Alþýðublaðið - 03.03.1965, Blaðsíða 13
Loðdýraræktarfélag stofnað
Framhald af 1. síðu
al annars eru til þess ætluð að
trygffja að hlutabréfin geti ekki
safnazt á fáar hendur.
Stofnfundur hins nýja loðdýra
ræktarfélags var haldinn í Tjarn
arbúð síðastliðinn sunnudag og
mættu þar um 90 manns- Félagið
er skráð í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu, enda mun ætlunin að starf
semi þess fari fram á því svæði
ef frumvarp um loðdýraræktun
nær fram að ganga og félagið fær
leyfi til að hefja rekstur loðdýra
bús.
Hlutafé Loðdýrs h.f. er 1.5 millj.
króna og er þriðjungur þess þeg
ar greiddur. Stjórn félagsins hef
ur heimild til að auka hlutféð um
allt að 500 þús. kr- Þá er einnig í
ULMIA
1
Is UD\ ;to r IG 1 RR J
k
Sími 1-33-83.
samþykktum fédagsins heimildar-
ákvæði til að „opna“ það og selja
hlutabréf á verðbréfamarkaði, ef
til slíks kemur hér á landi
Stjórn félagdns ræddi við
fréttamenn í dag og skýfði meðal
annars frá við það tækifæri, að
félagið væri þess albúið að hefja
framkvæmdir strax og nauðsyn-
leg leyfi væru fyrir hendi. Sem
fyrr segir eiga fimmtíu starfs
greinar fulltrúa í félaginu og hafa
félagsmenn í hyggju að vinna sjálf
ir sem mest af framkvæmdum í
sambandi við fyrirhugað loðdýra-
bú.
I samþykktum félagsins er að
finna ýmis nýmæli. Til dæmis eru
þar ákvæði mn margveldiskosn-
ingu til að tryggja rétt minnihlut
ans, og strangari ákvæði en við-
VERKFÆRI
— fyrirliggjandl —
ULMÍA-hurðaþvingur
fl. stærðir.
ULMIA-gratsagir
ULMIA-spónsagir
ULMIA-spónheflar.
ast um skyldur stjórnar og endur-
skoðenda.
Það kom fram á fundinum með
fréttamönnum, að stjórn félags-
ins hefur þegar leitað eftir sam-
starfi .við erlenda aðila um ýmsa
tækniaðstoð, og er einkum búizt
við að samráð verði haft við Norð
menn.
Stjórnarformaður Loðdýrs h-f
Hermann Bridde skýrði frétta
mönnum frá þvi, að það væri sam
eiginlegt með hluthöfunum, að
þeir hefðu einhvern tíma starfað
sem skátar, en hann lagði áherzlu
á að félagsstofnunin væri á eng
(an hátt tengd skátahreyfingunni.
í stjórn félagsins eru: Hermann
Bridde, bakarameistari, formaður,
Jóh Magnú'son lögflræðingur,
Werner Rasmussen lyfjafræðing-
ur, Gunnar Torfason verkfræðing-
ur, Eiður Guðnason blaðamaður
Steinn Lárusson, verzlunarmaður
og Sveinn Þ. Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri.
Framhald af síðu 1.
Aðalflutningarnir fara
fram seint í þessum mánuði
og í apríl. Þá munu Claud
masterfiugvélar flytja sam
tals 12 lestir af vörum til
Meistaravíkurt en síðan mun
Gljáfaxi flytja farþega og
vörur til veðurathugana
stöðva.
Áður en skíðaflugið hófst
fyrir þrem árum var eitt skip
á sumri eina samgönguleið
in við umlieiminn á þessum
slóðum, og stundum vildi
brenna við, að hún brygðist
ef ísinn fyrir ströndinni var
venju fremur þéttur.
Hannes á horninu
Framhald af ‘2. síðu
verndarhjal er hvort sem er orð-
minnast á fiskvernd. Þetta fisk
ið hálfgert grín( sem fáir virð-
ast taka alvarlega.
ANNAÐ MÁL ER ÞAÐ hvern-
þær þjóðir, sem við seljum fisk-
inn, mundu bregðast við ef við
veittum togurum okkar slík for-
réttindi.eftir allt skrafið um vernd
un nytjafiska. Ég vil halda þvi
fram, að á meðan við heyrum ekk
er frá aðalforsjármönnum þessar
ar margumtöluðu fiskverndar,
gagnvart svo augljósri rányrkju,
sem smáufsa og smásíldarveiðin
er( þá held ég, að við getum ekki
tekið þá alvarlega. Og að lokum
aðeins þetta, til þings og stjórn-
ar. Bannið með öilu þessa smá
seiðaveiða, þvi fyrr, .þvi betra.
Ég held að við þurfum ekki að
leita ráða fiskifræðinga í því máli.
Eða hvað segir Jón Jónsson um
það?“. "
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 11. síðu.
son sigraði svo Braga Jakobsson og
Trausti Pétur. Til úrslita kepptu
svo Trausti og Halldór og sigraði
Trausti með 15-4, 10-15, 15-10,
og lauk þeim leik kl. rúmlega 9
um kvöldið.
GjaJdeyririnn
Framhald af 16. síðu
hefði verið ráðizt í neinar stór-
framkvæmdir á borð við Sements
verksmiðju eða Sogsvirkjun.
Marksinnis væri búið að sanna, að
þessar staðhæfingar væru úr
lausu lofti gripnar, sagði ráðherra,
en samt skirrðust Framsóknar-
menn ekki við að endurtaka þær
hvað eftir annað, þótt tölur er
mæltu gegn þeim væri að finna
i fjölmörgum opinberum skýrsi-
um.
Það kæmi engum á óvart, þótt
heildarupphæð erlendra lána til
langs tíma væri hærri nú en um
áramótin 1959 — 1960, vegna
þess að þá hefðum við ekki notið
þess trausts erlendis að geta feng
ið lán til langs tíma. Erlend lán
um þetta leyti hefðu verið til
mjög skamms tíma yfirleitt og svo
hefði verið komið að fyrirsjáan-
legt var að 1960 mundi 11% af
gjaldeyristekjunum hafa farið í
vexti og afborganir af erlendum
lánum. í kjölfar batnandi láns-
trausts hafa verið tekin meiri
lán til langs tíma og þeim varið
til margvíslegra framkvæmda hér.
sagði ráðherra. — Á árunum 1960
—1963, bæði árin meðtalin batn-
aði gjaldeyrisstaða bankanna um
1455 milljónir króna. Lán til langs
tíma voru þá 675 milljónir króna,
en stutt vörukaupalán 441 milljón,
eða samtals 1116 milljónir krónq.
Gjaldeyrisstaðan í heild batnaði
því um 339 milljónir.
Á árunum 1955—1958 hefði
gjaldeyrisstaða bankanna versnað
um 407 milljónir. Erlend lón til
lengri en árs hefðu numið 1177
milljónum, og í heild hefði gjald
eyrisstaðan því versnað um 1584
milljónir, þyrfti því ekki að fara
í grafgötur um hvar sannleikur-
inn í fullyrðingum Framsóknar-
manna væri.
Innflutningur skipa og flugvéla
nam 778 milljónum á tímabilinu
1955—1958, en á árunum 1960
—1963 1445 milljónum.
Þá gat ráðherra þess að gerður
hefði verið samanburður á heild
arfjárfestingu á tímabilinu 1955
— 1958 og 1960—1963 og væru
allar tölur í því sambandi miðaðar
við verðlag árið 1960. Á fyrra tíma
bilinu var heildarfjárfestingin
8327 milljónir, en á því síðara
9654. Þarna væri því á um 1300
milljón króna mismunur. Einnig
mætti geta þess að talið væri í
dag að miðað við núgildandi verð
lag væri stofnkostnaður Sements
Kauphækkun
Frh. af 16. síðu.
lega fengu sér dæmda 6.6% kaup-
hækkun, nær gildistíminn frá 1.
október. Þá var ekki unnt að fá
breytt ákvæðum um orlof og er
það samtökum verzlunarfólksins
mjög í óhag. Hins vegar fékkst
fram 6.6% kauphækkun eins og
áður segir.
Samhljða þessu samkomulagi
hófust að nýju samningar milli
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur og Kaupmannasamtaka íslands
um lokunartíma sölubúða. Mun
einhverra tíðinda að vænta af því
máli áður en langt um líður.
verksmiðju og Sogsvirkjunar sam
anlagt um 450—500 milljónir
króna.
Viðskiptamálaráðherra lauk
máli sínu með því að segja að
framangreindar tölur hlytu að
sanna öllum, sem vildi líta raun
sætt á málin, að allur kjarni mál
flutnintgs Framsóknarmanna um
þessi efni væri úr lausu lofti grip
inn.
Landhelgisbrjótur
Farmhald af síffn 1.
var dæmdur í 60 þús. kr. sekt, off
afli og veiðarfæri gerð upptæk,
einnig var homim gert að greiða
málskostnað.
Skipstjórinn viðurkenndi að
hafa verið fyrir innan marka-
línuna. Hann sagðist hafa verið að
veiðum á öðrum slóðum en ekki
fengið neinn fisk og því hefði
hann ákveðið að fara inn fyrir
landhelgislínuna og reyna þar.
Hann lét ekki vera kveikt á tog-
ljósunum og hann varð ekki var
við varðskipið fyrr en það kom
upp að hlið togarans. Skipstjórinn
sagðist ekki hafa vitað um neinn
annan togara að veiðum á þeim
slóðum, sem hann hafði verið-
Skipstjórinn fékk fjögurra vikna
umhugsunarfrest til að ákveða,
hvort hann vildi skjóta málinu til
Hæstaréttar.
Lægsta sekt fyrir landhelgis-
brot er samkvæmt lögum 30 þús.
færeyskar krónur, en engin há-
markstakmörk á sektum eru nefnd-
Grímseyingar
Framh. af bls. 1.
upp lika. Enn er lítill ís f höfn
inni^ en ef breytir um átt er
hætt við að hún fyllist og er
þá gott að vita alla bátana á
þurru.
— Um 50 manns eru búsettir
hér í vetur og líður ókkur öll
um ágætlega. A!lls eru hér bú
settir um 80 manns, en marg
Ir leita sér atvinnu annars staB
ar yfir vetrarmánuðina.
Tek aí mér hvers konar þýBingar
úr og á enskn.
EKJUR 6UÐNAS0N,
Hggfltur dómtúlknr oc sfejata-
þýSandl.
Skipholti 51 — Síml 32931
SMURT BRAUÐ
Sími 16012
Snlttur.
Oplð frá kl. 9—23.80.
Brauðstofan
Vesnxrgótu 25.
Pianóstillingar
og viðgerðir
GUÐMUNDUR STEFÁNSSON
hljóðfæraverkstæðL
Langholtsvegi 61.
Sfml 3 60 81 mUll U. 10 1S.
Staða yfirlæknis
við geð--og taugadeild Borgarsjúkrahússins í Fossvogi er
laus 'h umsóknar.
Umsækjandi skal vera sérfræðingur í geð- og taugasjúk-
■dómum.
Síðar verður ákveðið, frá hvaða tíma staðan verður veitt.
Laun samkvæmt kjarasamningum Reykjavikurborgar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist landlækni fyrir 15. apríl 1965.
Reykjavík, 2/3 1965.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
„Gullfoss"
fer frá Reykjavík laugardaginn 6. þ.m. til
Hamborgar, Kaupmannahafnar og Leith.
H.F. Eimskípafélags fslands.
Bílstjóri óskast
Maður með ökupróf sem getur unnið með
kranabíl og lyftara óskast í birgðageymslu
Rafmagnsveitna ríkisins.
Upplýsingar hjá starfsmannadeild.
Sími 17400. .
Rafmagnsveitur ríkisins.
M.s.
ALÞÝÐUBLAÐIO — 3. marz 1965 '13