Skólablaðið - 01.12.1910, Side 3
SKÓLABLAÐIÐ
179
alúð og dugnaði. Gömlu Rómverjar sögðu: >Þú skalt lifa
fyrir annan, ef þú vilt lifa fyrir sjálfan þig". Þeir höfðu þegar
séð, að þetta var lögmál lífsir.s. Undarlegt lögmálh Meðafi vér
hugsum alt eða mest um oss sjálfa, að oss líði ve’, hvað sem
öðrum líður, þá líði oss aldrei vel! En ef vér hættum því og
förum að hugsa mest eða alt um aöra, að þeim líði vel, hvað
sem oss sjálfum líður — þá fyrst fari oss sjálfum að líða vel!
Grískur spekingur sagði: »Leitum þeirra unrðsemda, sem
koma á eftir áreynslunni, ekki þeirra, sem á undan herni fara«.
Aftur sama undarlega lögmálið á öðru sviði. Meðan vér hugs-
um mest eða alt um það að skemta oss, og vanrækjum til þess
skyldustörfin, þá elta þau oss leiðindin. Þó að kæti sé yfir, þá
læðast þau undir og blanda galli í gleðikaleikinn. En þegar
vér förum að hugsa alt eða mest utji skyldustörfin, helgum þeim
tíma og krafta, þá kemur ánægjan og skemtunin til vor sjálf-
krafa; þá verður oss glatt og gott í skapi. Furðuleg tilhögun!
Undarlegt lögmál, ef til vill, í sumra augum, en holt er það
fyrir oss. Því verður trauðla neitað. í mínum augum er það
ekkert undarlegt. Eg sé þar hönd föðursins, sem er að ala oss
upp til kærleiks og manndáðar, Lengi hefur það verið siður á
íslandi á hverjum bæ, að snúa huga sínum til hans við missera-
skiftin sameiginlega. Eg vil að vér gjörum þaö líka eins og
eití heimili. Eg veit um mig, að ekki veitir mér af að senda
hugann til hans eftir djörfung og áhuga, hjartayl og hjartahrein-
leik. Og þó að þér væruð mér öll fremri að þeim kostum, þá
veit eg að samt er þörfin hjá oss öllum. Guð gefi, að vér
finnum það öll leitum bótar og finnum hana nú og æfinlega!
Smágreinar um uppeldi.
(Eftir Guðniund Hjaltason.)
VII.
Urn sklpanlr.
1.
Illa verður hlýtt ef illa er skipað.
Það er vandlærð, en alveg nauðsynleglistað kunna að skipa vel.