Alþýðublaðið - 13.05.1965, Page 10
vantar börn eða fullorðið fólk til að bera blaðið
til kaupenda í þessum hverfum:
Skjólunum
j i ■ - *; •
Afgreiðsla Aiþýðublaðsíns
Sími 14 900.
$kotfélagið
Framhald af 7. síðu.
ið frá upphafi talin til íþrótta-
greina og er keppnisgrein á Ol-
ympíuleikunum. Þar hafa löng-
um verið fremstar í flokki frið-
samar menningarþjóðir eins og
frændur vorir frá hinum Norður-
löndunum.
jafn fjarrf sanni var sá
misskilningur að Skotfélagið
hafi frekar en erlendir skot-
klúbbar, sem starfa á sama grund
veili, veiðiskap á stefnuskrá
sinni. í félaginu er mikill fjöldi
manna, sem hafa gaman af veiði-
skap með byssu og telja sig ekki
menn að verri, og sú þekking
sem félagsstarfsemin hefur veitt
mönnum í meðferð skotvopna
kemur auðvitað þar að góðu
gagni. Félagið hefur auk þess
veitt ótal mörgum leiðbeiningar
um rétt val skotvopna og þess
háttar svo að veiðar yrðu stund-
aðar á sem mannúðlegastan hátt,
£0 13. maí 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
t. d. í vali skotvopna við hrein-
dýraveiðar. Þó hefur sú sorglega
reynsla orðið að lög og reglu-
gerðir um skotvopn og veiðiskap
hafa verið sett án þess að þar
væru til kvaddir fróðir menn til
umsagnar.
Á hinn bóginn er jafnvíst að
félagið hefur stuðlað að því beint
og óbeint að vernda fugla með
því að veita fjölda skotmanna
einkum hinum yngri tækifæri á
því að spreyta sig á því í stað
fugla og dýraveiða að gera göt
á pappaspjöld, m.ö.o. að skjóta
til marks og auka og sýna hæfni
sína við það, en þetta er fyrsta
og síðasta takmark Skotfélags
Reykjavíkur.
Félagið fékk við upphaf starf-
semi sinnar svæði til umráða við
útiæfingar í landi Grafarholts
þar sem heitir í Leirdal. Þar hef-
ur verið reist skýli, komið upp
skotmörkum og verið byggður
„Skeet-skotvöllur“ hér á landi-
,,Skeet“ er íþrótt, sem enn vant
ar íslenzkt nafn á, en miðar að
því að kenna skyttum að skjóta
hraðfleygar leikdúfur eða kringl
ur á lofti með haglabyssum við
sem fjölbreyiilegastar aðstæður-
En þar sem enn er allt óvíst um
framtíð þessa landrýmis hefur
félagið ekki viljað leggja þar í
meiri kostnað, þótt staðurinn sé
á allan hátt hinn ákjósanlegasti
og vandfundinn annar jafngóður.
Félagið hefur jafnan haft
innanhússæfingar á miðvikudags
kvöldum í íþróttahúsinu að Há-
logalandi, en sér nú fram á hús-
næðisleysi er það verður rifið,
sem verður væntanlega einhver
næstu misseri .Lengi hafa verið
uppi ráðagerðir með að félagið
fengi húsnæði undir áhorfenda
stúku íþróttavallarins í Laugar-
dal. Þar fengi félagið 50 ni. skot
braut sem myndi gerbreyta æf-
ingarskilyrðum og gera í fyrsta
sinn kleift að kanna getu félags
manna miðað við afrek erlendra
skotmanna. Þar mun líka í ráði
að hafa hlaupabrautir fyrir inn-
anhússæfingar annarra félaga. Á
því hefur staðið að Hitaveita
Reykjavíkur hefur þarna fengið
bráðabirgðageymslu fyrir vöru-
lager og hún hefur enn ekki rýmt
og er leitt til að vita, að bæjar-
fyrirtæki standi þannig íþrótta-
lífi fyrir þrifum.
Skotfélagið hefur haft lítil
tækifæri til þess að keppa út á
við, en hefur þó háð
keppni við áhafnir erlendra her
skipa sem hingað hafa komið og
unnið þær allar með yfirburðum.
Skolfélagið hyggst nú minnast-
15 ára endurreisnarafmælisins
með því að halda sérstakt mót
að loknum hinum föstu vormót-
um sem eru tvö. Christinsen-
keppnin sem fer jáfnan fram í
marz og vormótið sem haldið er
að vetraræfingum loknum. Verð-
ur keppt á afmælismótinu
á útisvæði félagsins með riffl-
um á 50 metra færi og auk þess
verður keppt í Skeet um styttu,
sem Guðmundur frá Miðdal gaf
félaginu, en hann var ætíð einn
af velunnurum þess að keppni
lokinni mun félagið gangast
fyrir afmælishófi og úthluta
verðlaunum.
Skotfélagið hefur verið frá
upphafi starfsemi sinnar í í-
þróttasambandi íslands. Núver-
andi tala félagsmanna mun vera
á þriðja hundrað og er mikill og
vaxandi áhugi fyrir starfsemi
þess.
Núverandi stjórn skipa þessir
menn:
Leo Schmidt, form.
Sig. Isaksson gjaldkeri.
Axel Sölvason ritari.
Róbert Sehmidt, meðstj.
Erling Edvald, meðstj.
Egill Jónasson Stardal, v.fm.
Frh. af 6. síðu.
ir gullpeninga og 3500 dollara
verðlaun. Hinir hamingjusömu
voru: Ricardo del Carmen frá
Guatemala, Jacques Hutmann
frá Frakklandi, Edo de Waart frá
Hollandi, Niklaus Wyss frá Sviss
og Ameríkumennirnir Law-
rence L. Smith og James de
Preist.
Sá síðastnefndi á skilið sér-
stakt umtal, ekki aðeins vegna
þess, að hann sýndi óvenjulega |
tilfinninganæman og músikalsk |
an þroska í túlkun sinni. heldur J
vegna þess að hann hefur sýnt
sjaldgæfan kjark við að halda
áfram hljómsveitarstjórn, þó að
hann sé alvarlega bæklaður. —
Fyrir tveimur árum fékk hann
lömunarveiki, er hann var í
menningarsendinefnd á ferð í
Thailandi. Samt tók hann árið
eftir þátt í Mitropoulos-keppn-
inni og komst í undanúrslit. —
Fyrir hvatningu Bernsteins
reyndi hann aftur og sigraði nú.
James de Preist er hávaxinn og
stæltur negri, sem raunar er
systursonur hinnar frægu söng-
konu Marion Andérson. Hann |
situr á háfættum stól frammi
fyrir hljómsveitinni og stjórnar
án taktstokks eða nótna.
Og eins og hinir sigurvegar-
arnir á hann nú fyrir höndum að
fullkomna sig í list sinni sem
aðstoðarmaður við einhverja af
helztu sinfóníuhljómsveitum
Bandaríkjanna.
Á meðfylgjandi mynd sést de
Preist vera að stjóma „Cosmo-
politan Young People’s Orch-
estra of New York,” en hann
stjórnaði þremur fyrstu hljóm-
leikum þeirrar hljómsveitar.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
verður haldið að Siðumúla 20, hér í borg, eftir kröfu
Gjaldbeimtunnar í Reykjavík o. fl. föstudaginn 21. maí
n.k. kl. 1,30 e. h. Seldar verða eftirtaldar bifreiðir:
R 756, R 1129, R 2259, R 2354, R 3447, R 3649, R 4517,
R 5251, R 5496, R 5575, R 5783, R 6036, R 6406, R 6502,
R 6568 R 6688, R 7094, R 7620, R 7877, R 7922, R 8296,
R 8611, R 9861, R 10521, R 10607, R 10907, R 11072, R
11444, R 11557, R 11593, R11660, R 12201, R 12303,
R 12770, R 12809, R 13246, R 14650, R 14651, R 15070,
R 15308 R 15446, R 15447, R 15451, R 15874, R 15952,
R 16383, R 16649, R 16876, R.17192, G 3052, U 457, U 902,
Y 297, skurðgrafa (Massey-Ferguson RD-19), skurðgrafa
<J-C-B-4c nr. 8782 með moksturstækjum nr. 14996, afl-
vél nr 08C-958692) og loftpressa (Penta-Volvo Hydor
H.D.-210).
Greiðsia fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Benzinsala Hjólbarðaviðgerðir
Opið alla daga frá kl. 8—23,30.
Hjólbarðaverkstæðið Hraiinhoit
Horni Ltndargötu og Vitastígs. — Sími 23900.