Alþýðublaðið - 13.05.1965, Page 2

Alþýðublaðið - 13.05.1965, Page 2
MUtJórar: Gylfl Gröndal (ftb.) og Benedlkt Gröndal. - KltstJömarfoU- "TU : Elöur Guönasor*. — símar: 14900-14903 — Augiystngaslml: 149M. Utgefaudi. AiþýOuflokkurlnn AOeetur: AlþýðuhúslO vlB Hverftsgötu, Keykjavlk. — PrentsmlOja Alþyöu- •laosins. — Askrlftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr S.00 elntaklO. 17,3°!o og 82,7°]o FYKIR NOKKRU var á það minnzt í leiðara •á þessum stað, að launagreiðslur verkafólks í irystihúsum nemi ekki hærri upphæð en umbúð- irnar utan um fiskinn kosta. Var þetta haft eftir verklýðsleiðtoga utan Reykjavíkur, sem aftur hafði það eftir ábyrgum starfsmanni hraðfrystihúsanna. Nú hefur Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna skrif- <að Alþýðublaðinu og beðizt leiðréttingar á þess- ari fullyrðingu. Segir í bréfi SH, að síðastliðin tvö ár hafi verið gerð athugun á rekstri og af- komu 8 hraðfrystihúsa, þar á meðal Bæjarútgerð- ar Reykjavíkur og Hafnarf jarðar. Samkvæmt þeim athugunum var vinnulaunakostnaður 1963 hjá þessum húsum 17,3% af skilaverði, en umbúða- kostnaður 5,2%. Vinnulaunakostnaður er því þrisvar sinnum meiri en umbúðirnar. ■ Alþýðublaðið vill hafa það, sem sannara reyn- ist — og er þessari athugasemd hérmeð til skila lcomið. En blaðið vill henda á, að þrátt fyrir þessa leiðréttingu virðist launakostnaður ekki vera svo mikill hluti heildarkostnaðar frystihúsanna, að hann megi ráða úrslitum og valda deilum, sem setja þjóðfélagið á annan endann. Verkafólkið fær 17,3% — en aðrir kostnaðarliðir eru 82,7%. Þessar upplýsingar hljóta að vekja þá spurn- ingu, hvort ekki sé unnt nú, á tímum tækninnar, þegar ríkisvaldið vill allt gera til hjálpar, að spara örlítið á þessiun 82,7% og heina því til fólksins í kauphækkun. Ef unnt reyndist að lækka á öll- um öðrum liðum um aðeins 1,7% af heildarkostn- aði, mundi það þýða 10% kauphækkun, vinnufrið, gleði og hamingju! Er þetta útilokað? Eitt smáatriði 1 bréfi SH vekur athygli. Þar <er frá bví skýrt, að síðastliðin tvö ár hafi hrað- 'frystihúsm látið gera athuganir á rekstri og af- komu 8 hraðfrystihúsa. í þessu sambandi hljóta leikmenn að spyrja: Er bókhald hraðfrystihúsa yfirleitt svo lélegt, að gera þurfi sérstaka, tveggja ára rannsókn til að komast að, hvernig rekstri og afkomu þeirra er háttað? Barnavinnan ÞVÍ MIÐUR varð ágreiningur í efri deild Al- þingis út af frumvarpi um barnavernd, sem neðri deild hafði afgreitt, og dagaði málið uppi. Eitt af því, sem gerzt hefði með samþykkt þess, var að banna börnum innan 15 ára aldurs að vinna við iþppskipun. í gær birti Morgunblaðið myndir af kornung- um drengjum, sem voru við uppskipunarvinnu í lestum skips. Fylgdi texti, sem bar vott um að- dáun og var sagt, að þeir gæfu hinum eldri ekk- ert eftir við stritið! Hvenær skyldi næsti drengurinn deyja í slysi ýið uppskipun? Tryggið framtíð barna yðar með því að gefa þeim hin verðtryggðu spariskírteini. VerStryggðu spariskírteinin eru til sblu í Rvík h]á öllum bönkum og útibúum þeirra og nokkrum verðbréfasöium. Utan ReykjaYÍkur eru spariskír- tcinin seld hjó útibúum allra bankónna og stærri sparisjóðum. SEÐLABANKI ISLANDS m T H k ÞJ Jsi 5 3 ^ Vinstri handar- eða hægri handar-akstur. i Átiur ákveSið, trestaS þá, en nú vakið upp að nýju. ! -Á- Hægri-maður óttast ekki aukna slysahættu. * íslendingar eiga að taka upp sömu ökureglur og i aðrar þjóðir. »lllllllllllllllllll*llll**ll«**l••l•M•*•l*****•l*»••*•*",*,**,"*,**,,*,*,*,,,,"*,,,,",,,M,,,,,.,,,",,,,,,,V,",,","."""""""^ ÉG HEF FENGIÐ TVÖ BRÉF um breytinffarnar frá vinstri handar- í hægri handar akstur. En þau eru bæði skrifuð af tilefni pistils míns fyrir nokkrum dögum- M. M. skrjfar: „Þakka þér fyrir pistilinn á móti breytingunum úr vinstri til hægri. Þetta var samþykkt á alþingi fyri'r stríð, en svo komu Bretairnir með sinn vinstri hand- ar akstur, og þá var öll'um fram kvæmdum frestað. Nú er þetta vakið upp að nýju — og mér finnst algi’örlega að nauðsynja- lausu. Ég vil benda á, að breyt- ingin er svo dýr og svo hættuleg, en nauðsynin engin“. HÆGRIMAÐUR SKRIFAR: ,,Ég var að enda við að lesa pistil þinn í Alþýðublaðinu í dag. Satt bezt að segja, varð ég mjög undrandi í er ég byrjaði að lesa pistilinn, því að í upphafi hans segir þú, að engin viðhlýtandi skýring sé á því að breyta þurfi yfir á hægri hand- ar akstur hér á landi- ÉG SÉ EKKI BETUR en þú hafii’ algjörlega látið það vera að lesa það er þegar hefur verið i ritað um þessi mál. Mér hefur nefnilega hingað til virzt, að þú hefðir margar skynsamlegar skoð- anir á ýmsum málum, en að þarna sért þú sleginn einhverskon- ar blindu, sem ég fæ ekki skilið.. Þú bendir á það að það muni kosta mörg rnannslíf að breyta um. Þetta hcld ég að sé ekki alls kostar rétt, því þegar fólk þarf að breyta svona uiu verður afleiðing in sú, að það fer óhjákvæmilega miklu varlegar en ella, og stór- ! slys sem hægt væri að rekja beint til þessarar breytingar, verða ekki mörg. ÞÚ HORFIR MIKIÐ á kostnað- arhliðina, sem ekki er óeðlilegt, en það mun sennilega fara fyrir þér eins og fyrir Svíum, sem fyr- ir nokkrum árum störðu svo blint á kostnaðar hliðina að þeir' gleymdu öllu öðru. Nú er svo kom- ið að þeir eru farnir að skilja. það, að þeir höfðu rangt fyrir sér ,og ákveðið er að breyta til þar. Og, hver.var svo útkoman? Af því að þeir írestuðu því, verða þeir að horfa á eftir ennþá fleiri krón- um í þessar breytingar. HEFUR ÞÚ NOKKUÐ IIUGSAÐ út í það, að þegar Bretar og Sví- ar eru þúnir að breyfa, þá erum við einir eftir með okkar vinstri akstur. Hvar eigum við þá að fá keyptar bifreiðir, sem þessa við okkar aðstæður- Ekki fara þeir a3 byggja örfáa af hverri tegund öðru vísi vegna einhvers smá- hólma norður í Atlantshafi. SÖMU SÖGU er að segja me3 umferðarljós og aðra hluti sem Framh. á 13. sföu. 2^ 13. maí 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.