Alþýðublaðið - 13.10.1964, Page 4

Alþýðublaðið - 13.10.1964, Page 4
Ólafur Öyehas og Hulda Matlemark kona hans á heimili beina á Flateyri. Olafur hraktist i 2'J klst. a gúmbáti ásanit formanni sínum út af Vestfjörðum um helffina. Þrjú barna þeirra eru á myndinni, en jþað fjóröa vantar. Ólafur er norskur að kyni, en hefur verið búsettur á FlateyTi um árabil. Mynd: JV. Sökk á þremur mínútum Framh. af 1. síð'u. en ég komst út um gluggann bak- -tsorðsmegin og upp á stýrishús- ♦iliðina. Vélstjórinn var staddur í étjórnborðsgangi og varð undir ■"iíátnum þegar hann lagðist, en ■gat handlangað sig eftir stagi upp $ húsið til mín. Þrír menn voru -jframmi á síðunni og komust á ■4cjöl, en matsveinninn komst aldr- ei upp. Við vorum svo 5 á kilin- tim eitt augnablik, en þá reið yfir- ,ékkur alda og sópaði okkur öllum í sjóinn. Báturinn var sokkinn á samri stundu. Ég geri ráð fyrir að ekki liafi liðið nema 3 mínútur -irá því að báturinn lagðist og •ftangað til hann var horfinn í djúp- m. Við höfðum að sjálfsögðu aldrei tiaft neitt tóm til að kalla út og okkur tókst heldur ekki að nálg- ast gúmbátinn, sem bundinn var '5 stýrislnisþaki og nú svömluðum tið 5 í sjónum fleytitækjalausir. Mennirnir 3 hurfu mér fljótlega 'Og þegar við Ólafur vorum tveir ;eftir, sáum við að kista kom fljót- andi til okkar og tókst okkur að -éiá henni. í kistunni fundum við -«vo gúmbátinn og gátum blásið ♦tann út eftir illan leik, því vont var að eiga við liann svamlandi í sjónum. Við höfum verið 15 mín- útur á sundi í sjónum, áður en við komumst upp í bátinn. Við lágum svo allan daginn í bátnum og höfðum á okkur and- vara en sáum ekkert til skipa- ferða. Nú fór nóttin í hönd og þá varð vistin i bátnum ill. Honum hvolfdi 6 sinnum, en okkur tókst alltaf að rétta hann við aftur. Rekakkeri, sem báturinn var bú- inn, slitnaði strax frá okkur og rak því flatt fyrir vindi og sjó. Um morguninn klukkan 10 sáum við vitann á Látrabjargi'og togara á siglingu skömmu síðar. Við skut- , um upp neyðarblysum, en hann | hefur ekki tekið eftir okkur því hann hélt siglingunni áfram og hvarf. Þetta mun hafa verið þýzk- ; ur togari. Klukkan 3 í gærdag lieyrðum við svo í flugvél. Þar var komin landhelgisvélin SIF, en hún sá okkur ekki strax. Fyrst var hún of langt í burtu, og þegar liún kom í annað skiptið skutum við upp blysi, sem hún sá ekki. í þriðja skiptið sá ’hún okkur og .hring- sólaði yfir okkur þangað til brezki togarinn Loch Melfört kom á vettvang og tók okkur um borð. Þá var klukkan hálfníu um kvöld- ið. Klukkan 11 sótti Óðinn okkur um borð og fór með okkur beint hingað heim. Tekið var mjög vel á móti okkur um borð í brezka skipinu og sofnaði ég fljótlega. Þannig hljóðar frásögn Hannes- ar í stórum dráttum, en hann bætti því við, að ýmislegt mætti betur fara í gúmbátnum. T. d. mætti vera auðveldara að blása þá upp í sjó, matarfrágangur mætti vera betri Þeir sem fórust með Mumma ÍS 366 voru þessir; Hreinn Sigur- vinsson frá Ingjaldssandi í Ön- undarfirði, (18 ára Pálmi Guð- mundsson frá Flateyri, (57 ára), Þórir Jónsson Flateyri, (41 árs) og Martin Tausen, færeyskur mað- ur búsettur á Flateyri (59 ára). Hannes Oddsson formaður á Mumma er 24ra ára, nýkvæntur en barnlaus. Ólafur Öyehas er 26 ára, kvæntur og á 4 börn. Vb. Mummi var 54 tonn, smíðað ur í Keflavík árið 1946. Hann var áður í eigu Guðmundar á Rafn- kelsstöðum, en var keyptur til Flateyrar í haust. Þetta var ann- ar róðurinn á vertíðinni. llngir jaínaðarm. Frli. af 1. síðu. ar, Noregs og Danmörku. Æskulýðssamband jafnaðar- manna á Norðurlöndum mót- mælir við utanríkisráðherra Danmerkur, Noregs og Svíþjóð j ar tilraunum þeim, sem uppi eru til að draga úr ferðum ís- lenzka flugfélagsins Loftleiða til Skandinavíu. Sú staðreynd. að Loftleiðir hafa kosið að standa utan IATA, er að sjálf sögðu engan veginn fuilnægj- andi ástæða til mismunar gagn vart hinu íslenzku flugféjagi. , Að áliti Æskulvðssambands > jafnaðarmanna á Norðurlöndum orkar það ekki tvímælis, að •' Það eru fargjöld Loftleiða, • sem valdið hafa gremju innan c SAS og leitt til viðræðna við stjórnarvöld hlutaðeigandi ríkia. ■ Aðgerðirnar gegn Loftíeið- um hljóta að orka sem hnefa- högg í andlit allra þeirra, sem vinna að aukningu norræns samstarfs og samhugar. Æsku- lýðssamband jafnaðarmanna i Norðurlöndum væntir þess, að ríkisstjórnir Danmerkur, Nor etgs og Svíþjóðar láti ekki af- stöðu sína í þessu máli mótast af þröngum reksturshagfræðis sjónarmiðum. Skammsýn við- horf af því tagi mega ekki verða til hindrunar gagnkvænu trausti í samstarfi allra Norð- urlandsþjóða. Stokkhólmi (Osló, Kaup- mannahöfn). Æskulýðssamband jafnaðar- manna á Norgurlöndum. Ingvar Carlson (SSU, AUF, DSU) formaður. Til viðbótar má geta þess, að æskulýðssambandið mynda æskulýðssamtök jafnaðar- mannaflokkanna á Norðurlönd um. Eru það, auk Sambands ungra jafnaðarmanna, Sveriges Socialdemokratiska Ungdoms- förbund, Arbeidernes Ung- domsfylking í Noregi, Dan- marks socialdemokratiska Ung domsforbund og Socialidemo- kraattisen Nuorison Kesku- sliitto í Finnlandi. Skipta fé- lagsmenn sambandsins hundr- uðum þúsunda. Formaður þess, Ingvar Carlsson, var í síðustu kosningum kjörinn sem einn af þingmönnum Alþýðuflokks- ins fyrir Stokkhólm. Grímond Framh. af bls. 3. hluti íhaldsmanna er minni en 3.000 atkvæði. Formælendur Verkmannaflokks ins sögðu í dag, að lokasókn stjórn arflokksins væri örvæntingarfull tiiraun flokks, sem væri málefna laus. 20 ráðherrar íhaldsflokksins taka þátt í kosningabaráttunni þessa síðustu daga hennar. 4 13. október 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÁSVALLAGÖTU 69. SÍMI 2 15 15 og 2 15 16. KVÖLDSÍMI 3 36 87. TIL SÖLU: 2ja lierbergja íbúð á 1, hæð í Hlíðahverfi Hergbergi í risi fylgir, með sér snyrtingu. Góð ur staður. 3ja herbergja íbúð í nýlegu sam býlishúsi í Vesturbænum. 4ra herbergja nýleg íbúð í sam býlishúsi rétt við Hagatorg. Glæsilegur staður. 5 herbergja jarðhæð á Seltjarn- arnesi. Sjávarsýn. Allt sér. Fullgerð stóríbúð í austurbæn- um. 3-—4 svefnhvergi, stór stofa ásamt, eldhúsi og þvotta húsi á hæðinni. Hitasveita. TIL SÖLU í SMÍÐUM: 4ra herbergja mjög -glæsileg í- búð í sambýlishúsi í Vestur- bænum. Selst tilbúin undir tré verk og málningu, til afhend- ingar eftir Stuttan tíma. Frá bært útsýni, sér hitaveita. Sam eign fullgerð. 4ra herbergja íbúð á 4 hæð I nýju sambýlishúsi á Háaleitis- hverfi. Selst tilbúin undir tré- verk til afhendingar eftir stuttan tíma. Sér hiti. Mikið útsýni; Sameign fullgerð. FOKHELT einbýlishús á Flötun um- í Garðahreppi. 4 svefnher- bergi verða í húsinu, sem er óvenjuvel skipulagt. Stærð: ca. 180 ferm. með bílskúr. TIL SÖLU í GAMLA BÆNUM. 5 herbergja íbúð, ásamt % kjall- ara (tveggja herbergja íbúð) við Guðrúnargötu er til sölu. Hagstætt verð. Munlð að eignasklptl eru #f1 möguleg hjá okkur. Næg bílastæðl. BQaþjónust* m kaunendur. Fjárlög Framhald af 5. síðu. Þar kemur einnig nýr liður, launa- skattur, að upphæð 12 milljónir. Frumvarpið gerir ráð fyrir að rekstrartekjur og tekjur á 20. grein fjárlaga verði 10 milljónum króna hærri en útgjöldin án þess að hækka þurfi skatta eða tolla frá gildandi lögum. Tekju- og eignaskattur er áætl- aður 375 milljónir, en að óbreytt um lögum má ætla, að þessir skattar gætu reynzt 480500 millj- ónir á árinu 1965, en þessi upp- hæð er áætluð, þar sem verið er að vinna að endurskoðun laganna með það fyrir augum að hækka persónufrádrátt og gera ýmsar aðrar lagfæringar gjaldendum til hagsbóta. Aðflutningsgjöld eru áætluð 1533 milljónir, og áf þvi fær Jöfn unarsjóður sveitarfélaga 76.6 millj ónir. Eins og menn minnast voru £ þessu ári gerðar veigamiklar ráð- stafanir til stuðnings við sjávar- útveginn. Ríkissjóður greiddi 48 milljónir til framleiðniaukningar og endurbóta í sambandi við fram leiðslu freðfisks, 51 milljón til Aflatryggingarsjóðs vegna togara, 4 milljónir til fiskileitar i þágu togara, og 52.5 milljónir til upp bóta á ferskfiskverð og til Fisk- veiðasjóðs á móti útflutnings gjaldi af sjávarafurðum, 30 millj- ónir. Til að standa straum af þessu og hækkuðum greiðslum til al- mannatrygginga og niðurgreiðsl- um að upphæð 55 milljónir var söluskattur hækkaður um 214%. í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að þessar greiðslur hald- ist með nokkrum breytingum að undanskildu framlagi til fram- leiðsluaukningar í freðfiskiðnaði og uppbótum ferskfirskverð. Sfeinninn Frh. af 16. síðu. sem stóð við norð norð-vestur horn kirkjuunnar og ætlar að velta honum við og nota í upp fyllingu undir steypuna. Kem- ur þá í ljós, að letur var á stein inum, vel læsilegt. Lét hann Gísla kirkjuhaldara þegar vita af fundinum, sem við nánarl athugun sá að hér var um að ræða legstein Steinunnar Hall grímsdóttur. Tóku þeir stein- inn í geymslu og settu í hús. Þjóðminjaverði var tilkynnt um fundinn. Fjallað er um stéin þennan í gömlum skrifum, err síðast var vitað um hann árið 1820, þá fannst hann er verið var að end urbyggja kirkjuna sem þá var í Hvalsnesi. Síðan glatast hann aftur. Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi leitaði að legstein inum árið 1902 og síðar Matt- hías Þórðarson, en hvorugur fann hann. Áreiðanlega hafa þeir báðir gengið á honum því hann er búinn að liggja á livolfi fyrir utan kirkjudyrnar síðan hún var byggð fyrir 77 árum. Legsteinninn er gerður úr sléttri grásteinshellu, sem sennilega hefur legið fyrir of: an túnið í Hvalsnesi. Hann hef ur áður verið um 70 sm. á kant en höggvið hefur verið utan af honum, svo hann félli betur í hleðsluna sem hann var notað- ur í. Við þessar lagfæringar skemmdist letur steinsins nokk uð, en enn er vel læsilegt: STEINU . . HALLGRI... 164 .. . A ártalinu mótar fyrir síð- asta stafnum og er lítill vafi á að það mun vera 9. Talið er líklegt að séra Hall- grímur hafi sjálfur höggvið þennan stein. Hann þjónaði í •Hvalsnesi í 7 ár, frá 1644 til ‘51, ltefur Steinunn því bæði fæðst og látist þar, en hún var þriggja og hálfs árs gömul er hún dó. Var hún mjög efnilegt barn og tregaði faðir hennar liana mikið og orti eftir han? tvenn eftirmæli.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.