega hjá einn af áhöfninni, vísindamanninn Konstantin Feoktistov, hrista höf uðið. Hann gerði þetta sennilega samkvæmt þjálfunaráætluninni. Áhöfnin eru þessir menn: Vladi mir Komarov ofursti, 37 ára, vís- indamaðurinn Konstantin Feokti- stov, 38 ára, og Boris Jegorov læknir, 27 ára. Þetta er í fyrsta skipti sem menn, sem ekki eru geimfarar að atvinnu, stíga upp í geimfar. í hinni opinberu tilkynningu er ekkert sagt um skotstaðinn, en tal ið er að hann sé í Majkonur i Kazakstan. Ekkert er sagt um þunga geimfarsins eða eldflaug ina nema hvað hún sé af nýrri og öflugri gerð. Ekki er heldur sagt hve lengi ferðin muni standa — aðeins að hún verði löng. Sennilegt er talið í Moskvu, að ferðin standi í viku, sennilega lengur en fimm sólarhringa ferð Bykovskis fyrir 16 mánuðum, en hún var met. í Moskvu er bollalagt hvort ann að geimfar verði sent út í geim inn á morgun. Einnig er látið í það skína, að reynt verði að þessu sinni að láta einn þremeninganna yfirgefa 'geimfarið og ganga á því eða í lausu lofti. Einnig er orðrómur á kreiki um, að öðru geimfari verði skotið, að geimförin tvö hafi stefnumót í geimnum og að einhver þre- menningana í „Voskhod" gangi um borð í hitt geimfarið. f kvöld birti Tass frétt frá sér legum fréttaritara sínum í geim- stöðinni þar sem geimskotið átti sér stað. Hann segir, að þremenn ingarnir séu ekki klæddir geim- farabúningi eða geimhjálmi, að- eins venjulegum flugmanns- hjálmi. „Voskhod“ fer umhverfis jörð- FARI ina á 90 mínútum og fer 16 hring ferðir um jörðu á sólarhring. Mesta fjarlægð hans frá jörðu eru 409 km. og jarðnánd er 178 km. Sendir geimfarins notar bylgju- lengdinar 17.365 og 10.035 meg- arið. í sjónvarpsendingu frá ,Vosk- Framhald á 14. síðu Leifur heppni -sonur fslands UTANRIKISRAÐHERRA Guðmundur í. Guðmundsson hefur beðið sendifulltrúa Bandaríkjanna fyrir skilaboð og kveðjur til utanríkisráð- herra Bandaríkjanna Dean Rusk í tilefni af minningardegi Leifsi heppna Eiríkssonar, 9. október, sem nú og framvegis hefur verið gerður að sérstök um hátíðardegi í Bandaríkjun um samkvæmt úrskurði Banda ríkjaforseta. í erindinu, sem utanríkisráð herra afhenti sendifulltrúanum í þessu tilefni segir meðal ann ars, að þessi úrskurður forseta Bandaríkjanna hafi vakið mikla athygli hjá íslendingum, sem telji sér það til gildis að hafa varðveitt í fornbókmennt- um sínum, frásagnirnar um ferðir Leifs heppna og fand Vínlands. Ennfremur segir, að þess sé líka minnst í sambandi við þennan hátíðardag með þí ltk- læti af hálfu íslenzku þjóðar- 'innar, að Bandaríkjaþing hafi árið 1930, í tilefni af Alþingis hátíðinni, sent íslendingum að gjöf myndastyttu af Leifi heppna með áletrun á fótstalli, þar sem tekið hafi verið sér- staklega fram, að það sé son- ur íslands Leifur Eiríksson, sem hafi fyrstur manna fund- ið Vínland. GRIMOND GETUR RÁÐIÐ ÚRSLITUM LONDON, 12. októmer (NTB- Reuter). — Frjálslyndi flokkur- inn .mun kannski ráða úrslitum um það, hvort mynduð verði Verka mannaflokks eða íhaldsstjórn í Bretlandi. Tæpum 72 klukkustund um fyrir brezku kosningarnar virð ast stóru flókkarnir tveir standa alljafnt að vígi. Leiðtogar stjórnarflokksins hafa varað við þeirri hættu, sem stafi af Frjálslynda flokknum. Frjálslyndi flokkurinn, sem hefur alls engar sigurlíkur, býður fram í helmingi hinha 630 kjördæma. Þingmenn fléstra þessara kjör- dæma eru íhaldsmenn. Sir Alec Douglas-Home forsæt- isráðherra og formaður íhalds- flokksins hafa lýst því yfir, að öflug sókn í síðustu lotu kosninga baráttunnar verði að tryggja flokknum þá kjósendur, er íhuga hvort þeir eiga að kjósa frjáls- lynda. Forsætisráðherrann sagði, að aðeins væri um tvær leiðir að velja, íhaldsstjórn eða jafnaðar- mannastjórn. Douglas-Home sagði, að ekki væri til nokkur þriðja leið. At- kvæði sem ekki væru greidd í- haldsmönnum kæmu jafnaðar- mönnum að notum. Jo Grimond, sem er leiðtogi Frjálslynda flokksins, hefur var að við baráttuaðferð íhaldsmanna, sem miði að því, að hræða fólk til að kjósa íhaldsmenn. Frjálslyndir, sem hafa sjö full trúa á þingi, bjóða fram í 40 þeirra kjördæma þar sem meiri- Framhald á 4. síðu. Perusala Lionsfélaga í Keflavík HIN árlega perusala Lionsklúbbs Keflavíkur verður í kvöld (þriðju daginn 13. okt.) Þá miuiu Lions- félagar ganga í hús í Keflavíh og bjóða ljósaperur af ýmsum stærð um á sanngjörnu verði. Er þetta liður í tekjuöflun klúbbsins vegna starfsemi hans, en liún bein- ist einkum að þvi að létta þeim stundir er dvelja á Elliheimilinu Hlévangi og sjúkrahúsinu í Kefla- vík. Að sjálfsögðu þurfa margir að kaupa Ijósaperur nú fyrir skamm degið. Menn skyldu því hafa í huga er þeir nú kaupa perur til að lýsa skammdegið, að með því að kaupa „Lionsperui’” geta þeir stuðlað að því að enn fleirl njóti þeirrar birtu, i ALÞÝÐÚBLAÐIÐ - 13. október 1964 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.