Alþýðublaðið - 13.10.1964, Qupperneq 7
FALLEG BOK UM
ÞJÓÐSÖGUR
Eeykjavík, 12. okt. — ÓJ.
Bókaútgáfan Þjóðsaga í Reykja-
vík hefur gefið út bókfræðirit um
þjóðsögur. Skrá um íslenzkar þjóð
sögur og skyld rit, sem Steindór
Steindórsson frá Hlöðum hefur
tekið saman. Segir hann í for-
mála að skráin sé tekin saman
„höfundi sínum til skemmtunar
<>g bókaunnendum og bókasafnend
um til nokkurs hægðarauka", en
þar hafi hann tínt saman allt það
sem honum var kunnugt af ís-
lenzkum ritum um íslenzka þjóð-
trú og þjóðhætti. Meginheimild
Steindórs að skránni er einka-
bókasafn hans, en auk þess hef-
ur hann stuðzt við tiltækilegar
bókaskrár.
Skránni er skipt í eftirtalda 7
flokka: Þjóðsögur; sagnaþættir;
draumar og dulskynjanir; drauma
ráðningar; þjóðhættir, skemmtan
ir, rit um þjóðtrú; barnabækur; er-
lendar þýðingar íslenzkra þjóð-
sagna. Þá er í bókinni grein um
íslenzkar þjóðsögur á erlendum
máium eftir Þorstein Jósepsson,
og henni lýkur með nafnaskrá og
ritskrá.
Þetta mun vera fyrsta ritið um
bókfræði þóðsagna sem hér kem-
ur út, og verður það eflaust hand
hægt þjóðsagnasöfnurum og öðrum
áhugamönnum. Ástæða er til að
vekja athygli á frágangi bókarinn
ar sem er óvenjp vandaður og
smekklegur að hætti þessa for-
lags. En þjóðsaga mun gefa út
höfðinglegastar bækur á íslenzku
um þessar mundir, og er skemmst
að minnast útgáfu forlagsins á
Gráskinnu Sigurðar Nordals og
Þórbergs Þórðarsonar fyrir tveim
ur árum. Ritið er prentað og bund-
ið í Hólum, það er 70 bls. að
stærð.
Hinn 27. sept. sl. var stofnað á
ísafirði Félag byggingaverktaka á
Vestfjörðum. Að stofnun félags-
ins standa fimm iðngreinar, húsa-
DREGIÐ í 10.
FLOKKI HHÍ
Laugardaginn 10. október var
dregið í 10. flokki Happdrættis Há
skóla íslands. Dregnir voru 2.500
vinningar að fjárhæð 4.820.000 kr.
Hæsti vinningurinn, 200.000 kr.
kom á heilmiða númer 54.162.
Báðir heilmiðarnir voru seldir í
umboði Arndísar Þorvaldsdóttur,
Vesturgötu 10, Reykjavík. Eigandi
annars heilmiðans átti 25 heil-
miða í röð og fær því einnig báða
aukavinningana.
100.000 krónur komu einnig á
heilmiða, númer 47,948. Annar
heilmiðinn var seldur í umboði
Helga Sivertsen í Vesturveri, en
hinn í umboði Valdimars Long,
Hafnarfirði.
10.000 króna vinningar komu
á þessi númer:
3705 5224 6750 37843 10373
11734 12910 17948 18252 21767
22370 22457 24034 27517 29280
3021.3 37665 37712 37960 39133
39305 39666 40038 42426 45S.71
46029 46710 49033 ,51647 52614
53663 54131 54163 55975 57038
57273 58565 59208.
(Birt án ábyrgðar.)
smiðir, rafvirkjar, múrarar, pípu-
lagningamenn og málarar.
Tilgangur félagsins er, að efla
samvinnu meðai verktaka í bygg-
ingariðnaði á Vestfjörðum og
koma á sem mestu samræmi í <at-
vinnurekstri þessara aðila á fél-
agssvæðinu, að gæta hagsmuná
félaganna almennt, en þó sér-
staklega að því er snertir afstöðu
þeirra til verkkaupa og vinnu-
þiggjenda, að vinna, að því að
tryggja sem bezt vinnufrið, koma
í veg fyrir verkföll og verkbönn
með friðsamlegum samningum
vinnusala og vinnukaupa, standa
fyrir samningagerðum, þegar slíkt
þykir tiltækilegt, að. vera máls-
vari félagsmanna út á við og
vinna að aukinni menntun, verk-
kunnáttu og verkvöndun iðnstétt-
anna.
Stjórn félagsins skipa:
Daníel Kristjánsson, húsasmíða
meistari, ísafirði, formaður, Jón
Friðgeir EinarsSon, hússmiðam.,
Bolungarvík, ritari, Óli J. Sig-
mundsson, hússmíðameistari, ís^a-
firði, gjaldkeri Pétur Baldursson,
hússmíðameistari, Þingeyri og
Kjartan Guðmundsson, ísafirði.
í varastjórn voru kosnir:
Heimir Ingimarsson, hússmíða-
meistari, Bíldudal, Gunnar Leós-
son, pípulagningameistari, Bol-
ungavík, Barði Theódórsson, ráf-
virkjameistari,. Suðureyri, Jön
Þórðarson, Múrarame.istari, ÍSa-
firði, Jón Þ. Arason málarameist-
ari, Patreksfirði.
^IHHtHHHHHHHIHHHHHIHHHHIIIMHMMllMHHHHtHHHIIMIIHIIHIMIHIIIHHHHIHHHHIIIIIIHHHIIHHHIIHIIHIIHHIHIUHHHIHHHIIIIHHIHIIMUlHHHIIIHHHHHlHHHIH'HMIt
KEMUR PERON ÁFTUR?
EINS og menn muna kom til
talsverðra óeirða í bænum Cor
doba í Argentínu og raunar víð
ar þar í landi á meðan heim-
sókn de Gaulles Frakklandsfor
seta stóð. í Cordoba særðist
Ilea, forseti Argentínu af gler-
brotum, þar sem hann sat við
hliðina á de Gaulle í bíl á leið
um bæinn. Þessi ólæti beind-
ust ekki gegn de Gaulle, held-
ur voru ætluð til stuðnings hin
um fyrrverandi einræðisherra
Argentínu, Júan Perón. sém nú
dvelur landflótta á Spáni, — og
voru til stuðnings de Gaulle.
' „De Gaulle og Perón —sama
hjarta", hrópaði mannfjöldinn,
áður en lögreglunni tókst að
dreifa honum. Hversu de
Gaulle hefur líkað þetta, geta
menn haft sínar eigin hug-
myndir um, en alla vega kom í
ljós, að þeir, sem óttazt höfðu,
að koma hans til Argentínu
ipphp
mundi æsa upp aðgerðir per-
ónista, reyndust hafa rétt fyrir
sér. „Perón til baka", er hróp-
að æ m’eira í Argentínu um
þessar mundir.
Og í lúxusíbúð sinni í Mad-
rid segir einræðisherrann fyrr-
verandi: „Ég er búinn gfi pakka
niður. Það er hin argentlnska.
þjóð, sem. segja verður um,
hvenær og hvernig ég skuli
snúa til baka...“
Hin argentínska þjóð, eða
a. m. k. þær á >að gizka þrjár
milljónir velskipulagðra per-
ónista, sem i landinu eru, hef-
ur reynt að segja um það á
meðan á heimsókn de Gaull-
es hefur staðið.
Þeir hafa notfært sér þá
staðreynd, að franski forsetinn
er sjálfur hermaður, sem kom-
izt hefur til æðstu metorða, og
einráður maður, til þess að
leiða .athyglina að. hinum fyrr-
verandi einræðisherra.
Þeir hafa ekki dregið fjöður
yfir, að Perón sagði nýlega i
Madrid: „De Gaulle er maður
eftir mínum smekk. Stefna
hans í útanríkismálum er rétt,
hann er hinn sjálfkjörni leið-
togi hlautlausrar þriðju blakk-
>ar í heiminum, þar sem Suður
Ameríkuríkin eiga að taka sér
áberandi stöðu í framtíðinni“,
og að Perón hefur látið í það
skína, að það hafi verið liann,
sem upphaflega átti hugmynd-
ina að heimsókn de Gaullcs til
Suður-Ameríku.
i Argentínu hafa menn þegar
mánuðum saman strítt við
þessa. vandasömu spurningu:
Kemur Perón aftur — og hvern
ig gerist það?
Blöðin í Argentínu hafa
lagzt mjög fast gegn þessari
hugsun. „La Nacion" skrifaði
fyrir skemmstu, að Perón, sem
að eigin sögn hefur þá stefnu
að skapa á ný einingu í Argen
tínu, „gerði það bezt með því
að lialda sig burtu frá landi,
þar sem jafnvel skuggi hans
framkallar ofbeldi og innri
klofning.“ La Prerisa vísár til
síðustu orða Pcróns, áður en
hann várð-að hverfa úr landi:
„Sá, sem skapar uppreisn
gegn stjórnarskránnf og hinni
löglegu stjórn, á skilið að vera
drepinn . . . ”.
Annars hefur Ilea, forseti,
sjálfur sagt: „Það er undir Per
ón sjálfum komið, hvort hann
kemur aftur“. Argentínska her
stjórnin hefur ekkert sagt, —
en þegar allt’kemur til alls er
það hún, sem hefur síðasta orð
EAD'DE GAULLOND
ið. Hinar ofsalegu aðgerðir :
gegn stuðningsmönnum Peróns ;
i Crodóba benda til, að herinn
hafi ekki áhuga á, að einræðis ;
herrann „komi aftur“.
Meðal þeirra, sem handtekn-
ir voru í Cordóba, var maður,
sem gegnir ðallilutverki í tafl-
inu um hinn landflótta ein-
ræðisherra: Timoteo Vandor,
kallaður E1 Lobo (úlfurinn).
Þessi fyrrverandi undirfor-
ingi í flotanum, sem með for-
ustu í hinu perónistíska sam-
bandi málmiðnaðarmanna hef-
ur gerzt leiðtogi allrar pcrón-
ista-hreyfingarinnar eftir að
hafa steypt Framini, fyrrver-
andi formanni verkarnanna í ,
spunaiðnaðinum af stóli, sýndi
mátt sinn, þegar hann á sl. vori
kallaði tvær milljónir perónist-
ískra verkamanna út í verkfall
og lét þá jafnvel hertaka verk-
smiðjurnar. Fyrir nokkrum vik
um sat Vanor ásamt öðrum
perónistaleiðtogum á fundi
með Perón í Madrid.
Ösk Vandórs um að fá Per-
ón aftur þýðir ekki, að hann
óski eftir því, að hinn 69 ára
gamli Perón taki forustu per
ónistahreyfingarinnar. En Van
dor þarf á tákni (symbóli) að
halda, einingartákni, þar eð
perónistahreyfingin er klofin,
og hann óskar eftir að sam-
eina hana og styrkja fyrir
næstu kosningar.
Hann veit, að í Argentínu
bíða fjölmargar ákærur Pex-
óns — þar á meðal ákæra um
misnotkun á eignum ríkisins,
og önnur um að haf.a afvega-
leitt stúlku undir lögaldri. En
hann veit líka, að stjórn Ilea —
sem hefur við næstum óviðráð-
anlega efnahagsörðugleika að,
striða og óðaverðbólgu —
kynni að vera ekki ófús til að
leita stuðnings hinna perón-
isku verkalýðsfélaga, bæði:
végna þrýstings frá hægri —
hernum — og frá vinstri —
kommúnistum. En talið er, að
verkalýðsfélög þessi ráði énn
yfir um 3 milljónum af 21 anill-
jón íbúa Argentínu. - <\ ;
Það er djarft spil, sem hinh’
fangelsaði Vandor og hinn
landflótta Perón spila. í þéésui
Framhald á 13. síðu
4JII 11111111111111111111111111111111 ■MMMMIMIIIIMMMMIMIlÍMIMIMMMIMMIIMMMMIIMIMinMMIMMIIIIIMMMIIMMMMIIIIIIMIIIIIIIIMIIMIIMMMIIMMMMIIIIMMIIIMIMIMIIIIIIIIIIMIIIMItU
Lögreglan í Argentínu reynir að dreifa mannfjöldanum meðau
á heimsókn Ðe Gaulle stendur.
ALÞÝÐUBLÁÐIÐ - 13. október 1964 ^