Skólablaðið - 01.09.1910, Blaðsíða 8
136
SKÓLABLAÐIÐ
Vitaskuld er það ekki allra meðfæri að rita fyrir æskulýðinn.
Síður en svo. En Skovgaard-Petersen lætur sú list. Bækur hans
eru þess eðlis, að þær »qppbyggja« í orðsins bestu merkingu,
auðga andann, fræða og leiðbeina, og eru um leið skemtilegar.
Svo er og farið »Bók æskunnar«. Hún er í besta skilningi
uppbyggiltg bók, hefur mikinn fróðleik að geyma og margar
nytsamar leiðbeiningar, ekki aðeins fyrir æskulýðinn sjálfan, heldur
og fyrir hina eldri, sem eiga að leiðbeina honum, en brestur svo
oft skilning á hinum margvíslegu umbrotum í sálarlífi æsku-
lýðsins. Eins og allar bækur þessa höfundar er »Bók æskunnar«
auðug að dæmum úr lífinu hér, fyrst og fremst úr æskulífi ýmsra
þeirra manna, sem seinna urðu forgöngumenn í lífi þjóðanna.
Hér er ekkert skýjafálm fyrir ofan og utan hið virkilega líf;
höfundurinn heldur sér við jörðina — við lífið eins og það nú
einu sinni er og æskumaðurinn á fyrir hendi að kynnast því.
En þó bendir »Bók æskunnar« jafnframt öll upp á við. Hm
afarheilbrigða kristilega lífsskoðun höfundarins gægist hvervetna
fram.
Mætti »bók æskunnar* verða vel tekið af æsku þessa lands!
f H.
Skýrsla um bændaskólann á Hólum 1
Hjaltadal 1907—’IO.
Á þessum árum hafa 76 piltar gengið í skólann. Kennara-
skifti hafa ekki orðið. 18 eru þær alls nátnsgreinarnar, sem
kendar eru. Kenslan mest með fyrirlestrum; bækur þó lesnar,
Heimilt er þeim nemendum, sem vilja, að taka próf að afloknu
námi. Þá heimild notuðu 10 piltar 1909 og 11 í ár.
Sakir ónógs húsrúms hafa hin fyrirhuguðu styttri námskeið
ekki verið haldin, nema 1908—9. Það stóð frá 22. marts til 3.
apríl. Ýmislegt er það fleira, skólahaldinu til bóta, og skólanum
til þrifa, sem orðið hefur á hakanum sakir rúmleysis eða lélegs
húsnæðis. En úr þessu bætist, sem betur fer, von bráðara, er
hið nýja skólahús verður reist.
Bændafundur var haldinn í ár að Hólum. Sóttu liann 12
bændur úr Akrahreppi í Skagafirði; en öllum bændum úr þeim
hreppi hafði verið boðið til fundarins. Fundurinn stóð 17. — 1 y.