Alþýðublaðið - 29.05.1965, Side 11
t=Rifrstióri Örn Eídsson
RHÖ
Coventry tók „landsliöið" í kennslustund:
Liðin voru þannig valin talið frá
markverði til v.útherja.
★ COVENTRY.
Wesson, Fillet, Harris, Kearns,
Curtis, Farmer Turner, Hale,
Gould, Hudson, Clements.
* ÚRVALSLIÐ.
Heimir Guðjónsson, Jón Stefáns
son, Guðjón Jónsson, Guðni Jóns
son, Högni Gunnlaugsson, Sigurð
ur Albertsson Örn Steinsen, Karl
Hermannsson, Ingvar Elísson, Ell
ert Schram, Runar Júlíusson.
Jón Ingi, markvörður.
★ DÖMARI.
Hannes Þ. Sigurðsson.
★ LÍNUVERDIR.
Steinn Guðmundsson, Carl Berg-
mann.
★ ÁHORFENDUR
Um það bil 5 þúsund.
ÞRIÐJI og síðasti leikur Bret-
anna frá Coventry fór fram í gær
kvöldi í fremur köldu veðri á
Laugardalsvellinum. Miklar breyt
ingar höfðu orðið á liði landsliðs
nefndar, frá því sem það var til-
kynnt. Högni, Rúnar og Heimir
léku ekki með, en í þeirra stað
komu Jón Leósson, Axel Axelsson
og Jón Ingi. Einnig voru breyt-
ingar í liði Breta frá fyrri leikj-
um. Leikur úrvalsins í gærkvöldi
var svo sannarlega lélegur, og
hefði leikurinn allt eins getað end
að með sex eða sjö marka mun,
en úrval menn voru heppnir og
björguðu hvað eftir annað á línu
og skot Bretanna voru ónákvæm.
★ FYRRI HÁLFLEIKUR 0:0.
Úrvalið byrjaði leik og lék und-
an sunnangjólu, en Bretar ná
knettinum strax og sækja, en
bjargað er í horn. Sækja nú Bret
ar um hríð, en á 1. mín gefur
Örn laglegan bolta fyrir og Ingv-
ar skallar, en hinn öruggi mark-
vörður, Wesson, ver laglega. —
Skömmu síðar er hætta við mark
úrvalsins. Jón Ingi markvörður
hijóp glannalega út og Jón Stef-
ánsson skallar frá og aftur er
skotið og Guðjón bjargar í horn.
Á 28. mín. ver Guðjón á marklínu
með hendi og víti er tekið. Far-
mer, vinstri framherji, spyrnir, en
Jón Ingi ver fallega með því að
kasta sér í vinstra hornið. Á 41- m.
kom eina raunverulega marktæki-
færið, sem úrvalið átti í þessum
hálfleik. Ingvar fékk boltann alveg
frír, en lyfti yfir markvörð og
mark, og þannig lauk skárri hálf
leik úrvalsins, án þess að mark
yrði skorað.
★ SÍÐARI HÁLFLEIKUR.
Bretarnir léku nú undan vindi
og sóttu enn meir en í fyrri hálf
leik- Á 3 mín. kom svo fyrsta mark
ið. Guðni Jónsson ,,kiksar“ illi
lega og Turner h. útherji sendi
knöttinn beina leið í netið. Ann
að markið kom svo ó 13. mín.
Þvaga hafði verið fyrir framan
Framhalil á 14. síðu.
WESSON markvörður gómar boltann auðveldlcga.
Sigurðyr Ounnar Sigurðsson kjörinn formaður ÍR:
Ágætur árangur (R
inga s.l. starfsár
SEX LEIKIR11. OG 2. DEILD
HAÐIR UM HELGINA
ÞAÐ verður mikið um að vera í
knattspyrnunni núna um helgina,
tveir leikjr fara fram í I- deild
og fjórir í 2. deild.
Keppnin í 2. deild hefst á leik
velli Hafnfirðinga kl. 16 í dag
en þá ieika FH og Breiðablik.
Á morgun (sunnudag) leika Val
Ur og Akureyri í 1. deild; en sá
leikur hefst kl. 16.30- 2. deildar
keppnin heldur einnig áfram á
sunnudag, Reynir og Siglfirðing
ar leika á vellinum í Sandgerði.
Ekki er endanlega ókveðinn tími,
þar sem lcikurinn verður að ein
hverju leyti tengdur hátíðarhöld
um Sjómannadagsins- Þriðji leik
urimi á. morgun verður í Vest
mannaeyjum í 2- deild, Vest
mannaeyjar og ísafjörður leika.
Tveir leikir verða háðir á mánu
dag, í 1. deild leika Akranes og
Fram á Akranesi, leikurinn hefst
kl. 20.30- Á Melavellinum vérð
ur háður leikur í 2. deild milli
Þróttar og Skarphéðins, sem nú
sendir lið í 2. deildarkeppnina í
fyrsta sinn.
ÞáUtaka er með meira móti í
2- deild að þersu sinni, alls leika
10 lið, sem skipt er í tvo riðla
A.— og B, —riðil. í A—riðli leika
Haukar, Hafnarfirði, Siglufjörður,
Reynir, Sandgerði, Héraðssam
bandið Skarphéðinn og Þróttur.
í B—riðli leika: Breiðablik Kópa
vogi, FH ísafjörður, Vestmanna
eyjar og Víkingur- Keppnjnni í
riðlum 2. deildar lýkur 24. júlí, en
staður og stund úrslitaleiksins er
enn ekki ákveðin. Leikið er bæði
heima og heiman í 2. deild.
Aðalfundur ÍR var haldinn 25.
maí sl. Formaður félagsins, Reynir
Sigurðsson, setti fundinn, en sið-
an fór fram kosning starfsmanna
fundarins. Sigurjón Þórðarson,
framkvæmdastjóri var kjörinn
fundarstjóri.
Reynir Sigurðsson flutti skýrslu
stjórnar og ber hún með sér, að
hagur félagsins er góður, bæði
fjárhagslega og íþróttalega. All
mikil deyfð er aftur á móti yfir
félagslífi, það er ákaflega erfitt
að fá fólk á fundi, en þeir eru
að sjálfsögðu nauðsynlegir í öll-
um félögum. Þórir Lárusson gjald
keri ÍR gerði grein fyrir reikn-
ingum og þeir voru samþykktir
einum rómi.
Frjálsíþróttamenn ÍR stóðu í
stórræðum á síðasta ári, þeir tóku
m- a. á móti sænskum íþróttaflokki
og frjálsíþróttafólk ÍR fór utan.
Bæði heimsókn Svíanna og utan-
förin tókust með ágætum. Frjáls-
íþróttafólk ÍR setli alls fimm ís-
landsmet á síðasta ári og eitt var
jafnað, einnig voru sett allmörg
unglingamet. í unglingakeppni
Frjálsíþróttasambands íslands
hlaut ÍR fleiri sigur\’egara en
önnur félög og þess má geta, að
ÍR á nú sterkasta frjálsíþrótta-
flokk kvenna hérlendis. Formaður
Frjálsíþróttadeildar ÍR er Þor-
grímur Einarsson.
Körfuknattleiksmenn ÍR stóðu
sig mjög vel í fyrra, urðu bæði
! íslands og Reykjavíkurmeistarar
í 6. sinn í röð. Kvennaflokkur
ÍR var og Reykjavíkurmeistari.
j Á báðum mótunum hlaut félagið
fleiri sigurvegara, en önnur félög
I samanlagt. ÍR tók þátt í Evrópu-
! bikarkeppni körfuknattleiksmeist-
ara og komst fyrst íslenzkra fé-
laga í aðra umferð í slíkri keppni.
Mikill áhugi er ríkjandi í Körfu-
knattleiksdeildinni, sérstaklega er
starfið í yngri flokkunum með
mikilli prýði. Eormaður Körfu-
Sigurður Gunnar Sigurðsson
formaður ÍR.
knattleiksdeildar er Guðmundur
Þorsteinsson.
Snjóleysi hamlar mjög állrt-
starfsemi skíðamanna, en start
Skiðadeildar ÍR er nú sem áður
með miklum ágætum. Skíðafólkt
félagsins hefur verið sköpuð njjög
góð aðstaða í Hamragili og þar er
ávallt múgur og margmenni, þeg-
ar snjór er nægur. Á skíðamótum
stóðu ÍR-ingar sig vel og híutu
marga Reykjavíkurmeistara. For-
maður Skíðadeildar er Sigubjón
Þórðarson.
Sundfólk ÍR var mjög sigursælt
í fyrra eins og undanfarin ár. Fé-
lagið hlaut fleiri íslands- og
Reykjavíkurmeistara í sundi en
nokkurt annað félag og íslands-
met settu ÍR-ingar í tugatali, —
Formaður Sunddeildar er Guð-
mundur Gíslason.
Handknattleiksdeild ÍR varð
fyrir því áfalli í fyrra, að meist-
araflokkur féll niður í 2. deikl.
Síðan yfirgáfu bræðurnir Gylfi og
Gunnlaugur Hjálmarssynir flokk-
inn og verið er að móta nýtt lið
yngri leikmanna. Yngri flokkar ÍR
eru í mikilli framför. Formaður
Handknattleiksdeildar er Birgir
Magnússon.
Mikil deyfð hefur verið yfir
fimleikum í ÍR undanfarin ár og
á síðasta starfsári var eingörigi*
Frh. á 10. síðu.
3:0 GAT EINS ORÐID 6:0
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. maí 1965 •%%