Alþýðublaðið - 13.03.1965, Side 3
Til hægTÍ sést safn
af barmmerkjum ogr til vinstri eitt eggjasafnið.
Óvenjuleg sýning á Siglufirði
| Guðbrandur Magnússon og kortin hans.
liIÍl!l!!l!ll!llllIllllllll!l!!lll!IIIIIIII!lí!l!!lll!l{|{!IlflIIIIII!llll!III!!llllllllllll!l!llli!l]IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍII11É
Sýnishorn af flöskumiðasafni (Allar myndirnar tók Ólafur Ragnarsson).
Siglufirði, lð. marz. — ÓR.
MJÖG sérstæð og að mörgu
leyti einstæð sýning var hér
um eíðustu helgi. Sýndu þar
nokkrir safnarar sýnishorn af
þeim munum, sem þeir hafa
safnað og unnið að í tómstund-
um sínum, og var allur frá-
gangur þeirra hinn smekkleg-
asti.
Safnarasýning þessi var í
Æskulýðsheimilinu, og var að-
altilgangur hennar að glæða
söfnunaráhuga ungs fólks og
sýna því fram á, að hægt er
að safna ótrúlegustu hlutum
og hafa ánægju af.
Sýningin var opin á laugar-
dagskvöld og su’nnudag og sáu
hana um 500 manns. Henni var
skipt í 14 deildir og mátti þar
sjá ólíkustu \jUti, svo sem egg
og eldspýtustokka, má'.ra-
merki og raynt, serviettur og
seðla, fyrsta dags ums.ög og
flöskumiða, steina og spil póst
kort, pappamerki, hauskúpur
og fætur af fuglum.
Margt ~tf iessu vakti mikla
athygli og raætti þá fyrst teija
spilasafn sóknarprestsms, séra
Ragnars Fja'ars Lárussonar og
pótkortasafn Guðbrands Magn-
ússonar kennara.
Séra Ragnar var á sýning-
unni með sýnishorn af hinu
mikla spilasafni sínu og mátti
þar sjá spil af ýmsum stærð-
um og gerðum frá flestum
þeim löndum, sem gefið hafa
út spil, allt frá Indlandi til
íslands. Spilin voru á ýmsum
aldri, sum ný, en þau elztu
nær því 300 ára gömul. Þess
má geta hér, að séra Ragnar
á stærsta spilasafn á Norður-
löndum.
Guðbrandur Magnússon á
mesta safn íslenzkra póstkorta
sem vitað er um, og hefur
hann komið þeim mjög smekk
lega fyrir i sérstökum bókum,
sem hann hefur búið til sjálf-
ur. Virtust sýningargestir
hafa mikla ánægju af að skoða
kortin.
Georg Andersen, sem er einn
mesti frímerkjasafnari hér á
Siglufirði, sýndi þarna fyrsta
dagsumslög, bæði innlend og
erlend, gömul og ný. Ennfrem-
ur sýndi hann umslög, sem
stimpluð voru í Kaupmanna-
höfn áður en frímerki komu
til sögunnar og vöktu þau
mikla athygli. Þorsteinn Að-
albjörnsson hefur lengi safnað
miðum af flöskum undan ýms
um drykkjum frá mörgum lönd
um. Á sýningunni var sýnis-
horn af safni hans, sem í senn
er skrautlegt og skemmtilegt.
Séra Ragnar Fjalar (til hægri) ræðir um spilasafnið við einn sýningargestinn.
Þrír Siglfirðingar sýndu
eggjasöfn, sem í voru mörg
mismunandi egg, bæði smá og
stór.
Örlygur Kristfinnsson ótti
þarna skemmtilegt náttúru-
gripasafn og mátti í því sjá
m. a. hauskúpur af fuglum,
ýmis þurrkuð sjávardýr, fugla-
fætur, eðlilegt hreiður með
eggjum í, steina og margt
fleira.
Ragnar Sveinsson og Jón
Finnur Jóhannesson sýndu fjöl
breytt úrval barmmerkja úr
málmi, bæði innlend og er-
lend og voru þau mjög fjöl-
breytt að gerð og lögun.
Sigurður Gunnlaugsson átti
á sýningunni myntsafn, sem
í mátti sjá alla íslenzka mynt
frá upphafi, og Haraldur Þór
safn gamalla seðla.
Þrír ungir menn sýndu eld-
spýtustokka, en þeir eiga nokk
ur hundruð stokka hver, sem
eru víðs vegar að úr heiminum
með margvíslegum myndum.
Þeir Jón Dýrfjörð, Guðbr.
Framhald á 13. siðu
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 13. marz 1965 3