Skólablaðið - 01.07.1910, Blaðsíða 10

Skólablaðið - 01.07.1910, Blaðsíða 10
106 SKÓLABLAÐIÐ ekki sem hentugastur, sakir prófs í mentaskólanum; nokkrir kenn- arar farnir til Stockhólmsfundarins og aðrir að búast til farar þangað næsta dag. . Biskup var hindraður af lasleika, svo að fyrirestur um kristin fræði var ekki fluttur á fundinum. Félagssjóðurinn var samkvæmt framlögðum, endurskoðuðum reikningi kr. 163.60. Svo mikið skarð hefur útgáfa »SkóIablaðs- ins« síðastliðið ár höggið í hann; fundurinn fal stjórn félagsins að taka ákvörðun um útgáfu blaðsins eftirleiðis. — Fjórtán menn og konur gerðust félagar á fundinum. Eru félagar þá 103; bað hafa þeir orðið flestir. Jónas Jónsson kennari (frá Hriflu) hreyfði því, hvað gjöra mætti fyrir unglingana eftir að þeir færu úr barnaskólunum. Um það mál urðu langar og all fjörugar umræður, enda verður það að vera áhugamál kennarastéttarinnar, að þau fræ, sem þeir sá í barnaskólunum, þroskist sem lengst og best, og að bygt verði ofan á þann grundvöll, sem þar er lagður. Ýmsar leiðir voru nefndar, svo sem framhaldsnám í ung- lingaskólum, meiri og almennari verkleg kensla, handavinna. Treystu ræðumenn kennarastéttinni og unglingafélögunum til þess að hafa þetta nauðsynjamál í huga, og vinna að því á einhvern hátt að unglingar ættu þess kost að taka sér fram eftir skóla- skyldu-aldurinn. Engin ályktun var tekin. Minst var á stofnun kennarafélaga víðsvegar á landinu; undirtektir undir það höfðu orði* fremur daufar, þar sem því hafði verið hreyft. Erfiðleikar á að sækja fundi, og áhugi kenn- arastéttarinnar að svo stöddu ekki svo vakandi sem skyldi. Ein fjögur munu hafa verið stofnuð síðustu ár, en lítið um funda- höld í þeim, og dauft yfir þeim öllum. — Aftur á móti hefir þeim kennurum fjölgað að mun, sem kaupa »Skólablaðið«, og er það gleðilegur vottur þess, að kenn- arastéttin vilji þó kynnast því, sem hugsað er og ritað um kenstumál.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.