Alþýðublaðið - 13.03.1965, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 13.03.1965, Blaðsíða 6
STRAX þegar Soraya, fyrrverandi keisara drottning, fór að leika í kvikmyndum á Ítalíu, sá shahinn um, að myndin yrði bönn uð í íran, þegar hún væri tilbúin. Siðan hefur hann reynt mikið til að fá því komið til leiðar, að hin múhammeðsku grannríki sín, Tyrklandi og Pakistan, banni myndina lika. Shahinn sagði fyrir skemmstu í Bad Gastein, þar sem hann var á skíðum: — Starf filmstjörnu hæfir ekki og er óverð ugt fyrrverandi keisaradrottningu af íran. Svo er að siá, sem st.iarna Sorayu hafi dalað nokkur eftir að mynd- in vw fullgerð, því að í Teheran eru menn farnir að tala um hvern- igt unrit sé að svipta hana prinssessutitlinum, sem Shahinn veitti henni, þegar hann skildi við hana. — ★ — ÞAÐ virðist svo sem orð Shahsins um virðu leikaskort filmstjörnunnar hafi ekki haft mikil áhrif meðal almennings í íran. Þegar Shahinn skildi við hana, voru myndir af henni teknar burtu af öllum opinberum stöðum, en nú eru myndir af henni sem kvikmyndastjörnu seldar í öllum blaðsölu- turnum og bókaverzlunum í Teheran — og salan gengur stórvel. Fyrirtækið, sem dreifir myndunum, hyggst auka söluna enn með því að lofa eiginhandaráritun Sorayu hvrej- um þeim, sem kaupir þrjár myndir. — ★ — FRÖNSKU blöðin þora nú að fullyrða, að hertoginn af Windsor hafi náð sér fyllilega eftir skurðaðgerðina. Þetta gera þau á grundvelli síðustu máltíðar hans hjá Max- im. Þá borðaði hann nefnilega kola frá Ostende í súrsætri sósu, nautafilet með sveppum, perglaodda í sósu og súkkulaði- búðing. Þetta telja þeir ekki nema á traustra manna færi að borða. — En hinir samvizkusömu blnðamenn létu fylgja með, að kampavínið hafi vant- að á borðið. Svo hraustur væri hertoginn enn ekki orðinn. — ★ — IÐJUHOt/DURINN Otto S. Wernher, sem nýlega lézt í Diisseldorf, igat aldrei fellt si-g við síðara skírnarnafn sitt, sem S-ið táknaði Þegar erfðaskrá hans var opnuð, kom í ljós, að hann lofaði 900. 000 krónum hverjum þeim, sem gagnvart búi hans gæti sannað, að hann héti sama nafni. Enn hefur enginn gefið sig fram. S-ið stóð neinilega fyrir Schwarzverriichtmann — eöa á íslenzku Svart- brjálæðingur. Faðir hans hafði eldrei viljað segja honum, hvers vegna hann valdi honum svo hræðiiegt nafn. — ★ — FYRSTA kennslukona Johnsons Bandaríkja forseta, frú Chester Loney, kom fyr: skemmstu fram í sjónvarpi og sagði fi þessum nemanda sínum, sem nú er ori inn svo voidugur maður. — Hann var yndislegur drengur, sagði húi Það var aldrei neitt vesen með hann, o hann kunni alltaf lexíur sínar. Ég var þ þegar sannfærð um, að eitthvað yrði ú± honum. Það er kannski ekkert undarlegt, að hinn góði nemandi hringdi strax eftir þáttinn til kennslukonunnar og sagði: — Kæra fru Loney. Ég er stoltur af yður! — ★ ~ Á LITLU HÓTELl í Invermoriston, þangað sem menn fara í von um að sjá Loch Ness skrímslið, hefur veitingamaðurinn fest upp í hverju herbergi skilti, sem á stendur: „Verið velkomin. Hér ,getið þér verið, eins og heima hjá ykkur. Okk ur finnst við vera ein stór fjölskylda í eilífu frii“. En fyrir neðan þessi orð hefur hann bætt við: „Veitingamaðurinn ber enga ábyrgð á verðmætum, sem skilin eru eftir í herberginu". £ 13. marz 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ ,Kungsholm“, til ferða yfir Atlantsliaf- SÆNSKA Ameríkulínan er að láta smíða fyrir s:g nýjan ið til New York. Skipið er smíðáð hjá John Bro'.vn á Clydebank í Glasgow og því verður lileypt af stokkunum 14. apríl n.k. Skipið verður 25.000 tonn og talið er, að það muni taka níu mánuði að fullgera það eftir að því hefur verið hleypt af stokkunum. MMttttMMMtttMHWMMMMMMMMMWm'MmMMMWMMMIMMWHWHMMMWIMMWMV STÓRFÉ UNDIR RÚMDÝNUNNI UNDIR rúmdýnu á einu af beztu hótelum Stokkhólmsborgar fann einn fremur smásálar- legur verkfræðingur frá Sunds- vall nýlega 10.000.00 sænsk. krón ur, sem komnar voru úr upp- sprent»d”m oeningaskáp í Lulefl í október sl. Það voru þrír unglingar, sem stol’ð höfðu peningunum og þeir föidu þá á hótelinu svo til strax eftir að þeir höfðu stol- ið þeim. Þessir þrír unglinvar höfðu strokið úr fangelsi og. á þeim stutta tíma, sem þeir voru frjáls ir, sprengdu þeir upp peninga- skápinn í Luleá. Þeir fluttu inn á hótelið í Stokkhólmi. bar sem þeir fundu bráðabirgða felustað fyrir peningana undir rúmdvn- unni. Áður en þeir kæmust nokkuð lengra, voru þei-r hand- teknir að nýju, en peningarnir urðu eftir á hótelinu. Lögreglan leitaði í herberginu, en fann ekkert. Og síðan í október hafa gestir komið og farið, þvottakon ur hafa gert hreint og stofustúlk urnar hafa skipt um á rúmunum, og allan tímann sátu þiófarnir í klefum sínum áhyggjufullir vegna peninganna. Einn hinna þriggja strauk að nýju og skipulagði bófaflokk í S+ckkhólmi. Meðlimir flokksins fóru á hótelið, en tókst ekki að fá gamla herbergið leigt. Hins vegar stóðu þeir vörð á gang- inum og reyndu tvisvar að brjót ast inn í herbergið, en árangurs- laust. Svo að peningarnir lágu þarna, þar til verkfræðingurinn frá Sundsvall fann þá. Hann hef ur það nefniléga fyrir revlu að kanna vandlega hvert herbergi áður en hann flytur inn. NUNNUR A KRÁ TVEIR rómversk-kaþólskir prestar afgreiddu í barnum og þrjár nunnur gengu um beina í hinni 500 ára gömlu krá Salis- bury Arms í Wales. Þetta gekk framar öllum vonum. Móðir Jóseph hafði aldrei áður stigið fæti inn á krá, en fannst það spennandi. Eigendur krárinnar, sem báðir eru mótmælendatrúar, töldu, að nunnurnar ættu skilið að fá möguleika á að ósk þeirra rættist. Nunnurnar eru úr reglu „Litlu systranna" í Holywell og þær eyða í það mörgum klukkustund um á hverri viku að aka um og hjá’pa sjúkum og einmana Hing að til hafa þær notað skellinöðr- ur, en slíkt er hættulegt á ísi- lögðum vegum. Það var því þeirra heitasta ósk að eignast lítinn bíl, og með að stoð kráréigendanna og hinna tveggja presta fá þær ósk sína uppfyllta. Kvöldið gaf af sér næstum því 300 sterlingspund eða 36.000 krónur. t%MMMMMMMMMMMMMWH — Þeir geta fundi'ð upp atómsprengju, en að festa hnapp á buxurnar sínar nei! Hvað skyldu forcldrar okk ar eiginlega hafa aðhafzt á okkar aldri, úr því að þau eru svona tortryggin . . . MARIA CALLAS ski-Igreinir sjálfstjórn þannig, að það sé að lyfta aðeins augnabrúnum í stað þess að lyfta þakinu af.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.