Alþýðublaðið - 10.12.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 10.12.1964, Blaðsíða 16
Ofan gefur snjó á snjó. ,., | í GÆR var hið fegursta vetrarveður í höfuðstaðnum og víðar um land, stafalogn og snjómugga öðru hverju. Talsverð- ur snjór er nú á götuin í Reykjavík, bifreiðaeigendum til ama og aukins erfiðis, en börnunum til mikillar blessunar, Ljósmynd ari blaðsins brá sér í gær í ofurlítinn leiðangur um bæinn og tók nokkrar stemningsmyndir af vetrarríkinu. Tvær þeirra fyigja þessum línum. (Myndi: J. V,) Nýtt prófessorsembætt.i Reykjavík, 9. des. - EG Í'DAG var lagt fram á Alþingi nýtt Étjórnarfrumvarp, er gerir ráð fyr- íf stofnun nýs prófessorsembætt- •is við læknadeild Háskóla íslands. Er hér um að ræða' embætti ipvófessors í lífeðlisfræði. í ÍCT ára áætlun um fjölgun prófessora við Háskóla íslands er gert ráð fyrir, að fjölgað verði um eitt embætti í læknisfræði á þessu ári, og- er það ósk deildarinnar, að þetta embætti verði í lífeðlisfræði( Framhald á 4. síðu < Hitaveitukerfi var eyðilagt Reykjavík 9. des. OTJ. TUGÞÚSUNDA króna tjón varð. er einhverjir illa innrættir náung ar skrúfuðu fyrir hitaveitulögn í hús vlð Suðurlandsbraut. Þorgrímur Þorgrímsson, eigandi hússins númer 6 við Suðurlands- braut kærði um helgina til lög- reglunnar yfij- iþví að skrúfað hafði verið fyrir hitaveituleiðslu sem liggur inn í húsið, en þar er fyrirtæki í hans eigu. Afleiðing varð svo sú, að hitunarkerfin á þremur hæðum, sprungu og eyði- lögðust. Leifur Jónsson, hjá rann sóknarlögreglunni, tjáði Alþýðu- blaðinu að þetta væri í þriðja Framhald á 13. síðu 6000 KG. AF JURTA- SMJÖRLÍKI Á 2 DÖGUM Reykjavik, 9 des. OÓ. SALAN á nýja jurtasmjörlík- inu hefur gengið mjög vel þá tvo daga sem það hefur verið á markaði. í gær og í dag voru seld í verzlanir rúm 6 þús. kg. Búazt verður við að þetta sé mik- ið meira en eðlileg sala, vegna þess að verið er að birgja verzl- anirnar upp, og auðvitað verða allar húsmæður að kaupa nýja smjörlikið til reynslu. Alþýðublaðið hafði í dag sam- band við afgreiðslu smjörlíkis- gerðanna til að afia upplýsinga um sölu og viðtökur á jurtasmjör líkinu. Virðist það lika vel, en svona mikilli sölu er ekki hægt að anna til langframa, því þá liefðu vélarn ar ekki undan. En undanfarið lief ur verið unnið allan sólarhring- inn við smjisrlíklisframleiðslu, bæði við jurtasmjörlíkið og eldri gerðir. En desember hefur ávallt verið mesti annamánuður við framleiðsluna, því ekki er það f.ítið sem þær þurfa í jólabakstur inn, blessaðar húsmæðurnar. Verðið á jurtasmjörlíkinu er kr. 48.00 kg. Til samanburðar má geta þess að aðrar tegundir af smjörlíki kostá 17.80 kr. kg. og er það niðurgreitt, en smjör kostar niðurgreitt kr. 90.00 kílóið. Fimmtudagur 10. desember 1964 WWHWWWWWMWWWWM Leitð samninga ^eykjavík, 9. des. - ÁG TVEIR menn frá Sölumið-. stöð liraðfrystihúsanna og SÍS, eru nú farnir til Rúss- Iands til að leita samninga. um sölu þangaö á freðfiski. Mennirnir eru Árni Finn- björnsson, sölustjóri hjá SH og Bjarni Magnússon, fram- kvæmdastjóri sjávarafurða- deildar SÍS. Munu þeir eiga viðræður við fulltrúa Prodin- torg. Er þetta sá tími á árinu, er samningaumleitanir um söiu á frystum fiski fara venju- Iega fram. wwwwwwwwwwwwwwwa Banaslys í Kefla vík í fyrrinóft Reykjav ík, 9. des. OTJ. KONA beið bana, og þrennt slasaðist í hörðum árekstri milli Volkswagenbifreiðar, og Volvo- vörubifreiðar í Keflavík í nótt. ' Vörubifreiðin ók eftir Vestur- braut, en hún var að koma úr Garði. Þegar hún kom að vega- mótum Vesturbrautar -og Hring brautar mætti hún Volkswagenbif reiðinni, sem var^á leið í Garð. Volkswagninn mun hafa runnið eitthvað til á veginum, með þeim afleiðingum að bifreiðarnar skullu saman. Kona ökumánnsins í litla bílnum beið þegar bana, og hann , slasaðist sjálfur nokkuð. Tveir far I þegar voru í aftursætinu, kona og | 10 ára dóttir hennar, og slösuðust þær einnig báðar, einkum þó litlá stúlkan. Ökumann vörubifreiðar- innar sakaði ekki. Önnur kona lést af völdum um- ferðarslyss í Landspítalanum sl. laugardag. Hún hét Karolína Guð- rún Jóhannsdóttir, til heimilis að Ljósvallagötu 16. Hún lenti í um ferðarslysi 10. nóv. sl. Var dæmdur í gær 112 ára fangelsi fyrir morðtiiraun Reykjavik, 9. des. ÁG. í DAG var kveðinn upp í Saka- dómi Reykjavíkur, dómur í máll Lárusar Stefánssonar, sem hinn "12. mai síðastliðinn, réðist á stútku að nafni Guðriður Erla, og veitti henni stórfellda áverka með hnífi í því skyni að ráða henni bana. Lárus var dæmdur í 12 ára fangelsi, en til frádráttar kemur gæzluvarðhaldsvist í 210 daga. Blaðinu barst í dag eftirfarandi frá sakadómi Reykjavíkur: 1) Sannað er með játningu á- kærðs og framburðum vitna, svo og af ummerkjum á vettvangi og áverkum Guðríðar Erlu, að ákærð ur réðst á hana að tilefnislausu og veitti henni stórfellda áverka með hníf í því skyni að ráða henni bana og virðist hending ein hafa ráðið, að honum varð ekkl áð ætlan sinni. — Ákærður fór lieim til Guðríðar Erlu með þeim ásetningi, að svipta hana lífi, ef hún félllst ekki á að koma með honum norður í land. Sam- kvæmt þessu hefur ákærður gerzt brotlegur við 211. gr. sbr. 20. gr. ,1. mgr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 2.) Sannað er með framburði ákærðs og vitna, að ákærður slö til Þóréyjar Guðmundsdóttur, er hann mætti henni á'leið út úr hús- inu að aflokinni árásinni á Guð- ríði Erlu. Hlaut hún af því áverka þá í andiit, sem áður greinir, en eigi eru þeir svo alvardegir að þeir Framhald á 4. síðn Alþýðuflokksíélag Reykjavíktir heldur spilakvöld annaS kvöld (föstu dag) klukkan 8,30 í Iðnó. Húsið er opnað klukkan 8. Sameiginleg kaffi drykkja og dans á eftir. Sigvaldi Hjálmarsson talar um Indland. Félags menn eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.