Vísir - 04.02.1959, Blaðsíða 1

Vísir - 04.02.1959, Blaðsíða 1
Hans Hedtoft-slysið: Nú halda menn, að þeir hafi séi neyðarljós. Þjóðverji sendi merkin, sem heyrðusf á dögunum. Einkaskeyti til Vísis. — Khöfn í gærkvökli. Fregn frá Halifax í Nova Scotia, Kanada, hermir að l'rá Strandgæzluskipinu Campbell liafi sást neyðarblys í gær- kvöldi, og var þetta á þeim slóðum, þar sem talið er, að danska skipið Hans Hedtoft hafi farist. Þ-á segir, að úr flugvél hafi einnig sést daufur Ijósbjanni um 96 km. suðvestur >f Hvarfi. Úr flugv.élum og leitarskip- tim hafa sést samtals þrjár Junnur á reki á leitarvsæðinu. Nefnd fjallar um jGrænlandssiglingar. Kai Lindberg Grænlands- ráðhería hefur skipað níu jnanna nefnd til þess að ræða siglingar til Grænlands. A. H. [Vedel, fyrrverandi yfirmaður danska flotans, er formaður hennár. Samúarskeyti frá páfa. Hans heilagleiki Jóhannes páfi hefur sent Friðrik kon- ungi samúðarskeyti vegna slyssins við Grænland. Fölsk neyðarmerki. „Radioamatör“ nokkur í Vestur-Þýzkalandi hefur játað að hafa sent út fölsuð neyðar- merki, frá fólki, sem bjargast hafi (í báta), er Hans Hedtoft sökk. Kveðst hann ekki hafa gert þetta í illum tilgangi, heldur til þess að leitin yrði hert sem mest. Macmillan ihugar Moskvuheimsókn. f Lomlon er nú mikið rætt um |>að, að Harold Macmillan fari til Moskvu í boði sovétstjórnarinn- ar — og hafi nú slíkt boð til íluig- ixnar. Blöðin í morgun ræða þetta mál og eru heimssókninni hlynnt. Þekkist Macmillanboðið sem lik- legt er, fer hann ekki til þess að semja, heldur til að endurnýja persónuleg kynni og stofna til nýrra. Selwyn Lloyd utanríkis- ráðherra yrði með honum i ferð- inni. O Kelly heimsiækir Randarikin. O’KelIy, forseti Eire fer i oþin- bera heimsókn til Bandarík.janna í næsta mánuði. Hann mun verða í New York 17. marz á þjóðminningardegi Ira. O’Kelly fer í heimsókn til Eisenhowers forseta og mun lieimsækja ýmsa borgir í Banda- ríkjunum. Leitinni var haldið áfram í gær og tóku 14 flugvélar og fimm skip þátt í henni. Skipin leituðu hafnar í gærkvöldi vegna veðurs, en munu hafa farið út með morgninum. Flug- vélar ætluðu að vera á sveimi yfir leitarsvæðinu í nótt. Veð- urskilyrði eru stöðugt erfið, en vind hefur þó lægt allmjög síðan slysið varð, og var 4—5 stig í gær. Snjókoma var. Veð- urskilyrði voru heldur versn- andi í gærkvöldi. ing geti náð enn meiri hraða en á reynslufluginu. Eldingunni. Myndin er af R. P. Beamont, flugmanni, sem fyrir nokkru ílaug brezkri orrustuflugvél af nýrri gerð, Elding- xrnui, með tvöföldum hraða hljóðsins. Hann flaug með 2048 km. hraða á klukkustund. Náði hann þessum hraða á flugi yfir ír- landshafi. Framleið- endurnir halda því fram, að þetta sé hraðfleygasta tveggja hreyfla, „allra veðra“ orrustuflugvél, sem framleidd hefur verið. Beamont segir, að Eld- Á myndinni er liann að skoða líkan af Tokyo lék á reiðiskjálfi. Nýlcga vöknuðu menn í To- kyo við vondan draxxm — jarð- hræringar. Var um all-snarpan kipp að ræða, sem stóð í samfleytt 15 sekúndur. Varð nokkurt tjón á byggingum sums staðar, en manntjón varð ekkert — menn sluppu með skrekkinn. Tekur uýtt hótel til starfa hér á næstunni? Stofnað hefur verið hluta- féiag, sem heitir City Hotel. Öllum hefur um langt skeið verið ljós þörfin á því, að hér verði komið upp nýju gistihúsi, og virðlst nú hilla undir, að slik stofnun taki til starfa lxér. Gistiherbergi eru hér fæm en fyrir strið — nema ef til vill að sumarlagi, þegar stúdentagarð- arnir eru notaðir fyrir ferða- menn — og hefur skapnzt af þessu mesta yanræða- og van- sæmdarástand, þar sem ferða- mannastraumur til Reykjavíkur er margfalt meiri en áður. Er það kunnara en frá þurfi að segja, að málið hefur verið rætt og sumir jafnvel undirbúið mikl- ar áætlanir, en lengra hefur það aldrei komizt. Nú virðast hinsvegár horfur á því, að eitthvnð fari að gerast í rháli þessu, þvi að hér hefur verið stofnað hlutafélag, sem hef ur stofnun gistihúss og rekstur að markmiði. Sést þetta á til- kynningu til hlutafélagsskrár i Reykjavík í 11. tbl. Lögbirtinga blaðsins þ. 31. janúar s.l. og er þar skýrt írá því, að tilgangur hins nýstofnaða félags sé sá, að annast rekstur gistihúss, veit- ingastarfsemi og annan skyldan rekstur. Að þvi er Vísir hefur lauslega fregnað mun hlutafélag þetta þegar vera búið að fá húsnæöi til umráða, er mun ætlað sem gisti- hús, en hvenær það heíur starí- semi sina veit blaðið ékki. Þetta hús mun vera i Vesturbænum. Heiti hins nýstofnaða félags er City Hótel h.f. og er Sveinn B. Valfells framkvæmdastjóri þess. -jc í tveggja daga bardögum í Alsír hafa 11 franskir her- menn fallið og 69 uppreist- armenn. Tugir Ungverja handteknir. í Ungver.jalandi hafa 60 manns veríðhnepptir í fangelsi sakaðir um f.járdrátt og svik eins og seg- ir í blaðinu Nepszabadsag-, sem •rex’-'ð er út í Bxidapest. Menn þessir eru alI'V i veitinga mannastétt og eiga þeir að hafa smyglað „fyrrverandi barónum, "reifum og mönnum sem reka stór veitingahús" inn í opinberar stöður svo og að hafa rekið ólög- leg brugghús. Flugslys í New York-borg - 60-70 manns farast. Farþegaþota steyptist í Austurelfu. Baudarísk farþegaþota fórst í gærkvöldi, er hún var að koma frá Chicago til New York. Hrapaði hún í Austui'elfi (East River). Margir menn fórust og hafa nokkur lik fund- ist. — Farþegar munu hafa verið um 70. I síðai-i fregn segir, að farþegar liafi verið 67, á- höfn 5, samtals 72, og hafi 10 a. m. k. bjargast, en sú tala gæti hækkað upp í 12 —14. Fundist hafa 25 lík. Harður straxxmur er niðri í fljótinu. Rigning var og mistur, og mun slysið stafa af því að lending mistókst, er renna átti flugvélinni niður á eina flugbraut La Guardia flugvéllar. Flug- vélin var af Elektra-gerð. Flugslys í Ástralíu. Átta menn farast. N eptune-sprengj ulf ugvél fórst í morguu nálægt flug- stöð í nokkurri fjarlægð frá Sidney í Ástralíu. Allir, sem í flugvélinni voru, 8 menn, biðu bana. Dulmálsstríð á Norðursjó. Frá fréttaritara Vísis. Khöfn í fyrradag. „Styrjöld" er hafin á Norður- sjó, og er hún fólgin í því, að enskir fiskimenn nota nú dulmál til að girða fyrii', að fiskimenn annarra þjóða komist að því, hvar helzt er afla að fá. Enskir fiskimenn telja, að fiskimenn annarra þjóða leggi við hlustirnar, þegar þeir tala um aflabi'ögð og veiðisvæði og • ætla að koma í veg fyrir, að aðr- ir geti notið slíkra upplýsinga en menn af þeirra eigin þjóð. Hafa danskir fiskimenn reiðst þessu, og ætla þeir nú einnig að taka upp dulmál, svo að Englending- ar finni ekki veiðistaði þá, sem þeii- fá afla á. 10 togaraförmum landað hér síðan 20. jan. Enn er míkHI afli við Nýfundnaland. Síðan 20. janúar liafa 10 tog- arar landað í Reykjavik. Allir voru þeir á Nýfundnalaudsmið- mn nenia Geir, sem var við Is- land. Enn er uppgripa afli við Nýfixndnaland, en undanfarið hafa togararnir orðið fyrir töf- um vegna storma. Sólargangur er nú orðinn lang. ur þar suður frá, en hvað úr hverju má fara að búast við ís- reki, segja kunnugir. Eftirtalin skip hafa landað í Reykjavik: Þoi-móður goði 390 lestlr, Úranus 297, Jón Þorláksson 301, Vöttur 283, Geir 196, Þorkell Máni 384, Hvalfell 279, Pétur HaHdórsson 341, Marz 315. Úi-anus er væntan- legur á morgun. Nokkur skip hafa verið á lieimamiðum. Afli er tregur og veður óstillt. Sigla þeir flestir með lítinn afla. Egill Skallagríms son er nú á útleið með um 150 Iestlr. <

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.