Alþýðublaðið - 19.12.1965, Side 10
JÓLABÆKUR Ægisútgáfunnar
Gíldi góðleikans -
Ævar Kvarán segir frá
er stórfróðleg og skemmtileg bók
— Tilvalin jólabók fyrir hugsandi
fólk á öllum aldri. Frásagnar-
snilld Ævars hefur aldrei notið
sín betur en í þessari bók, sem
flytur 22 þætti, hvem öðrum
betri um margvísleg efni. Þetta
er bók sem öllum kemur vel að
fá í jólagjöf.
'Leikur örlaganna
eftir hina frægu skáídkonu Sig-
rid Undset. Þetta er bók í sér-
flokki sinnar tcgundar, og vafa
laust sú bókin, sem vandlátir les
endur óska sér. Jólabók unnust
unnar, eiginkonunnar, móðurinn-
ar.
Sigling fyrir Núpa
sjómannabók, sem allir sjómenn
þurfa að eignast og lesa. — Þetta
er ekki rómantísk vella, heldur
fiskimannasaga, djörf og hispurs
laus, með sínum ljósu blettum og
dimmu skuggum.
Saga gömlu sægarpanna er for
vitnileg og við sjáum þá ljóslifandi
fyrir okkur þessa herramenn í
ríki sínu. Ættjarðarljóð að vest
an er saga fiskimannsins, sögð á
nokkuð annan veg en við eigum
að venjast. — Þetta er jólabók
sjómanna.
Hafrét og hol-
skeflur
Jónast St. Lúðvíksson sá um út
gáfuna. — Þessa bók þarf ekki að
fjölyrða um. Fyrri bækur sömu
tegundar hafa selzt upp á svip
stundu og þessi fer vafalaust eins.
Þeir, sem eiga hinar bækurnar
ættu að tryggja sér eintak af þess
ari sem fyrst.
Úr syrpu Halldórs
Péturssonar
Ævisaga Halldórs Hómers, leik
ara og kynjakarls. Úrlífi ömmu
minnar, Frá ísaárunum o.m.fl.
Margar frásagnir í þessari bók
eru afbragðsgóðar. Halldór er
fræðasjór og segir skemmtilega
frá, enda þegar þjóðkunnur fyrir
Ævisögu Eyjafellsmóra og fjöl-
margar greinar í tímarit og les
bækur. — Óskabók allra sem unna
þjóðlegum fróðleik.
Örninn í Haga-
fjalli
Sérstæð bók um atburð, sem ekki
á hliðstæðu. Örn tekur 3 ára
barn og ber til fjalls. Barnið
bjargast á undursamlegan hátt. —
48 myndir prýða bókina, sem er
þrungin dramatískri spennu frá
upphafi til enda. Þetta er bók,
sem allir hafa gaman af að lesa.
Vestanátt
eftir Rósberg G. Snædal
10 smásögur úr nútímalífinu. Rós
berg hefur þegar gefið út margar
bækur sem verið hafa eftirlæti
bókavina.
Þegar birtir af
degi
Skáldsaga frá Sardínu. Bókin fjall
ar um líf, störf og ástamál lækn
is á Sardiníu. Það er heitt blóð
í Suðurlandabúum og þessi bók
er djörf og hispurslaus.
GÓÐ BÓK E R BEZTA JÓLAGJÖFIN.
Spyrjið um bók frá Æg isútgáfunni og þér munuð fá eitthvað við alfra hæfi
10 19- des. 1965 -
íú.flf -•t- ip/ . «f'4s
ALÞÝÐUBLAÐIÐ