Alþýðublaðið - 13.03.1965, Síða 4
20 þúsund börn búa
við algjöra neyð
Bergen, 12. marz. NTB.
EG HEF nú kynnzt þeirri
mestu mannlegu neyð, sem ég
hef nokkru sinni augum Iitið,
sagði Henry Dahl Joliannessen
prestur í viðtali við blaðið Dag-
en í Bergen í dag, nýkominn
úr ferð til Pakistan. Fór hann
fcrð þessa á vegum Flótta-
mannahjálpar Alþjóðasam-
bands KFUM-félaga, er mun
nú hefja starfsemi sína í Pak-
istan og í Jórdan.
Erfitt er að lýsa ástandinu í
flóttamannabúðunum í Pakist-
an, að því er presturinn segir.
Meir en hálf milljón flótta-
manna, sem komizt hafa alla
leið til Karachi, búa við slíkan
aðbúnað, að evrópskar flótta-
mannabúðir þola engan veginn
neinn samjöfnuð við þær. — A
svæði nokkru þar voru 20 þús.
börn samankomin þar sem alis
ekki var hægt að tala um hí-
býli, þau bjuggu í stráhúsum
inn á milli kassa og sekkja,
Heilbrigðisástandið er óhugn-
anlegt þar, bólu og kólerufar-
aldrar grassera. Lífið þar er
gjörsamlega vonlaust og f.il-
gangslaust, þar er hafdjúp
mestu fátæktar og niðurlæg-
ingar. Að vera þar, segir prest-
urinn, er líkast því sem mað-
ur sé staddur á mörkum lífs
og dauða.
Þá segir prestur, að ástandið
hafi verið langverst í Vestur-
Pakistan. Þar eru slík ógrynni
flóttamanna, að eftir fjögurra
daga dvöl varð honum ljóst,
að þar væri rétt að stofnsetja
lijálparmiðstöð. Verður þar
komið á fót heimili, þar sem
börnin fá klæði og matvæli og
fá tækifæri til að vera nokkrar
klukkustundir í leik og íþrótt-
um, eins og presturinn segir.
Hanoi sýnt í
fulla hnefa
Washington og Saigon,
12. marz (NTB-Reuter)
í.FARNAR verða fleiri árásarferðir
af hálfu Bandaríkjamanna o? f jölg
að lierliði, sem og sýríðstækj-
um í áframlialdandi taugastríði
Bandaríkjamanna við Norður-Viet-
nam, að því almenut var talið í
Washington í dag. Jafnframt þessu
gaf bandaríska varnarmáiaráðu-
ueytið í skyn, að Johnson forseti
hefði ákveðið að sýna hernaðar-
mátt Bandaríkjanna enn frekar í
Vietnam, ef það gæti fengið Norð-
ur-Vietnam til að skilja, að á-
gangur þess í Suður-Vietnam verð
ur að hætta.
Blaðið Post í Washington segir
í frétt á fyrstu síðu í dag, að bú-
izt sé við að farnar verð: árásar-
ferðir á skotmörk enn norðar í
Norður-Vietnam en til þessa hefur
verið gert. Ennfremur megi búast
við því, að enn meir bandarískt
-lið verði sent ti) landsins. Hafi
Telja deiluna
úr sögunni
Moskva, 12. marz. (ntb-reuter).
Talsmaður sovézku utanríkis-
þjónustunnar sagði I dag, að Sov-
étstjórnin liti svo á, að deilan
við Kína vegna meiðsla þeirra, sem
kínverskir stúdentar urðu fyrir í
mótmæla-óeirðum við bandaríska
sendiráðið í Moskva hinn 4. marz
sl. sé á enda.
Tveimur dögum eftir mótmæla-
gönguna mótmælti sendiráð Kína
í Moskva því við sovézku utati-
rikisþjónustuna, sem það kallaði
Ofbeldi lögreglunnar við stúdent-
ana og því, að þeir, sem meiddust
hafi fengið nægilega læknishjálp
og ráðuneytið telji mál þetta á
enda.
bandaríska ríkisstjórnin komizt að
þessari niðurstöðu eftir langar um
ræður og sé þetta gert til að
þvinga ríkisstjórnina í Hanoi til
að draga herafla sinn til baka.
Svipaðar fregnir birtust í dag í
blöðunum New York Herald Tri-
| bune og New Yoi’k Times.
Sendiráðsmenn kommúnista í
Washington segja í einkaviðtölum,
að Bandaríkjastjórn verði að gefa
gaum að því, að Sovétrikin sé
skuldin til að afhenda Norður-Viet
nam nýtízku eldflaugar. Nauðsyn-
legt sé, að sovézkir tæknifræðingar
fari með eldflaugunum og peri síð
an bandarískar þotur árásir á
stöðvar þeirra, megi lítið út af
bera til þess að Sovétríkin séu
ekki dregin inn í hildarleikinn. Sé
þá ekki gott að vita hverjar af-
leiðingarnar verði.
Bormann sagður
vera í Brazilíu
Sao Paulo, 12. marz.
íntb-reuter).
Talsmaður Alþjóðalögregl
unnar Interpol skýrði frá því
í Sao Paulo í Brazilíu í dag,
að lögreglan hefði handtekið
mann nokkurn, sem grunur
leikur á aT sé fyrrverandi SS
maður að nafni Detlef Sonn-
enberg, en telur sig hins veg-
ar vera Alfred Orenk. Hinn
handtekni helur, að því < r
brazilíska hlaðið Estado de
Sao Paulo skýrir frá skýrt
Alþjóðaíögreglunni frá því,
að stórnazistinn Martui Bor-
mann sé í Biazilíu og hann
lrafi gengist undir skiuðað-
gerð á andliti sínu til að fel-
ast frekav. BTaður þessi mun
einnig haia skýrt lögreglunni
frá því, að Auschwitz-lækn-
irinn Josef Mengele, sem al-
ræmdur var fyrir hryðjuverk
sín, búi í Encarnacion í Pa-
raguay.
KOSIÐ í SOVÉT
ÁSUNNUDAG
Moskva, 12. marz. (ntb-reuter).
Milljónir sovézkra borgara ganga
á sunnudaginn að kjörborðinu til
að kjósa ráðsmenn í um það bil
44 þúsund sovét(ráð) i landinu.
í landinu eru 15 lýðveldi og
munu kosningar fara fram í tíu
þeirra nú, en annan sunnudag fara
fram kosningar í þeim fimm, sem
eftir eru. Kosið verður i bæja,
þorpa og héraðasovét. 1
Frambjóðendur eru um það bil
tvær milljónir talsins og hafa
enga mótframbjóðendur. Ekki eru
þeir allir félagar í Kommúnista-
flokknum, en hins vegar hafa þeir
orðið að fá leyfi yfirvaldanna til
framboðsins. Frambjóðendurnir
eru tilnefndir af verkamannaráð-
um á hinum ýmsu stöðum, og
geta allir verið vissir um að ná
kosningu, enda þótt formlega só
hægt að vísa þeim á bug. Nokkr-
ir núverandi ráðsmanna geta bú-
izt við að missa sæti sín, en vel-
flestir eru vissir um að geta set-
ið allt næsta kjörtímabil eða til
1967.
Kosningar þessar eru hinar
fyrstu síðan Krústjov var settur
af og þær fyrstu eftir að hinir
nýju leiðtogar I Kreml endursam
einuðu sovétin. Krústjov greindi
sovétin í sundur á sínum tíma í
landbúnaðar- og iðnaðarsovét. —
Þau bera ábyrgð á skipulagi efna-
hags og menningarmála, húsnæð-
ismálunum, tryggingamálunum,
heilbrigðismálunum, kennslumál-
Framh. á 13. slðu.
Benedikt sýnir í Bogasal
Reykjavík 12. marz. — OÓ.
BENEDIKT GUNNARSSON, listmálari, opnar á morgun, laugardag,
málverkasýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Sýnir hann þar um
30 olíumyndir og nokkrar grafískar myndir. Allar myndirnar eru
málaðar á síðustu tveim árum. Benedikt hefur ekki haldiö einkasýn-
ingu síðan árið 1S6I og þá í Listamannaskálanum, en á þessu timabili
hafa myndir hans verið á mörgum samsýningum, bæði hér á landi
og erlendis. Allav myndirnar á þessari sýningu eru til sölu, en húu
verður opin frani á sunnudaginn 21. þessa mánaðar.
BÁRÍSTVERÐUR
AF ÖLLU AFLI
Saigon, 12. marz. (ntb-reuter).
Ríkisstjórnin í Suður-Vietnam
gaf í dag út yfirlýsingu um að
barizt yrði af fullum krafti og af
eldmóöi gegn Vietcong-skærulið-
um kommúnista. í dag héldu einn
ig B-57 sprengjuþotur Banda-
ríkjanna áfram sprengjuárásum
sínum á stöðvar Vietcong á
ströndinni.
Ríkisstjórnin heldur þvi fram,
að hernaður Sujður-Vietnams
tryggi, að landið standi ekki eitt
í baráttunni, því að allur heimur
inn skilji, að málstaður landsins
er hinn rétti. Suður-Vietnam
óskar eftir friði og frelsi eftir
margra ára eymd, áþján og drott-
invald erlendis frá, sagði forsætis
ráðherrann í yfirlýsingu sinni. —
Því lengur, sem hin eyðileggjandi
styrjöld stendur, því öflugri verð-
ur þráin eftir friði, segir þar enn«
Bandarísku sprengjuþoturnar
héldu árásum sínum áfram í dag
og einbeittu sér einkum að stöðv-
um Vietcongmanna um það bil 400
kílómetra fyrir norðan Saigon. Er
það í annað sinn á þremúr dög-
um sem árásirnar eru gerðar. —.
Talsvert af byggingum var eyði-
lagt. Fyrir tveimur dögum síðan
gerðu 15 sprengjuþotur árásir á
skotfærageymslur, hafnarmann-
virki, og byssustæði á sama svæði,
Johnson, yfirhershöfðingi USA
í Suður-Vietnam, segir, að hann
sé þeirrar skoðunar, að hægt sá
að vinna bug á Vietcong. Hann
sagði blaðamönnum í dag, að hann
væri ánægðúí yfir því sem Banda
ríkjamönnum hefði áunnizt með
árásum sínum og lét einnig í ljós
ánægju sína með viðtölum við
valdamenn í Saigon.
Bridgekvöld
★ ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur Bridgekvöld i
mánudagskvöld kl. 8,30 í Lindarbæ. — Félagsmenn eru hvattir til
að mæta vel og stundvíslega.
4 13. marz 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ