Alþýðublaðið - 13.03.1965, Side 2
■itstjórar: Gylfl Grönflal (Sb.) og Benedikt GröndaL — Kltstjómarfull-
■mi : Elöur Guönason, — slmar: 14900-14903 — Augiyslngasiml: 14906.
Gtgetand'’ Aiþyðuflokkurinn
Aösetur: Alþýöuhúsiö viö Hverfisgölu, Keykjavík. — Prentsmiöja Alþýðu-
fclaösins. — Askriftargjald kr. 60.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintaklö.
SIGLUFJÖRÐUR
FLUTT hefur verið á Alþingi þingsályktunar-
tillaga um að ríkið veiti fjárhagslega aðstoð. við
byggingu dráttarbrautar á Siglufirði, sem geti tekið
upp að minnsta kosti 400 smálesta skip. Flutnings-
menn þessarar tillögu eru þeir Jón Þorsteinsson og
Einar Ingnnundarson.
í greinargerð tillögunnar er bent á hið alvar-
lega ástand í atvinnumálum Siglfirðinga vegna
a’flabrests undanfarin sumur og vetur, og sagt, að
brýn nauðsyn sé nú á skjótum og skynsamlegum
úrræðum til að efla atvinnulíf á Siglufirði.
Flutningsmenn tillögunnar segja, að nefnd sú,
sem undanfarið hef ur athugað möguleika á auknum
iðnrekstri í kauptúnum og kaupstöðum, þar sem
atvinna er ónóg, sé því meðmælt, að slík dráttar-
braut verði byggð á Siglufirði.
í lok greinargerðar með tillögunni segir:
„Rekstur dráttarbrautar er ekki ný atvinnugrein á
Siglufirði. en með endurreisn þessarar atvinnu-
greinar á myndarlegan hátt mætti án efa stuðla að
atvinnuötyggi, sem Siglfirðingar hafa svo brýna
þörf fyrir. Þegar dráttarbraut hefur verið reist.
er aðeins stutt skref yfir í stálskipasmíðastöð. Get-
ur dráttarbrautin þannig orðið undirstaða að nýrri
og mikilvægri atvinnugrein fyrir íbúa Siglufjarð-
ar á komand'i árum.“
Ástæða er til að taka undir þessi orð og vonandi
fær tillagan verðuga afgreiðslu á þingi. En rétt er
að minna á, að Siglufjörður er ekki eini staðurinn
á Iandinu, sem þannig er ástatt um, og kappkosta
verður að íinna úrræði til lausnar þeim vanda, er
um skeið hefur steðjað að ýmsum sjávarplássum,
einkanlega á Norðvesturlandi.
SELMA
I í SMÁBORGINNI Selma í Alabama hafa und-
anfarið gerzt þeir atburðir, sem vekja menn enn
á ný til umhugsunar um kynþáttavandamálin vest-
anhafs,
Friðsamir frelsisunnendur hafa þar verið beitt
ir hörku og ruddaskap, er þeir hafa reynt að vekja
! athygli á sér og málstað sínum. Rík ástæða er til að
harma þá atburði, sem þarna hafa átt sér stað,
en jafnframt að fagna þeirri yfirlýsingu Johnsons
. forseta, að væntanleg séu ný lög tii að tryggja enn
frekar kosningajafnrétti þeld'ökkra og hvítra.
Kynþáttamálin eru viðkvæm mál og þar er
ekki að vænta stökkbreytinga til hins betra. held-
ur hlýtur það að taka nokkurn tíma; ef til vill meiri
tíma en okkur íslendingum finnst eðlilegt, að koma
þessum málum í viðunandi horf, og uppræta allt
misrétti vegna litarafts.
2 13. marz 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Flakara og flatningsmenn
vantar oss nú þegar. — Flökun grei dd samkvæmt „bonus“-kerfi. —
Mikil eftir- og næturvinna.
UTANBÆJARMENN EIGA KOST Á HÚSNÆÐI Á STAÐNUM.
Talið við yfirverkstjórann í síma 19265.
Sænsk-ísienzka frystihúsiS h.f.
Reykjavík
ÍSLENZKIR IÐNAÐARMENN Á ÍTALÍU
FYRIR nokkru fóru átta ísl.
iðnaðarmenn til Ítalíu, þar sem
þeir munu dveljast við nám um
hálfs árs skeið ávegum Evrópu-
ráðsins í Strassbourg. Er hér um
að ræða námsdvöl, er skipulögð
er sem hluti af víðtækri áætlun
Evrópuráðsins, er miðar að því að
gefa væntanlegum iðnkennurum
tækifæri til að kynnast nýjungum
í starfsgreinum sínum erlendis.
Njóta Islendingar nú í fyrsta
skipti góðs af þessari starfsemi.
Af þeim, sem fóru til Ítalíu,
eru fjórir málmiðnaðarmenn, og
munu þeir dveljast í Napoli, og
tveir menn, sem vinna að gisti-
húsamálum. Munu þeir dveljast í
( Castel Fusano skammt frá Róm.
( Málmiðnaðarmennirnir eru Bjarni
I Guðjónsson, Kristinn Hermann-
! íusson og Sigfús Sigurðsson frá
Páskar á eyju
hins eiBifa vors
MADEIRA hefur lengi verið
einn þeirra staða, sem fólk hefur
dreymt um að sjá. Síðan flugsam-
göngur hófust þangað á síðastliðnu
ári hefur ferðamannastraumurinn
stóraukizt, og nú þarf margra
vikna eða mánaða fyrirvara til að
fá far eða gistingu á „Eyju hins
eilífa vors” eða „Perlu Atlants-
hafsins,” eins og Madcira er oft
nefnd.
Ferðaskrifstofan Útsýn hafði þá
fyrirhyggju að tryggja sér þar
gistingu fyrir 40-50 manna hóp á
nýjasta hóteli Madeira, Santa
Isabel, fyrir ári síðan og efnir
nú til páskaferðar þangað í ahn-
að sinn. Hefst ferðin 15. apríl
og stendur í hálfan mánuð.
Að dómi þeirra, er til þekkja
og víða hafa farið, þykir Madeira
einn fegursti staður heims og
minna á Suðurhafseyjar hvað lofts
lag og gróður snertir. Lega eyj-
arinnar og Golfstraumurinn gera
hana að einum frjósamasta bletti
jarðar, enda er Madeira glitrandi
blómahaf í öllum regnbogans lit-
um. Landslag er einnig hið feg-
ursta og skiptast á ávalar hæðir,
fagrir frjósamir dalir og há fjöll,
hin hæstu um 2000 m. Þykir nátt-
úrufegurð miklu meiri og gróður
fjöiskrúðugri á Madeira en Kan-
aríevium, sem eru bó nokkru sunn-
ar. Eitt helzta aðdráttarafl eyjar-
innar er þó hið heilsusamlega,
þægilega loftslag, sem vegna and
varans frá sjónum verður aldrei
óhæfilega heitt, enda hefur fjöldi
fólks leitað sér þangað lækninga.
Um þetta leyti árs er hitinn um
23 gráður á Ceisíus og allt í feg-
usta skrúða. Þarna munu þátttak-
endur í páskaferð Útsvnar dvelj-
ast í vikutíma'og njóta hvíldar
og skemmtunar, baða í sól og sjó
og fara kynnisferðir um eyna.
Á leiðinni til Madeira verður
einnig stanzað í Lissabon, sem
þykir fögur borg og glaðvær. —
Margt minnir þar á afrek og frægð
Portúgala, sem eitt sinn var
mesta siglingaþjóð heims, kann-
aði ókunn höf og nýjar álfur.
Verður dvalizt þar tvo daga í
suðurleið, en í heimleið tvo daga
í London. Flogið verður með flug
vélum Flugfélags íslands til Bret-
lands, en þaðan með þotum BEA
og portúgalska flugfélaginu, og
geta þátttakendur framlengt ferð
ina, ef óskað er. Mun ferðakostn-
aður í allri ferðinni með dvöl á
beztu hótelum kosta litlu meira
en venjulegt flugfargjald til Ma-
deira fyrir einstakling.
Reykjavík og Steinberg Ingólfs-
son frá Akureyri. Til Castel Fus-
ano fóru Kristján Sæmundsson
matreiðslumaður og Wilhelm
Wessmann framreiðslumaður. •
Drengur á reið-
hjóii fyrir híl
Reykjavík, 11. marz. — ÓTJ.
SJÖ ÁRA drengur á reiðhjóli
varð fyrir bifreið á I.angliolts-
vegi um hálf níu í morgun.
Drengurinn hafði hjólað á eft-
ir strætisvagni, en bcygði skyndi
lega til hliðar til að komast fram
hjá og lenti fyrir bifreið sem á
móti kom. Lenti hann fyrst ofan
á brettinu, þaðan upp á vélar-
hlífinni, og skall á framrúðunni
sem brotnaði. Bíllinn er töluvert
dældaður, en drengurinn slapp
hins vegar lítið meiddur. Hann
mun hafa snúizt á fæti, og hrufl-
að sig á enni.
SMURT 8RAUÐ
Snittur.
Opiö frá kl. 9—23.30. , j
Brauðstofan
'1
Vcsturgdtu 25.
Sími 16012
Hafnarfjörður
Hafnarfjörður
Kvöldvaka
Slysavarnadeildin HRAUNPRÝÐI heldur sína árlegu
kvöldvöku í Bæjarbíói sunnudaginn 14. marz kl. 20,30.
1. Kvöldvakan sett: Frú Sigríður Sæland.
2. Erindi: Séra Árelíus Nielsson.
3. Einsöngur: Frú Inga María Eyjólfsdóttir.
Undirleikari: Sigurður H. Stefánsson.
4. Danssýning: Heiðar Ástvaldsson.
5. ?
HLÉ.
6. Leikþáttur (Hraunprýðikonur).
7. Ómar Ragnarsson.
8. Skrautsýning
Kynnir verður hr. Ólafur Friðjónsson.
Aðgöngumiðar seldir í Bæjarbíói á sunnudag frá kl. 1. e. h.
NEFNDIN.