Skólablaðið - 01.04.1919, Síða 12

Skólablaðið - 01.04.1919, Síða 12
6o SKÓLABLAÐIÐ Sum kvæöin í safni þessu eru gullfalleg barnakvæöi. Fylgist aö í þeim ljómandi mál og lifandi myndir. Til dæmis má nefna: „Af öllum löndum jeg elska mest“ (P. J.), „Ljósiö loftin fyllir“ (Þ. G.), „Jeg fæddist upp til fjalla“ (G. G.), „í snörunni fugl- inn var fastur (S. J. J.) — og fleiri. Undarlegt er, aö safnandi hefir tekiö stórmikið eftir suma höfunda, jafnvel gallaö, en ekki snert neina dýrindisperlu hjá öörum. Hvernig gat safnandi gengiö fram hjá Bjarna Thorarensen, Jóni Thoroddsen, Jóni ólafssyni, Þorsteini Erlingssyni, Hann- esi Hafstein, Einari Benediktssyni, Theodóru Thoroddsen, Guö- mundi Friðjónssyni, St. G. St. og mörgum, mörgum fleirum? — Vel heföi mátt taka eitthvað hjá öllum þessum, án þess að stækka kveriö að nokkrum mun, en láta suma aöra ekki taka eins mikið rúm. Sjálfsagt hefði safnandi getað haft fleiri kennara í verki meö sjer, en þá hefði kverið, að öllum líkindum, ekki orðið eins einhæft. Ferskeytlur Helga Valtýssonar á bls. 46 eru nafnlausar, og mætti ímynda sjer, að Bjarni Jónsson frá Vogi hefði kveðið þær eða þýtt, af því að efst á næstu síðu er erindi eftir Arna Garborg, sem B. J. hefir snúið á íslensku. En þessi ónákvæmni er ekki það lakasta. Ferskeytlur Helga eru færðar úr hendingum. Þetta verða allir þeir, sem nota kverið, að lagfæra, skrifa inn í það aðalhendingar fyrstu ljóðlínu hverrar vísu, ,,minn“ í 1., 3. og 4. vísu og „öll“ í 2., svo að stökurnar verði óbrjálaðar. Ferskeytlan er svo þjóðleg, að hún má ekki víkja fyrir ein- hverjum hjegóma. Mörg lög eru til við ferskeytluna* og lá * Sjálft lagið mun hafa verið höfuðatriði fyrir höf., en ekki vís- urnar. Þær hefði þurft að yrkja undir lagið. Tilgangur höf., að kenna börnum leiksöngva, er lofsverður. En þetta, um ferskeytluna, er engu síður þarflega mælt hjá H. J. Ritstj.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.