Alþýðublaðið - 13.03.1965, Qupperneq 16
.
NÝR BARNASKÖLI
IKÖPAVOGINUM
— í GÆR kom til Reykjavíkur
hið umdeilda skip, Jarlinn.
Skipið kom í fyrradag til
Keflavíkur -og losnaði þar
farm sinn. Það hefur aðal-
Iegra verið í förum milli hafna
við Miðjarðarhaf og fyrsta
höfn þess eftir að það kom
í eigu íslenzkra aðila var
Ceuta á Afríkuströnd. Það
var 21. nóv. s.I., svo útivistin
er orðin löng. — Heyrzt hef-
Reykjavík, 12. marz. —
Fréttamönnum var í dag boöið
að skoða nýjan barnaskóla í Kópa
vogi, innarlega á Digranesshálsi.
Formaður skólanefndar í Kópa-
vogi, Andrés Kristjánsson ritstjóri
Skýrði fréttamönnum svo frá, að
þarna væri í framtíðinni ætlunin
áð risi skólahverfi og verður byggt
áfram eftir því sem þörf krefur.
Mun þessi háttur nýr hér á landi
í þessum efnum. Hið nýja skóla-
Iiús teiknaði Sigvaldi Thordarson
arkitekt. -
í þeim tveimur skólahúsum sem
nú eru tilbúin eru sex kennslu-
stofur. Lóðin, sem skólinn hefur
til umráða er mjög stór, og eru
leikvellir hvers skólahúss afmark-
pðir að nokkru en þarna er ætl-
unin að rísi alls tólf hús og að
auki sameiginlegt húsnæði svo sem
íþróttahús, kennarastofur, sér-
þennslustofur o. fl.
Byggingarkostnaður þeirra
tveggja húsa, sem þegar eru risin
er 6,2 milljónir króna, eða 2530
ferónur á rúmmetra. Skólastjóri
hins nýja skóla er Jón H. Guð-
mundsson. 1
Framh. á 13 síðu.
ur, að skipshöfnin muni öll
yfirgefa skipið, en ekki er
það vitað með vissu
MMUMtWUMMWtMMMtMI
KONA SLASASI
MJOG ALVARIfGA
Reykjavík, 12. marz. — ÓTJ.
KONA stórslasaðist er hún varð
fyrir bifreið á Hringbraut, móts
við Birkimel, inn klukkan þrjú í
dag. Kristján Sigurðsson hjá rann
sóknarlögreglunni, tjáði Alþýðu-
blaðinu að bifreiðinni hefði verið
ekið norður eftir Hringbrautinni
líklega nokkuð greitt, þó að ekki
sé hægt að fullyrða það að svo
komnu máli. Konan, sem var, á
leið yfir götuna, lenti fyrir vinstra
framhorni bifreiðarinnar og kast-
aðist þaðan i götuna.
Við það hlaut hún mikil meiðsli,
m. a. er talið að báðir fætur henn-
ar hafi brotnað, og hún hlaut höf
uðáverka. Hún var þegar flutt á
Slysavarðstofuna og þaðan á
Landsspítalann, þar sem hún er
enn án meðvitundar. Hún hefur
því eðlilega ekkert getað sagt til
sín, og þar eð hún hafði ekki á
Framh. á 5. bls.
. Jmennur féP
+ ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG
Reykjavíkur heldur almennan
félagsfund í Alþýðuliúsinu við
Hverfisgötu (inngangur frá Ing
ólfsstræti) næstkomandi þriðju
dag kl. 8,30 e. h. Umræðuefni:
Viohorf í launa- og kjaramál-
um er júní-samkoraulaginu lýk-
ur. Framsögumenn Eggert G.
Þorsteinsson, Guðjón B. Bald-
vinsson, Óskar Hallgrímsson.
Kaffiveitingar á fundinum. —
Alþýðuflokksmenn eru hvattir
til að sækja fundinn vel og
stundvíslega.
EGGERT
OSKAR
GUÐJÓN
Aðeins Rolls Royce
í Ameríkufluginu
HINN 1. apríl nk. hefst vorá-
ætlun Loftleiða, en með henni
fjölgar áætlunarferðum milli ís-
lands og annarra Evrópulanda úr
10 vikulegum í 14 ferðir fram og
til baka, en Bandaríkjaferðunum
úr 5 í 14. Sjö vikulegar ferðir
verða milli íslands og Luxem-
borgar, en þær verða farnar með
liinum nýju Rolls Royce flugvél-
um félagsins. Cloudmasterflugvél-
arnar verða sem fyrr í förum milli
íslands og liinna Norðurlandanna
fjögurra, Stóra-Bretlands og Hol-
lands.
Voráætlun Loftleiða gildir til 17.
; maí, en þá hefst sumaráætlunin,
! en með henni verður sú aðalbreyt-
ing, að eingöngu Rolls Royce
flugvélar verða í förum milli
Bandaríkjanna og íslands. '
Á tímabilinu frá 1. apríl til
31. maí bjóða Loftleiðir hin hag-
stæðu vorfargjöld milli íslands og
annarra Evrópulanda, . en sú
lækkun nemur um 25% frá venju
legum fargjöldum, en flugfélögin
hafa tekið upp þessi fargjöld í því
skyni að auðvelda viðskiptavinum
sinum að njóta vor- og sumarveðr-
áttu í sólríkum löndum. Er þessi
★ í KVÖLD, laugardag, frumsýnir Þjóðleikhúsið nýtt íslejnzkt
leikrit eftir Agnar Þórðarson, er nefnist Sannleikur í gipsi. Þetta er
þriðja leikritið eítir Agnar, sem Þjóðleikhúsið tekur til sýningár.
Hin voru Þeir kcma í haust og Gauksklukkan. Leikstjóri er Gísli
Alfreðsson og er þetta fyrsta leikritið, sem hann stjórnar hjá Þjóð-
leikhúsinu. Leikendur eru alls 12 og gerist leikurinn í Reykjavík á
okkar dögum. Meö aðalhluverkin fara Gunnar Eyjólfsson, Guðbjörg
Þorbjarnardóttir og Róbert Arnfinnsson.
Það vekur jafnan talsverða forvitni, þegar nýtt íslenzkt leikrit
er frumflutt. Agnar hefur þegar sýnt að hann kann að skrifa fyrir
leiksvið og hafa rokkur af leikritum hans orðið mjög vinsæl bæði 1
útvarpi og á leiksviði. — Myndin er af Róbert Arnfinnssyni og Guð-
björgu Þorbjarnardóttur í hlutverkum sínum.