Alþýðublaðið - 10.12.1964, Qupperneq 2
Rltstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedlkt Gröndal. — Fréttastjórl;
Arni Gunnarsson. — Bitstjórnarfulltrúi: Eiöur GuSnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasimi: 14906. — ASsetun AlþýSuhúsiB viB
Hverfisgötu, Reykjavík. — PrentsmlSja AlþýSublaSsins. — Áskrirtargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 elntakiS. — Útgefandi: Alþýðufiokkurínn.
Eftir kalda sfríðið
HEIMSFRÉTTIR segja frá erfiðleikum innan
Atlantshafsbandalagsins um þessar mundir. Geng-
ur aðildarríkjum illa að koma sér saman um mikil-
væg atriði eins og hinn fyrirhugaða kjarnorku-
flota. Eru þetta höfuðvandamál á Vesturlöndum,
að vísu ekki eins hættuleg og ýmsir vilja vera
láta, en þó er nauðsynlegt að skilja orsakir þeirra.
Þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað, voru
þjóðir Vestur-Evrópu í sárum eftir ófriðinn og
hugsuðu um það eitt að endurreisa borgir og at-
vinnuvegi. Bandaríkin voru hinn sterki aðili, sem
hafði kjamorkuvopnið í sínum höndum og alla
forustu í varnarmálum. Létu Evrópuþjóðir banda-
lagsins sér það vel líka.
'Síðustu fimmtán ár hafa verið ár viðreisnar
í Evrópu. Þar ríkir velmegun og flest ytri sár
ófriðar eru löngu gróin. Vinátta er milli fornra
fjandmanna eins og Þjóðverja og Frakka, og ný
kynslóð leitar að nýrri stöðu fyrir lönd sín og
hina frjálsu Evrópu alla.
Þessi breyting hefur valdið því, að Evrópu-
þjóðir gerast sjálfstæðari gagnvart Bandaríkjun-
um í vamarmálum en áður og sætta sig ekki leng-
ur við, að stjóm þeirra mála sé öll í Hvíta húsinu.
Þess vegna komu Frakkar upp eigin kjarnorku-
vopnum og Þjóðverjum finnst sér misboðið, ef þeir
ekki geta staðið Frökkum jafnfætis. Bandaríkja-
anenn gerðu tillöguna um kjamorkuflota til að
veita Þjóðverjum og öðrum Evrópuþjóðum hlut-
deild í kj arnorkuvopnum, án þess beinlínis að
fleiri þjóðir fengju slík vopn alveg í hendur.
Þannig eru hinar sögulegu orsakir þeirra deilu
mála, sem uppi eru innan Atlantshafsbandalags-
ins. Sams konar þróun hefur orðið í Austur-
Evrópu, þar sem leppríki Rússa hafa með vaxandi
velmegun sýnt aukið sjálfstæði og reynt að fara
sínar leiðir í ýmsum málum. Kveður svo rammt
að þessu, að hæpið er að tala um kommúnistaríkin
sem eina, órjúfandi heild í öllum málum.
Þrátt fyrir vandamál innan Atlantshafsbanda-
lagsins er öruggt, að varnarmáttur bandalagsins
er enn meira en nægur til að gegna hlutverki sínu,
og bandalagsþjóðirnar mundu standa saman, ef á
einhverja þeirra yrði ráðizt. Þess er hollt að minn-
ast, að de Gaulle varð fyrstur manna til að lýsa
yfir skilyrðislausum stuðningi við Bandaríkin, þeg-
ar kjarnorkustyrjöld vofði yfir út af Kúbu. Þá
hurfu Önnur deilumál fljótt í skuggann.
Öll eru þessi mál merki breyttra tíma austan
og vestan járntjalds. Sem betur fer reyndist heim-
ur kalda stríðsins ekki til frambúðar, og nú er um
það teflt frá Moskvu til Washington, hvað við taki
næstu áratugi.
Bjarnaborg og turninn á Dómkirkjunni
ÞRISVAR SINNUM á þessu ári
hef ég minnst á Bjarnaborg' fjöl-
býlishús borgarinnar. Bjarni Jóns-
son, einn af helztu framfaramönn-
um bæjarins, byggði það 1902, en
hann byggði upppundir 150 hús í
Reykjavík á sínum tíma, var ákaf-
ur heimastjórnarmaður og fátækra
fulltrúi um skeið, hafði Iánstraust
á bankanum, en var útilokaður frá
honum, þegar Sjálfstæðisflokkur-
inn náði tökum á peningastofnun-
inni í gamla daga, og voru það
hefndir og allt fór um koll hjá
Bjarna, enda hafði hann og haft
býtti á húsum í Reykjavík fyrir
jarðir, hélt að jarðirnar væru ör-
uggastar.
BJARNI VAR STÓRHUGA mað
ur eins og sést á Bjarnaborg, því
að enn er hún að ytra útliti, það
er að segja, þegar henni er vel
við iialdið, eitt af veglegustu hús-
unum í borginni. En á viðhaldið
hefur viljað skorta, enda býr þarna
yfirleitt fátækt fólk. Þegar Bjarni
byggði húsið tók hann úpp það
nýmæli að reisa skúrbyggingar og
stúka þær af svo að hver íbúi
fengi sina geymslu. Ekki hafðit ver
ið hróflað við þessum skúrum í
portinu í 63 ár og var hörmulegt
um að litast.
ÉG SKRIFAÐI um þetta og inn-
an tíðar var skrapað svolítið til
og riflð í sundur, en aðeins það,
sem blasti við augum þeirra, sem
fóru um Hverfisgötu. Nú er búið
að loka portinu og skulum við
vona að eitthvað sé verið að laga
til, Þá er búið að mála Bjarnaborg'
og lagfæra glugga, svo að nú er
hún spariklædd.
ÉG SÁ ALDRAÐAN son Bjarna,
listrænan mann og eldhuga, vera
að skoða húsið einn daginn og var
hann með myndavél, langar víst
til að taka myndir af húsinu I spart
fötunum, en liann er áhugasamur
ljósmyndaTi, listmálari, mynd-
höggvari, ferðalangur — og tré-
smiður. Hann sendir mér eftirfar-
andi línur um turninn á DómkirkJ-
unni:
J. B. SKRIFAR: „Mér hefir þótt
vera furðu hljótt um Dómkirkju-
turninn. Það er mál, sem ég vildl
lítillega ræða við þig, Hannes
minn. Ég held mig bresti nú þol-
inmæði til að þegja öllu lengur.
Hann er nú búinn að standa frfi
því fyrstá, og að mínum dómi al-
drei verið reisulegur, og er leitt
til 'þess að. vita, þar sem kirkjan
sjálf er mjög falleg.
ER NÚ EKKI KOMINN tími tll
að fara að skoða hug sinn um
breytingu á turninum? Til er hia
Framliald á 5. síðu.
KEFLVÍKINGUR, FYRSTA SKIP AF10
SEM SAMIÐ HEFUR VERIÐ UM SMlÐI Á
Reykjavík, 7. nóv. - ÁG
KEFLVÍKINGUR heitir nýr bátur,
sem k'om til Reykjavíkur um helg-
ina. Er hann einn af 10 bátum,
sem samið var við Austur-Þjóð-
verja um smíði á. Bátarnir verða
smíðaðis hjá Veb Elbe-Werft í
Austur-Þýzkalandi. Desa hf. hefur
annast samninga um kaup skip-
anna, en kaupendur þeirra eru út-
gerðarfyrirtæki á eftirtöldum
stöðum: Akranesi, Eskifirði, Hnífs-
dal, Ilúsavík, Keflavik, Neskaup-
stað, Rcykjavík, Seyðisfirði og
Vestmannaeyjum.
Skipin verða afhent á tíma-
bilinu nóvcmber 1964 til apríl
1965. Tveir aðrir bátar eru vænt-
anlegir innan skamms, Halkion,
sem fer til Vestmannaeyja og
Krossancs, sem fer til Eskifjarðar.
Keflvíkingur er fyrsta skipið af
þessum hópi. Er það eign fyrir-
tækisins Keflavík hf. Skipstjóri er
Einar Guðmundsson, sem áður var
með Hilmi II. í viðtali við frétta-
menn á laugardag, sagði hann, að ;
þeir hefðu lent í mjög slæmu veðri I
á leiðinni lieim, og orðið að lóna
við Færeyjar. Hefði Keflvíkingur
þá reynst liið bezta sjóskip.
Keflvíkingur er 260 rúmlestir,
búinn 660 ha. Lister-aðalvél og
tveimur 62 ha. hjálparvélum. í
skipinu eru 2 Simrad síldarleitar-
tæki frá Simonsen Radio A/S í
Noregi. Annað þeirra er af nýrri
gerð, og getur leitað á mun stærra
svæði en þau tæki, sem notuð hafa
verið til þessa. í skipinu er „hydr-
auliskur krani fyrir kraftblokkina.
Krana þennan hafa Rapp Fabrik-
ker A/S í Noregi smíðað, og er
Keflvíkingur fyrsta íslenzka fiski-
skipið, sem hefur slíkan krana,
Ganghraði Keflvíkings reyndist
10.6 mílur. Hann mun geta boriO
um 1800 mál af síld. Kostnaðue
við smíði skipsins var um
millj. krónur.
Skipin 10 verða öll smíðuð eftÍE
sömu teikningunnl. Skipaskoðun*
arstjóri, Hjálmar R. Bárðarso*
skýrði fréttamönnum frá þvi, aO
við smíðina væri farið eftir ölluns
Framhald á 5. síðu.
2 10. des. 1964 - ALÞÝ0UBLA0IÐ