Alþýðublaðið - 18.12.1965, Síða 1
Laugardagur 18. desember 1965 - 45. árg. - 288. tbl. - VERÐ 5 KR,
;:'-Xv:
:
25.000 FÓRUSI
IFELLIBYLNUM
KARACHI, 17. des. (ntb-reuter).
Hrísgrjónum og lyfjum var í dag
dreift meðal þeirra mörgu þús-
unda manna, sem lifðu af felli-
METGRÓÐI
HJÁ SAS
Kaupmannaliöfn, 17. des. (ntb).
SAS skýrði í dag frá met-
gróða á rekstri félagsins. Nettó-
gróðinn nemur 103.4 milljónum
'norskra króna á þessu ári, en
það er nær 7 milljón króna meiri
gróði en í fyrra.
Tekjuaukningin nemur 12%
rniðað við síðasta ár. Farþegum
fjölgaði um 10%, farmur jókst
um 20% og flugpóstur um 14%.
Nilsson forstjóri sagði á blaða-
mannafundi eftir að stjórn félags
ins hafði fjallað um reikninga
þess, að þakka mætti hina hag-
stæðu útkomu góðri samvinnu
allra starfsmanna SAS. Hann
kvaðst sannfærður um, að SAS
gæti sigrast á mörgum erfiðleik-
um í framtíðinni.
oooooooooooooooc
Opið til
klukkðn 10
EINS og venjulega fyrir
jól, er lokunartími verzlana
nokkuð á annan veg en
venjulega. Þannig eru búðir
opnar til klukkau 10 í kvöld,
laugardag og til miðnættis
'á fimmtudag, á föstudag,
sem er aðfangadagur, eru
þær hins vegar ekki opnar
nema til hádegis. Eftir jól
opna aimennar ver/Ianir
þann 27. des. Én þá er starfs
fólk ekki skyldugt að mæta
til vinnu fyrr en klukkan 10
um morguninn. Svo eiga all
ar verzlanir að vera búnar
að loka klukkan 12 á hádegi
á gamlársdag.
xxxxxxxxx>oooo<x>
bylinn, sem geisaði i Austur-Pa-
kistan á þriðjudag og miðvikudag.
Fyrstu opinberu skýrslur herma,
að 25 þús. manns hafi farizt. í
maí síðastliðnum týndu 17 þús.
manns lífi í svipuðum fellibyl í
Austur-Pákistan og blaðafréttir
í dag herma, að talsvert fleira
fólk hafi týnt lifi í síðasta felli-
bylnum.
Fulltrúi stjórnarinnar í Chitta-
gong hefur ferðazt um svæði þau,
þar sem fárviðrið geisaði, — og
segir, að eyðileggingarnar séu
mjög víðtækar. Einkum eru eyði-
leggingarnar miklar á 30 km.
breiðu strandsvæði frá hafnar-
bænum Chittagong til baðstrand-
arinnar Cox’s Basar, 100 km. í
suöurátt. Sennilega voru flestir
þeir, sem fórust, fiskimenn og
íbúar margra eyja undan strönd-
inni. Enn er sambandslaust við
þessar eyjar og blöð herma, að
þar hafi 10—15 þús. manns týnt
lífi.
í Chittagong hefur 71 týnt lífi.
Eignatjón er tilfinnanlegt, en
ekki eins mikið og í fellibyljun-
um 1910 og 1963, þegar 10 þús.
og 14 þúsund manns týndu lífi.
Bandáríkjamenn hafa þegar
gefið þeim sem um sárt eiga að
binda vegna fellibylsins um 11
milljónir (íslenzkra) króna. Vest-
ur-Þjóðverjar hétu í dag Ayub
Khan forseta tafarlausri aðstoð.
Forsetinn er í heimsókn í Bonn.
DREGIÐ Á ÞORLÁKSMESSU
□ Nú fer hver að verða síðastur að fá sér miða í Happdrætti Alþýðu-
‘blaðsins.
□ Dregið á firruntudag, Þorláksmessu.
□ 3 bílar í boði.
□ Skrifstofan er á Hverfisgötu 4.
□ Opið til klukkan 22 í kvöld.
Happdrætti Alþýðublaðsins
samn
Washington, 17. des. (ntb-reút).
Bandaríska utanríkisráðuneytið
tilkynnti í dag, að bandarísku
stjórninni hefði borizt orðsending,
sem menn teldu nýja friðarum-
leitun af hálfu Norður-Vietnam.
Johnson forseta hefur borizt
bréf frá forseta Allsherjarþings
SÞ, Amintore Fanfani utanríkis-
ráðherra Ítalíu, þar sem segir, að
Ho Chi Minh, forseti Norður-
Vietnam, segist vera fús til að
fara hverl sem er og hitta hvern
sem er.
Ho Chi Minh segir, að stjórn-
in í Hanoi sé fús að hefja samn-
ingaviðræður án þess að krefjast
þess fyrst, að Bandaríkjamenn
flytji burtu herlið sitt frá Viet-
nam. Bandariska utanríkisráðu-
neytið segir, að það reyni nú
að kanna skilyrðin
ingaviðræðum.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur birt texta bréfs frá Fan-
fani til Johnsons, dagsett 20. nóv. i sem stjórnin í Hanoi séu reið«-
og svar frá Dean Rusk utanríkis i búin að fiefja samningaviðræður
ráðherra, dagsett 4. desember.
í svarinu segir, að svo virðist Framhald á 15. sííiu.
JÓLABLAÐ ALÞÝÐUBLAÐSINS
SUNNIJDAGSBLAÐH) verður borið út með laugardags
blaðinu að þessu sinni. Er það jólablað, nokkru stærra en venju
leg blöð. Af efni þess má ncfna greinar um jólahald fyrri tima,
um sólina og um kirkjulist í Eþíópíu. Þá eru í blaðinu tvö ljóð
eftir Gest Guðfiámsson, kvæði eftir Hjört Pálsson og helgi-
kvæðið Maríu blóm eftir Hall Ögmundsson. Smásögur eru nokkr
ar í blaðinu, þeirra mest sagan Pípa mannætuhöfðingjans eftir
Hja Ehrenburg. Einnig er í blaðinu barnaþátturinn Sitthvað
fyrir börnln.