Alþýðublaðið - 25.06.1965, Side 6
eFnín
Lok tóbaksrækt
unar í Svíþjóð
FUNDURINN var kallaður mesta
ljóða-lestrar (og skrifta) ráðstefna
heims. Fólk slóst um að komast
inn í Aibert Hall í London, þar
sem „International Poetry Confe-
rence“ var haldin fyrir skemmstu
SVÍNSLIFUR
í SJÚKLING
Hópur lækna í Boston hefur
með góðum árangri tengt svínslif-
ur við blóðrás 34 ára gamallar
konu og jafnframt „kúplað frá”
hennar eigin lifur, sem var orðin
bólgin, til þess að hvíla hana. Dr.
William McDermott, sem var aðal
skurðlæknir við aðgerðina, upp-
lýsir, að aðgerðin, sem enn stend-
ur yfir, muni sennilega bjarga lífi
konunnar. Komið var með svíns
lifrina í gerilsneyddum kassa og
hún tengd við slagæð í öðrum
handlegg sjúklingsins. Blóðið frá
svínslifrinni er lt'itt aftur inn í
æðar hennar með dælu af þeirri
gerð sem notaðar eru við skurð-
aðgerðir á hjarta.
undir stjórn ameríska ,,beat“ Ijóð
skáldsins Allen Ginsberg, zenbúdd
ista, sem fyrir nokkru vai> vísað úr
landi í Tékkóslóvakíu. Ráðstefnan
varð nú raunar ekki eins stór-
kostleg og ýmsir höfðu talið lík-
legt fyrirfram og jafnvel vonað,
en flestir áheyrendur voru samt
ánægðir, vafalaust í og með vegna
þess að þeir fengu nú í fyrsta sinn
að heyra „bönnuð.. orð í sal Al-
berts prins. Stöku skáld veltu sér
upp úr orðum, sem Viktoría
drottning hefði tæplega verið
mjög hrifin af — ef hún hefði þá
kunnað þau, bætir eitt brezkt
blað við.
Frá hreinu bókmenntasjónar-
miði missti þessi kvöldstund nokk-
uð af gildi sínu við það, að tvö
fræg rússnesk skáld, Anna Akh-
matova og Andrei Voznesenki, og
hinn ágæti Pablo Neruda frá
Chile, sem öll eru um þessar mund
ir stödd í Bretlandi, komu ekki
frani. Ekki létu þeir heldur sjá
sig Jack Kerouac eða Jean Genet,
eins og þó hafði verið látið í skína
fyrirfram, að þeir mundu gera.
Þetta var eiginlega meira „show"
og kátína en bókmenntalegur við-
burður.
Auk Ginsbergs sjálfs, sem söng
söngva frá Tíbet, komu fram Hol-
lendingurinn Simon Vinkenoog,
Ameríkumennirnir Laurence Fer-
y
„Beatnikkinn” Allen Ginsberg myndaður með kollega
William Shakespeare.
DÓMARI einn í Rómaborg yfir-
heyrði nýlega filmstjörnuna Ginu
Lollobrigidu vegna meintra „óan-
stondugrar senu“ í kvikmyndinni
Brúðurnar, og hún kom út aftur
brosandi eftir tvo klukkutíma —
sannfærð um sakleysi sitt.
— Hún hefur þá bjargföstu trú,
að dómarinn muni komast að rétt
látri niðurstöðu sagði lögfræðing-
ur stjörnunnar, Emanuele Gilino.
— Hún telur sig ekki hafa að-
hafzt neitt rangt, aðeins leikið í
kvikmynd sem stjórnað er af góð-
um leikstjóra. Sjálf sagði Gina
ekki neitt, en lét sér nægja að
brosa til ljósmyndaranna, sem að
sjálfsögðu voru viðstaddir.
Ákæran á hendur Ginu hljóðar
upp á, að hún hafi komið fram nak
in í myndinni, þar sem hún leikur
veitingakonu á hóteli einu, sem
forfærir saklausan frænda eins
kaþólsks preláta, sem situr kirkju
þingið í Vatikaninu. Áreiðanleg
heimild segir, að Gina hafi haldið
því fram við dómarann, að hún
liafi ekki verið nakin, heldur
klædd holdlitum, þéttskornum
fötum. Dómarinn tekur svo á-
kvörðun um, hvort hún skuli
kærð.
löggjöf stjórnarinnar, þar sem á-
kveðið er, að kvikmyndir, sem
teknar séu á Ítalíu, skuli vera í
samræmi við siðareglur. Áreiðan
. legar heimildir telja, að kristileg-
• ir demókratar muni draga breyt-
ingatillöguna til baka, en í stað
Framhald á 15. síðu
Á meðan Gina sat frammi fyrir
dómaranum voru leiðtogar flokk
anna, sem mynda samsteypu-
stjórnina á Ítalíu að reyna að
bræða saman einhverja mála-
miðlunarlausn varðandi siðferði í
kvikmvndum. Fyrir tveim vikum
settu kristilegir demókratar fram
breytingartillögu við kvikmynda-
lenghetti, Michael Horovitz, Adri-
an Mitchell, Christopher Logue
og George Macbeth. Aðeins örfá-
ir hneigðu sig fyrir áheyrendum^
hinir lyftu höndum eins og sigur
sælir boxarar.
Myndin, sem felld er inn I hér að ofan, er teikning af Gubbhyllan,
hinum fræga veitingastað, sem tekinn hefur verið í sundur og fluttur
frá Hasselbacken og settur saman aftur og notaður sem tóbaksminja-
safn á Skansinum í Stokkhólmi. Tilefnið er 50 ára afmæli sænska
tóbaksfélagsins, sem nýlega var haldið upp á með mikilli viðhöfn
í Stokkhólmi. Tóbaksuppskeran í fyrra var hin síðasta í 250 ára sögu
tóbaksfélagsins, sem nýlega var haldið upp á með mikilli viðhöfn
hefur einnig látið gera heimildarkvikmynd um sænska tóbaksrækt
með Alida Olsson í aðalhlutverki. Hún hefur ræktað tóbak síðan hún
var smáteipa og á myndinni hér með situr hún og þræðir tóbaksblöð
upp á pinna til að hengja þau til þerris.
STORMUR UM SIÐGÆÐI
I ÍTÖLSKUM MYNDUM
Hefði Viktoría
þekkt öll orðin?
0 25. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ