Alþýðublaðið - 15.06.1965, Síða 3
NÝTT LAG
EFIIR
SIGFÚS
við vðld í
SIGFUS HALLDORSSON, tón-
skáld, hefur sent frá sér á nótum
nýtt lag, er nefnist „17. júní í
Reyk.iavík“, og- er textinn eftir Úlf
Ragnarson, lækni.
Lagið ,,17. júní í Reykjavík" er
32. lagið eftir Sigfús. sem gefið
er út á nótum, en öll hafa hin átt
þáð sameiginlegt að hafa verið
ljóðræn og skcmmtileg og vel fall-
in til sönss. enda hefur Sigfús
lagt mikið unp úr því, að textar
væru góðtr við lög sín.
Hið nvia lag Sigfúsar fæst á
nótum í ;Hlióðfæraverzlun Sigrið-
ar Helgádóttur, og vonir standa
til, að hljómsveit Svavars Gests
leiki lag’ð við útihátíðahöldin í
Reykjavík 17. júní.
Saigon, 14. júní. (ntb-reuter).
Herforingjar tóku völdin í Suður
Vietnam í sínar hendur á ný í
dag. í stjórninni eru tíu hershöfð'-
ingjar, sem allir vilja binda endi
á ósigrana í stríðinu og stjórn-
máladeilurnar í Saigon.
Bándaríkjamenn munu hafa
krafizt þess, að stjórnin væri skip
uð tíu mönnum. í morgun var
sagt; að hinn nýi leiðtogi Suður-
Vietnam, Ngueyn Van Thieu, —
mundi mynda stjórn þriggja her-
foringia en bandaríski sendiherr-
ann, Maxwell Taylor hershöfðingi,
sem kom frá Washington í dag,
mun hafa látið í Ijós óánægju með
þessar ráðagerðir og einkum
hlutverk það, sem formanni her-
foringjastjórnarinnar, Nguyen Cao
Ky flugmarskálki, var ætlað að
gegna. Samkvæmt hinum nýju á-
Vatnavextir
í Mið-Evrópu
Belgrad, 14. júní. (ntb-reuter).
Þúsundir hermanna og ó-
breyttra borgara unnu að því í
kvöld að stífla Dóná, sem hefur
flætt yfir bakka sína og er hér
um að ræða mestu vatnavexti í
Austur-Evrópu síðan 1954. —
Mórautt fljótið flæddi í kvöld í
átt til þorpa á landamærum Júgó-
slavíu og Ungverjalands og þús-
undir manna hafa orðið að yfir-
gefa heimili sín.
Vatnsmagn hinnar frægu „bláu
Dónár” hefur aldrei verið meira
og fjöldi þorpa á bökkum hennar
í sjö löndum eru í hættu: Þýzka-
landi, Austurríki. Tékkóslóvakíu,
Rúmeníu, Ungverjalandi, Júgósla-
í víu og Búlgaríu.
Óttast er að álíka margir farizt
eða missi heimili sín vegna flóð-
anna og árið 1954. Þá fórust 15
manns og 50 þús. misstu heimili
sín. í kvöld var vitað um 11, sem
höfðu farizt. Vatnsborðið heldur
áfram að hækka og er búizt við að
þá nái það hámarki á morgun, að
sögn iú^éslavneskra sérfræðinga.
I Fréttir frá Ungverjalandi herma
að yfir 16 þús. manns vinni að
því að treysta stíflugarða við Dóná
j og T'sza fljótið. í austurhlutum
1 Austurrfkis hafa margir stíflu-
garðar brostið.
formum verður Ky marskálkur á-
fram yfirmaður framkvæmdaráðs-
ins en annar herforingi verður
skipaður í formannsembættið.
Meðan þessu fór fram voru yfir
1.000 suður—vietnamiskir fallhlífa
liðar sendir í fiýti til flugvallar 32
km norðvestur af bænum Dong
Xoai. Fréttir hafa borizt um mik-
inn liðssafnað Vietcong í ná-
grenni bæjarins. Sveit bandarískra
fallhlífaliða er við annan flug-
völl, 30 km. fyrir sunnan Dong
Xoai. Þangað voru þeir sendir í
gær og ef þeim verður beitt í bein
um bardögum við Vietcong verður
það í fyrsta skipti sem banda-
rískar hersveitir hafa staðið and-
spænis Vieteong á vígvellinum. Áð
ur hafa bandarískir hermenn að-
eins varið lierstöðvar og starfað
sem ráðunautar.
Ástæðan til liðssafnaðar Banda
ríkjamanna og Suður—Vietnam-
manna við Dong Xoai eru upplýs-
ingar um, að 8.000 Vietcong her-
menn hafi safnast saman í frum
skóginum og á gúmplantekrunum
á þessu svæði.
Bandarískar og suður—vietnam-
iskar flugvélar gerðu í dag loft-
árásir á herskála og brýr í Norð-
ur—Vietnam og nokkur skip undan
ströndinni. I
Gestir Varðbergs
SAMTÖK um vestræna samvinnu
efna til kvöldverðarfundar fyrir
félagsmenn sína og meðlimi í
Varðbergi, félagi áhugamanna um
vestræna samvinnu, þriðjudaginn
15. júní í Þjóðleikhúskjallaran-
um.
Er fundurinn haldinn í tilefni
af heimsókn tveggja bandarískra
gesta frú Mary Lord, fyrrverandi
fulltrúa í sendinefnd Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum, og
Theódór C. Achilles, sendiherra.
Fyrstu laxarnir
Laxveiði hófst í Laxá í Leirársveit að morgni laugardagrsins 12. júní.
Strax fyrsta morguninn komu tveir laxar á land. Hér eru veiðimenn-
irnir með fenginn. Vinstra megin: Vífill Oddsson, verkfræðingur,
með 9 punda lax, og við hlið hans Jón Oddsson, bóndi, með 12 punda
lax. Báðir voru laxarnir veiddir í svokölluðum vaðstreng.
Nýstúdentar frá Laugarvatni áður en þeir lögðu af stað í ferðalag sitt um Borgarfjörð. — (Mynd: JV).
MIKIL SÍLD
UM HELGINA
Reykjavík. — GO.
SÍLDARAFLINN yfir helgina var
95.970 mál á 81 skip. Veiðin skipt-
ist þannig, að sólarhringinn laug-
ardag—sunnudag var hann 65.550
mál á 53 skip, en s.l. sólarliring
30.420 á 28 skip. Veiðisvæðið hef-
ur færzt allmiklu norðar og aust-
ar en fyrr og síldin er enn sem
fyrr stygg og erfið viðureignar.
S.l. sólarhring fengu þessi skip
veíði: Bára 1500 mál, Reykjaborg
2200, Siglfirðingur 1400, Bergvík
600, Þórsnes 500, Dofri 700, Haf-
rún NK 650, Eldey 1300 Akra-
borg 1600, Runólfur 900, Ögri 200,
Pétur Jónsson 670, Héðinn 1000,
Barði 1800, Pétur Sigurðsson 1250,
Hamravík 1200, Baldur 650, Sæ-
úlfur 900, Æskan 600, Sæhrímnir
1400, Lómur 1400, Guðrún Þor-
leifsdóttir 1450, Ólafur Magnús-
son 1700, Óskar Halldórsson 1300,
Fróðaklettur 1200, Mummi 500 og
Gylfi II. 500 mál.
FYRIRLESTUR í
HÁSKÓLANUM
HINN kunni þýzki réttarsÖ3ufræð
ingur, prófesor dr. jur. Wilhelm
Ebel frá háskólanum í Göttingen,
flytur fyrirlestur í boði lagadeild-
ar Háskólans miðvikudag 16. júní
kl. 5,15 e. h.
Fyrirlesturinn, sem fluttur verð
ur á þýzku, nefnist „Uber die
historischen Bear-Elemente des
Gesetzes". Fyrirlesturinn verður
fluttur í I. kennslustofu Háskól-
ans, og er öllum heimill aðgangur.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. júní 1965 3