Skólablaðið - 01.04.1919, Qupperneq 6

Skólablaðið - 01.04.1919, Qupperneq 6
54 SKÓLABLAÐIÐ breytast til batnaðar fyrir aukin stjórnmálarjettindi. Mjer finst þetta samband milli skólahúss og kvenf jelags benda einmitt svo glögt í þessa átt, sem jeg hefi verið aS tala um, samvinnu gó'ða og alúSlega milli skólans ykkar og heimilanna. Jeg vona, a‘8 allar þær lconur, er aö fjelagsskapnum standa, hafi meira og minna af hug og hjarta GeirþrúSar, sem jeg áSan gat um. Og Geir])rúSar-hugurinn getur aldrei látib sjer neitt óviSlíomandi, sem snertir gæfu og velgengni barna. Jeg er búinn aS gleyma sögu, sem jeg kunni einu sinni, af þremur bræðrum: Þegar þeir fóru út í heiminn, fengu þeir sína heimanfylgjuna hver. Jeg man ekki glögt hva'ð þeir eldri fengu. Mig minnir að öörum ætti aldrei að verða fjefátt, en hinum aldrei aflfátt, — en jeg man hvað sá yngsti fjekk. Hann átti a'S hafa elsku allra kvenna. Og honum varð áreiðanlega drjúgast úr sínu. Hann eignaðist upp úr því bæði kóngsdóttur og kóngsríki og öll heimsins gæði og varð hvorki fjefátt nje aflfátt til neins, sem hann vildi. Og jeg hefi nú það traust á kvenfólkinu, að ef skólinn ykkar nýtur nægrar ástar og umhyggju allra kvenna sveitarinnar, þá sje honum vel borgið, og muni þá ekki heldur skorta fje nje ann- að, til þess að geta orðið til blessunar börnunum ykkar og sveit- inni, og meira að segja öðrum líka út í frá, eins og heimilið hennar Geirþrúðar. Með þeirri ósk til hans og ykkar lýk jeg svo máli minu. Draumurinn hans Helga Valtýssonar. I „Háskólablaðinu" norska, 31. jan. þ. á., stendur grein eftir Helga Valtýsson, sem flestir lesendur þessa blaðs munu kannast við, og þykir mjer rjett, aö flytja þeim aöalefni greinarinnar. Hann hefur svona máls: Varla getur l>að land 4 jörðinni, þar scin lýðháskólinn ætti að vera eins sjálfgefinn og sjálfsagður eins og á íslandi. Sögugrundvöllurinn

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.