Alþýðublaðið - 13.07.1965, Blaðsíða 15
Sérstætt
eins og yðar
eigið
fíngrafar.
Ávallt fyrirliggjandi.
Laugavegi 178. — Síml 38000.
EYJAFLUG
MEÐ HELGAFELLI KJÓTID ÞÉR
ÚTSÝNIS, FLJÓTRA
OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA.
vizka á jazzinum hefur
skapað hinan fáránleg-
ustu hugmyndir um
hann, sem breiðst hafa
út milli þeirra, sem eru
móttækilegir fyrir slíku,
og hefur þetta orðið til
þess að fjölmargir hafa
snúizt gegn jazzmúsik.
Þetta hefur jafnvel geng
ið svo langt að einstaka
menn hafa lagt hatur á
hana, og í blaði Félags
ísl. tónlistarmdnna hafa
verið ritaðar svívirðileg-
ar niðurlægingargreinar
um jazz. M. a. hefur einn
af okkar betri píanóleik-
urum sagt þar að spyrna
beri á móti þessum ó-
fögnuði, sem teygi sig út
fyrir sinn verkahring
með því að taka að láni
ýmsar dýrustu perlur
klassiskra tónbókmennta.
Þetta sannar mjög vel
hve fáfræði manna er
mikil á þessu sviði og
með því að brigzla jazz
tónskáldum um að þeir>
steli klassiskum verkum,
vegna þess að þeir geti
ekki lengur staðið á eigin
fótum sýnir píanóleikar-
inn hversu lítið vit hann
hefur á jazzmúsik.
Klassisk lög er aldrei
hægt að nota sem undir-
stöðu í jazzlög, enda ger
ist þess ekki þörf þar
og meira við af sígildum
sem sífellt bætist meira
jazzlögum. Aftur á móti
hafa verið sett út lög
(m. a. eftir Chopin) fyr-
ir danshljómsveitir, en
Burt með jazzinn
VIÐ LITUM inn í forn-
bókaverzlun á Hverfis
götunni um daginn, og
rákumst þar m. a. á gam-
alt tímarit er hét „Jazz
blaðið“, Útgefendur þess
>g ábyrgðarmenn voru
þeir Hallur Símonarson
og Svavar Gests, en ein
takið er síðan 1948, og
gefur líklega nokkuð
góða mynd af skemmt-
analífinu eins og það var
aá, eða a. m. k. hvernig
tónlist var þá mest í há-
regum. Eins og nafnið
bendir til, er. það þó eink
um jazz, sem skrifað er
um, og kynntir margir
af helztu hljóðfæraleik-
urum á þeim tíma, bæði
innlendir og erlendir.
Forsíðumyndin er af
Trausta Th. Óskarssyni
gítarleikara, og er grein
um hann inni í blaðinu.
Næst eru jazz hugleið
ingar eftir Ólaf Gauk, og
ræðir hann einkum um
jazzáhuga á íslandi, sem
virðist fara ört vaxandi
um þær mundir. Og á
hann virðist hafa verið
litið svipað og litið er á
bítlatónlistina í dag,
nema hvað miklu fleiri
tónlistarmenn voru á
móti honum. Ólafur segir
ma.: ,,Hin almenna fá
Piltinn þekkið þið, hann heitir Dave Clark. Stúlkurnar tvær stofnuðu
„aðdáendaklúbb“ þar sem hann er mjögr í hávegum hafður, og telur klúbb-
urinn hundruð meðlima. Þetta er í sjálfu sér ekki svo merkilegt, en hitt er at-
hyglisvert að systurnar eiga sjálfar fræg ann söngvara fyrir bróður, og hafa
aldrei stofnað aðdáendaklúbb kringum hann. Bróðirinn heitir Cliff Richard..
kvikmyndir
skemmtanir
dœguriög ofl.
þau lög myndi enginn
jazzisti viðurkenna sem
góðan jazz, heldur í
mesta lagi sem lélega
dægurlagamúsik, sem
eins og menn vita (von-
andi) getur alls ekki tal
ist til jazzins.
Maður sem gerir ekki
greinarmun á jazz ann-
arsvegar og dægur- og
danslögum hinsvegar hef
ur augsýnilega engan
skilning á jazzmúsik, og
ætti ekki að ana út í að
skrifa um hana. Svo sem
sjá má af þessum skrif-
um Ólafs, hefur staðið
styrr um dansmúsik og
þess háttar, löngu áður
en bítlar, twist og annaS
slíkt kom til sögunnar.
Seinna munum yið mínn
ast meira á þetta gamla
jazzblað, m. a. á ritdeil-
ur milli þeirra Svavars
Gests og Jóns Múla Áríia
sonar.
■y-ia——bmm—
AFGREIÐSLURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
REYKJAVÍKURFLUGVELll 22120
Koparpípur og
Fittings,
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Rennilokar,
Blöndunartæki.
Burstafell
byggingavöruverzlun,
Réttarholtsvegi 3.
Sími 3 88 49.
Síldarflutningar
Framhald af 7. síðu
fljótlega hagkvæmari en aðrar
kæliaðferðir, einmitt á þessu
sviði.
Mikið vantar á að full vitneskja
sé fyrir hendi um geymslu síldar
við þær aðstæður sem slík flutn-
ingaskip veita, liyort sem um
væri að ræða ísun, sjókælingu,
pækilvörzlu eða aðrar aðferðir.
Þetta verða rannsóknir og tilraun
ir að leiða í Ijós. Allar horfur
virðast þó vera á því að hægt sé
að framkvæma þessa hluti á hag-
kvæman hátt, og fyrirhugaðar eru
tilraunir strax ó næsta sumri.
Það gefur auga leið, að notkun
flutningaskipa í þessum tilgangi
mundi veita fiskiðnaði og fisk
veiðum okkar allmikið aukið ör
yggi-
Indverjar
Framhald úr opnu.
um. Indverskir þjóðernissinnar
gagnrýndu ávallt þessi ferðalög,
og þegar Indland hlaut sjálfstæði,
var endi bundinn á þau. Sagt var
að stjórn fátæks lands ætti ekkl
að eyða svo miklu fé til að leita
eftir góðum vinnuskilyrðum í sval-
ara loftslagi langt frá hinum
þjáða landslýð.
Þess vegna héldu ráðherrar
si.jórnarinnar kyrru fyrir í Delhi
án tillits til þess hve heitt væri I
veðri, en með einni mikilvægri
undantekningu. Öllum þeim, sem
nógu háttsettir eru, tekst að finna
opinbera átyllu til að koma sér
buru, enda þótt þeir hafi loft
kældar skrifstofur og íbúðir.
Síðan í maílok hafa ellefu ráðherr
ar af fimmtán forðað sér frá Delhi,
flestir til heilbrigðs loftslags í
Evrópulöndum eða annars staðar.
Sumir hafa verið í vináttuheim-
sóknum, aðrir hafa farið í ferða-
lög á vegum stjórnarinnar til að
semja um verzlun, samvinnu, að-
stoð o. fl. Enn aðrir hafa farið til
annarra landa til að skiptast á
skoðunum við ráðamenn og til
þess að læra og allt þjónar þetta
sínum tilgangi fyrir vanþróað
land sem Indland.
En í fylgd með hvenjum ráð
herra er heil hersing aðstoðar-
manna, ritara o. s. frv. Allt kostar
þetta geysimikið fé. Á sama tíma
og gjaldeyris skorturinn er svo
alvar.legur, að enginn venjulegur
borgari fær ferðagjaldeyri ef svo
ótrúlega skyldi vilja til að hann
hefði ráð á slíku, hafa þessi um-
fangsmiklu ferðalög ráðuneytis-
rtarfsmanna vakið lalmenna
gremju.
Þegar þetta er skrifað biður
fóik eftir regntímanum, sem látið
hefur bíða eftir sér og vekur
Delhi aftur úr dvala og færir alla
ráðherra og stjórnarmenn aftur á
sinn stað. Kusum Nair.
fctjóðleikhúsið
Framhald af 2. síðu.
Sardasfurstinnan, eftir Emmer
ich Kálmán. Leíkstjóri: István
Szalatsy. Hljómsveitairstjóri: Ragn
■ars Björnssonar, 19 sýningar.
Kröfuhafar eftir August Strind
berg. Leikstjóri: Lárus Pálsson-
13 sýningar:
Mjallhvít, barnaleikrit eftir
Margarete Kaiser o.fl. Leikstjóri
Klemenz Jónsson. Hljómsveitar
stjóri: Carl Billich. 9 sýningar
Kóreu-ballettinn Arirang gesta
leikur. 3 sýningair.
Stöðvið heiminn, eftir Leslie
Bricusse og Anthony Newley.
Leistjóri: Ivo Cramér- Hljómsveit
arstjórar: E- Eckert-Lundin, Magn
ús Bl. Jóhannesson, Jón Sigurðs
son. 28 sýninga'r.
Hver er hræddur við Virginiu
Woolf? eftir Edward Albee- Leik
Leikstjóri: Baldvin Halldórsson.
33 sýningar í Reykj<a vík, leikför
út á landi stendur yfiir.
Nöldur^ eftir Gustav Wied og
Sköllótía söngkonan, eftir E. Io
nesco. Leikstjóri: Benedikt Árna
son- 32 sýningar-
Kardcmommubaerinn, barnaleik
rit eftir Thorbjörn Egner. Leik
stjóri: Klemenz Jónsson. Hljóm
sveitarstjóri Carl Billich. 20 sýn
ingar.
Sannleikur í gifsj, eftir Agnar
Þórðarson. Leikstjóri: Gísli A1
freðsson. 9 sýningar.
Tónleikar og Listdanssýning,
höfundur og stjórnandi Listdansa
sýningar: Fay Werner.
Járnhausinn, eftir Jónas og Jón
Múla Árnasyni- Leikstjóri: B'ald
vin Halldórsson- Hljómsveitarstjór
ar: Magnús Ingimarsson og Magn
ús Bl. Jóhannsson. 25 sýningar.
Madame Butterfly eftjr G. Pucc
ini. Leikstjórl: Leif Söderström.
Hljómsveitarstjóri: Nils Grevilliua
13 sýningar.
Geimfararnir
Frh. af 1. síðu.
að hilla undir geimferð. Hálfu ári
fyrir geimför verður syo þriggja
manna áhöfn valin og hún sett í
sérstaka þjálfun.
Það kom fram á fundinum, að
hægt er að fara um fjórar mílur
frá geimfari á tunglinu án þess að
missa sjónar á því eða mdíósam,
band við það. Hins vegar telja
geimfaraefnin, að fyrstu geimfar-
arnir muni vart fana lengra burt
frá geimfari í fyrstu skiptin en
svo sem liálfa mílu. Kemur þar til
takmarkaður súrefnisforði og
fleira, svo og það, að í fyrstu
könnunarferðum er ekki vert að
hætta á of mikið.
Ferðaáætlun geimfaraefnanna
hér á landi er sem hér segir: Éld
snemma á mánudagsmorgun foru
þeir flugleiðis til Akureyrar og
þaðan akandi til Öskju. Þar dvöld-
ust þeir allan þriðjudaginn. en á
miðvikudagsmorgun er ætlunin að
halda snemma til Akureyrar, það
an flugleiðis til Keflavíkur ýfir
Lakagígi og sennilega Surtsey.
Fimmtudaginn hafa þeir fr-f, en þá
hafa Loftleiðir í hyggju að bjóða
þeim í svifflug á Sandskeiði og á
hestbak, mætti það vera skemmti-
leg andstaða fyrir menn, sem
flestir hverjir eru þotumenn. Á'
föstudag verður lialdið til Laka-
gíga og komið 'aftur seint á laug
ardag, en vestur um haf ialda
þeir aftur á sunnudagsmorgun.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. júlí 1965* 15