Alþýðublaðið - 13.10.1964, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 13.10.1964, Qupperneq 6
ÞEGAR hinn kunni, rússneski fiðluleikari, Ðavid Oistrakh, hugðist fyrir skemmstu ganga inn á veitingahús í París með fiðlukassann sinn undir hendinni, stöðvaði fatavörziukonan hann og sagði: „Hæ, það á að afhenda þetta hér!“ „En þetta er afardýrmæt fiðla“, sagði Oistrakh, „ég þori ekki að skilja hana við mig“. ,,. a, vio þekkjum nú svona históríur", sagði fatavarzlan. „I>egar þér eiuð kominn inn, byrjið þér að spila — og á eftir gangið þér svo mað hattinn milli borðanna og gestirnir Verða æfir. O strakh lét þá kalla á forstjórann — og þegar hann hafði gert sér ljóst, hvernig málið var vaxið, fékk Oistrakh að fara inn með fiðluna, og lék EKKI! — ★ — ;J>AÐ hefur komið reiðarslag yfir unga elskendur í París. Minnis- merkið, sem sýnir Alfred de Musset og skáldgyðjur hans er ef ti, vill ekki mesta listaverkið í heimi, en vegna stöðu sinnar hjá Comédie Francaise hefur það orðið að einum helzta stefnumótsstað ungra elskenda. Nú hefur menningarmálaráðherrann, André Malraux, ákveðið að höggmyndin skuli flutt á torgið hjá Galliera-safninu, sem ekki er : nærri því eins miðsvæðis og kómedíah. Og þegar kvartað er við : Malraux ypptir hann bara öxlum á sinn franska máta og segir: „Hvað munar um svolítið lengri leið, þegar maður er ástfang- . inn! Látið unga fólkið vita af því, að það sé ekki aðeins tryggt gagn- vart hvort öoru, helaur líka gagnvart skáldi ástarinnar, Alfred de Musset". — ★ — ÞEGAR de Gaulle hafði viðurkennt Rauða-Kína, komst allt kínverskt mjög í tízku í Frakklandi — líka nám í kín- : versku. Menn voru stoltir af, að einn mennta : skólinn hafði ráðið til sín ósvikinn, rauð- an Kínverja til að kenna málið. En nú er nýjabrumið farið af ást‘ inni: Ungfrú Ysia Tsen hefur sagt upp starfi sínu, af því að hún var lækkuð í launum. Ástæðan: Menntamálaráðuneytið hafði komist að bví, að hún hafði ekki tekið próf, sem gæfi henni rétt til að starfa við sömu kjör og hinir frönsku starfsbræður henn ar. Hún mótmælti og kvaðst hafa tekið sitt próf heima í Peking, og hún gæti alls ekki tekið það aftur í Frakklandi, þar eð ekki væri þar néinn til, sem gæti prófað hana. Þetta stoðaði eki. Skriffinnarnir sigruðu — og nú hverfur ung- frú Tsen rjóð heim til síns rauða föðurlands. — ★ — MEÐ sjálfvirkni, sagði svartsýnismaðurinn, er hægt að framleiða ffeiri óþarfa hluti hraðar en áður. — ★ — í FJÁRMÁLARÁÐHERRANN í Baden-Wiirttemberg, Muller að nafni,' var te.tinn fastur fyrir að keyra zig-zag og svo dæmdur í 1000 marka sekt fyrir ölvun við akstur og sviptur ökuleyfi í hálft ár. í réttinum hélt Muller því fram, að hann hefði aðeins ekið bíln- um, af því að um veigamikil embættiserindi hefði verið að ræða . . . en það var ekki tekið til greina! — ★ — HINN frægi belgíski rithöfundur Geörge Sim- enon (sá sem bjó til Maigret) sýndi þegar i æsku mikið hugmyndaflug. „Hvers Vegna fálla laufin af trjánum á haustin?" spurði kennarinn dag nokkurn. „Jú“, sagði George, „það er vegna þess, að tréin eru þreýtt og hátta, áður en þau fara að sofa“. I HVER TEKUR VIÐ AF DORIS DAY? 1 m Kvikmyndafélagið Universal jl Film, sem gætir Doris Day eins j| og sjáaldurs auga síns, vel m minnugt þess, að í henni á það gj leikkonu, sem örugglega skófl p ar alltaf inn peningum, gerir j sér nú ljóst, að ekkert stendur B að eilífu. Og hver á svo að taka |j við af Doris Day? Það mun § eiga að vera Sandra Dee, ef .. dæma má af hlutverkum þeim, P sem hún hefur fengið í kvik- Lj myndum upp á síðkastið: Þau É eru nákvæmlega eins og þau, jj sem Doris Day hefur alltaf þótt g hvað bezt í, ,a. m. k. síðan hún jj hætti svo til alveg að syngja í gj myndum. Og svo hefur Sandra g Dee líka erft sjálfan stjómand- jft ann Ross Hunter. En eins og jj menn hafa kannski gert sér ljóst þegar hefur Hunter þessi tvö ..spesíalitet" í kvikmynda- gerð: 1) hið tárvota melodrama, þar sem stjarnan gránar smám saman eftir því sem atburðirn- ir æða gegnum árin og áratug- ina, og haustgul blöð falla dap urlega í lokasenunni og þar sem Susan Hayward, eða jafn- vel Doris Day sjálf, Ieikur aðal hlutverkið, eða 2) gamanmynd- ina, sem leikin er í frábærlega óraunverulegu lúxus-umhverfi og aðalhlutverkið er leikið af Doris Day, vorum við næstum búnir að segja. Og hver tekur svo við? Það gerir Sandra Dee, einmitt. Og einmitt á næstunni fáum við að sjá hana í nýrri mynd Ross Hunters sem heitir ,Einum biðli of mikið“ og þar | er hún erfingi að svo miklum jj auði að afi hennar (Maurice 1 Chevalier) vísar á bug einum j biðli hennar sem hún telur af jj of góðum ættum og „á eins jj mikla peninga og við“, með -|j því að segja: „Það á enginn g eins mikla peninga og við g nema ríkið!“ Lítill vafi er á því að þessi mynd, sem er algjörlega laus jj við alla snertingu við hið al- 1 genga, raunverulega hvers jj dagslíf, hefur mikla möguleika ■ á að slá i gegn hjá kvikmynda- ' gestum um allan heim, sem fá 1 að fylgjast með millj.arðamær- jj ingalífi í Technicolor fyrir ör- 1 fáar krónur. Hyggst framleiða fræðslukvikmyndir Harold Macmillan, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, hefur á prjónunum áætlun um að fram- leiða fræðslukvikmyndir fýrir brezka skóla — m. ,a. kvikmynd um kynferðislífið. Hann skýrir fyr irætlanir sínar með því, að þegar framboð af kennurum sé svo lítið, að ekki sé hægt að uppfylla kröf- una um árangursríka kennslu „verði að beita öðrum og nýtízku- legri aðferðum“. Hann hyggst1 einnig framleiða myndir um sál- i fræði og önnur skólafög. VILLTA^VESTRIÐ KOMIÐ TIL SOVÉT „Villta vestrið" hélt innreið sína í Rússland fyrir . nokkrum dögum en með mestu ró og spekt þó. Bandaríkjamaður nokkur kom, á- | samt konu sinni og þrem dætrum, akandi inn í sovézka bæinn Brest, við landamæxú Póllands, í gömlum vagni af þeirrj gerð, er amerískir landnemar notuðu á sinni tíð. Fyr ir vagninum gengu tveir hestar, og í fárartæki þessu hefur Leon Gill is og fjölskylda hans ferðazt sam- tals yfir 7000 kílómetra. á síðustu þrem árum. Hann hefur farið þvert yfir Bandaríkin, um Mexico, Belgíu, Lúxemborg, Vestur-Þýzka land, Austurríki, Tékkóslóvakíu Framh. á 13. síðu. Kvikmynd um Múhameð soldán Kirk Douglas KOMIÐ hefur mjögr til grein?., að Kirk Ðougias leiki aðallilutverkið í kvikmynd, sem gera á um Múhameð soldán. Kvikmynd in á að heita: Svartur engill, — og stjórn- andinn verður Dino de Laurentiis. í kvik- myndinni verður fjallað um það, er Tyrk- irnir unnu Istanbul á sitt vald. Antliony Quinn á að leika Hustinian keisara, en aðal kvenhlutverkið verður annað hvort í hönd- um Övu Gardner eða Sorayu, fyrrverandi keisarafrúar, — ef hún stendur sig vel i kvikmyndinni, sem hún er að Ieika í núna, segir Laurentiís. 6 13. október 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.