Skólablaðið - 01.09.1910, Blaðsíða 5
SKÓLABLAÐIÐ 133
tímann Jónas minn. Þér hafið að Iíkindum aldrei lesið neitt um
Ivar Hölm hirðstjóra og næstu hirðstjóra þar á eftir. Ivar þessi
leígði alla verslun landsins um þriggja ára tíma (1354). — Þá
var hrein einokun hér á landi og svo var til 1361 eða jafnvel
lengúr. Frá þessu er skýrt í bók minni á bls. 301—2. — Þér
hafið náttúrlegá eigi lesið þann kafla.
Skrif yðar Jónas minn sýnir, að þér enn eigi þekkið nógu
vel takmörk yðar.
Hvítárbakka 15. júlí 1910.
Sigurður Þórólfsson.
Smágreinar um uppeldi.
(Eftir Guðmund Hjaitason.)
VI.
Kennlð bðrnum að vera góð við dýrin !
1.
Börn eiga að elska náltúrulífið, og þá ekki síst það nátt-
úrulíf sem næst oss stendur. Og dýrin, einkum alidýrin, standa
oss næst af því. Sum börn eru að upplagi mjög góð við dýr,
hafa til dæmis oft feikna dálæti á hundum og köttuni. Og það
svo mikið, að sumum, einkum sumu eldna fólki, þótti nóg um.
Altaf man eg tvo gamla góða bændur, er komu að pilti, sem
lét mestu vinalátuni við kött »Ljótt er að sjá til þín strákur;
þú lætur eins við köttinn eins og það væri barn,« sagði annar
bóndinn. En hinn svaraði: »ljótara er að sjá þegar krakkar eru
að kvelja kvikindin.*
Já þetta er hverju orði sannara, sem seinni bóndinn sagði.
Verið getur nú að sumir, bæði fullorðnir og böm, hafi • stund-
Um vel mikið dálæti, til dæmis á hundum. Ber þó meir á slíku
utanlands en hér á landi. En dálæti það er þó smá yfirsjón í
samanburði við illa meðferð á dýrum eða misþyrming á nokkru
dýri, þó ekki sé nema mús eða padda. A því eins að banna
bör.num að fara illa með þessi dýr.
Eg nian lika vel eftir hvað piltur einn —
eitthvað 12—-14