Vísir - 13.01.1960, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 13. janúar 1960
VÍSIR
Netafiskurinn.
Nú róa allir bátar með línu og
fiskurinn, sem berst á land, er
yfirleitt mesta gæðavara:
ferskur vel og yfirleitt vel með
farinn. Er víst ekki ofmælt, að
línufiskurinn okkar sé heims-
ins mesti gæðafiskur. En ef að
likum lætur, þá má búast við
að „hveitibrauðsdagarnir" taki
brátt enda, en hinn ömurlegi
raunveruleiki hversdagslífsins
haldi innreið sína í gerfi neta-
morkunnar, enda er ekki of-
mælt, að allir þeir, sem við fisk-
vinnslu fást, hugsi með kvíða til
netavertíðarinnar og þeirra
vandræða, sem henni eru sam-
fara.
Gæði netafisksins:
Hvers vegna er netafiskurinn
svona slæmur? Ástæðurnar eru
fyrst og fremst tvennskonar:
í fyrsta lagi gerir veiðiaðferðin
sjálf það að verkum, að fiskur-
inn tapar miklu af geymsluþoli
sínu og bragðgæðum við að
berjast um í netunum langa
stund, að ekki sé talað um, þeg-
ar fiskurinn beinlínis drepst í
netunum. Þegar fiskurinn
drepst er aldrei hægt að blóðga
hann eins vel og lifandi fisk,
en blóðgunin er einmitt höfuð-
skilyrði gæðavöru, hvort sem
í hlut á fiskur eða kjöt.
Hin ástæðan fyrir lélegum
gæðum netafisksins er ennþá
alvarlegri, því að hún stafar
eingöngu af vanþroska þeirra,
sem með fiskinn fara, áhuga-
leysi þeirra fyrir vöruvöndun,
og tómlæti um allar þær grund-
vallarreglur, sem gilda um með-
ferð hráefnis itl matvælaiðju.
Þetta á sér stað bæði á sjó og
í landi og má oftast ekki á
milli sjá, hvor sýnir verra
kæruleysi, sjómaðurinn eða
móttakandi íisksins í landi.
Meðferðin
í fiskibátunum:
Netaveiðar eru sums staðar
stundaðar á mótorbátum allt fi'á
20 upp í á 2. hundrað rúmlest-
ir að stærð. Eitt eiga allir þess- ^
ir bátar sameiginlegt, þeir eru
næstum allir með of mörg net
í sjó, svo mörg meira að segja,
að þeir hafa enga möguleika á
að vitja um öll sín net á hverj-
um degi. Þetta, ásamt næstum
sjúklegri óbeit sumra for-
manna á að vitja um net sín
daglega, veldur þvi, að mikill
hluti fisksins er a. m. k. tveggja
nátta, dauður, eða með litlu
lífsmarki í sjónum, og þar af
leiðandi mun verra að blóðga
hann og skapa þannig fyrsta
flokk hráefni. Eitt er enn al-
varlegra, að það kvað vera orð-
in viðtekin venja á fiskiskipa-
flotanum, að byrja ekki blóðg-
un fisksins fyrr en öll netatross-
an hefir verið dregin. Öllum
heilvita mönnum má ljóst vera,
að slíkar aðfarir eru ekki væn-
legar til árangurs í samkeppni
okkar á mörkuðum erlendis, og
gildir einu hvort fiskurinn fer
til frystingar, söltunar eða
herzlu.
í landi
hefir meðferð fisksins ekki
verið til neinnar fyrirmyndar
heldur. Jafnvel þegar sjómenn-
irnir hafa haldið séi' lifandi
blóðguðum fiski, þá hefir það
oft komið fyrir, að í aðgerðar-
plássum hefir öllu verið bland-
að saman, enda hafa sjómenn
fljótlega gefizt upp á þessari
viðleitni sinni, er þeir sjá verk
sín og erfiði renna út í sandinn
vegna leti og áhugaleysis
þeirra, sem vinna eiga úr aflan-
um í landi.
Annað er það, sem mjög er
ábótavant í landi, en það er
hveru oft það dregst óhóflega,
að gert sé að fiskinum, en hann
látinn liggja langtímunum
saman með innvolsi og óþveg-
inn í stórum byngjum. Stuðlar
þetta síður en svo að vöru-
vöndun.
Ráð til úrbóta:
Það munu allir sammála um,
að eitthvað verði að gera til
úrbóta, við svo búið megi ekki
standa, ef við íslendingar eig-
um að gera okkur einhverjar
vonir um að halda þeirri að-
stöðu okkar á mörkuðunum,
sem við höfum áunnið okkur.
Og flestir virðast á eitt sáttir
um, að það sé aðeins eitt,
sem geti fengið sjómenn til að
koma með betri fisk að landi.
nefnilega hærra verð fj'i'ir góða
vöru. Þetta er viðtekin venja í
öllum viðskiptum, en af ein-
hvei'jum dularfullum ástæðum
virðist sem þetta sjónarmið
hafi aldrei komið fram, þegar
„samið hefir verið um rekstrar-
grundvöll sjávarútvegsins“, [
þrátt fyrir það, að sá eini,
rekstrargrundvöllur, sem sjáv-
arútvegurinn getur byggzt á,
en einmitt vöruvöndun.AUt ann
að, uppbætur styrkir, gengi og
hvað eina, er ekkert nema
stundarfróun, ef þennan grund-
völl vantar. Það er því ekki
nema sjálfsagt, að næst þegar
fulltrúar hinna ýmsu aðila setj-
[ ast að samningaborðinu, geri
þeir einhverjar ráðstafanir til,
að þetta megi framkvæma.
Enginn efi er, að þetta er hægt,
það hefir aðeins vantað viljann
hingað til.
Það verður að ganga svo frá
málum, að sjómönnum sé bein-
línis hagur í því að koma með
fyrsta flokks hráefni að landi,
og það virðist lítill vafi vera á
því, að vinnslustöðvarnar geti
greitt hærra verð fyrir gott
hráefni, því bæði er það, að
vinnslukostnaður er miklu
minni og nýting hráefnisins
miklu beti'i þegar unnið er úr
fyrsta flokks hráefni.
Þess hefir lengi verið óskað
af þeim mönnum, er bera hag
íslenzkrar útflutningsfram-
leiðslu fyrir brjósti, að einhver
framsýnn útgerðarmaður og ^
annaðhvort til að stunda línu-
veiðar lengur . eða fara betur
með línufiskinn og greddi þeim
það hátt verð fyrir, að þeir
sæju sér hag í þeirri skipan
mála. Vonandi líður ekki á
löngu, þar til úr þessu verður.
Gæftir
voru slæmar við Faxaflóa og
í Vestmannaeyjum, og síðari
hluta síðustu viku var ekkert
róið. Á mánudag og þriðjudag
réru nokkrir bátar og fengu
sæmilegan afla, en flestir
bátarnir voru að búa sig
undir vertíðina, en til þess hefir
ekki verið mikill tími, því flest-
ir voru á síld allt fram til ára-
móta.
í ísafjarðardjúpi
hefir afli verið all sæmileg-
ur. Hafa bátarnir fengið mikið
af ýsu, þetta 3—4 tonn í róðri
sumir hverjir, en þorskurinn
hefir verið smár og erfiður til
vinnslu.
Tilraunir
með nýju veiðarfærin voru
stundaðar hér í Faxaflóa á síld-
veiðunum. Bera þar hæst til-
raunir b.v. Neptúnusar með
flotvörpu, sem gáfust mjög vel.
Er óskandi og nauðsynlegt, að
slíku sé haldið áfram, og að
ríkisvaldið veiti til þess nægi-
legt fé. Slíkar tilraunir eru
undirstaða efnahagslegs sjálf-
varð snemma höfðingi í hér*
aði, kosinn í skólaráð, sveitar*
ráð og kosinnn oddviti hvað
eftir annað. Hann var kjörinu
á fylkisþingið 1929 og endur-
kjörinn 1934. Árið 1938 tók
hann sér hvíld, en náði kosn*
ingu 1948 og hefur setið á þingi
síðan. Mun samherjum hans
þykja að honum mikill sjónar-
sviptir, þegar hann hverfur
af þingi.
Mr. Loptson kvæntist Miss
Kristínu Sveinbjörnsson 1908.
Þau eiga son Stanley — a Ca*
nadian Grain Commissioner —
og tvær dætur: Mrs. Rhuna
Emery í Kaliforinu og Mrs.
Bertha Christopherson í Van*
couver.
(Úr Heimskringlu og Lögbergi)
vinnslustöðvareigandi riði hér! stæðis okkar mega engin ná-
á vaðið, fengi sjómenn sína' nasasjónarmið koma þar til.
Vestur-íslenzkur þing-
maður heiðraður.
v
Asmundur Loptson hættir jsmgmennsku.
Ásmundur Loptson heiðraður
Ásmundur Loptson fylkis-
þingmaður frá Saltscoat-kjör-
dæmi í Saskatchewan hefur til-
kynnt nýlega, að hann verði
ekki í kjöri í næstu kosning-
um, sem talið að fara munu
fram næsta ár.
Á fjölmennum útnefningar-
fundi sem haldinn var í York-
ton 29. okt. til að útnefna eft-
irmann hans, voru Mr. og Mrs.
Loptson hyllt i samsæti, sem
var haldið þeim þá um kvöld-
ið og sæmd góðum gjöfum.
Mr. Loptson er sterkur Lib-
eral-flokksmaður og hefur ver-
ið þyrnir í holdi CCA-flokks-
ins, sem nú fer með völd í
fylkinu. Hann er frábær ræðu-
maður, harðsnúinn í kappræð-
um og hefur ekki hikað við að
fletta ofan af gerðum stjórn-
arinnar, hafi honum fundizt
þeim ábótavant og komið öllu j margt, vi
í uppnám á þingi, ef honum ingar, v
bauð svo við að horfa. Frá-
sagnir um hann og ræður hans
á þingi hafa oft birzt í dag-
blöðum frá hafi til hafs. í
fyrravetur, þegar Smallwood
forsætisráðherra átti í ati við
verkalýðsforingja út af verk-
föllum, er þeir eggjuðu til í
Nýfundnalandi, var Mr. Lopt-
son einn af þeim fáu þing-
mönnum um allt landið, sem
við urðum vör við að þyrði að I
taka svari hans. Mr. Loptson
er glæsimenni í sjón, og þótt:
hann sé harðskeyttur á þingi,
er hann prúðmenni hið mesta
í dagfari.
Ásmundur Loptson var
fæddur á íslandi 14. febrúar
1887 og fluttist með foreldr-
um sínum til Winnipeg 1891.
Þaðan fluttist fjölskyldan til
Churchbridge í Saskatchewan.
Mr. Lopts^hg|fc fengizt ’við
skap, bygg-j'
og fleir.a;1
Ungbarnaföt.
Nýlega er kominn út bækl-
ingurinn UNGBARNAFÖT,j og
er hann gefinn út af Neytenda*
samtökunum.
Ér hann 15. bæklingurinn.,
sem samtökin hafa gefið út.
Segir þar, að bæklingur þessi
sé sniðinn eftir dönskum ritl-
ingi, sem náð hafi mikilli út*
breiðslu þar í landi og gefinn
hafi verið út af Neytendasam-
tökum þar. Honum er ætlað að
vera til leiðbeiningar um vöru-
val — fyrst og fremst fyrir þær,
sem þurfa að kaupa barnafatn-
að í allra fyrsta sinni. Hin
verðandi móðir hefur sjaldar-
mikla reynslu af því, hvað á
barnaföt getur reynt í notkun
og þvotti. En ef til vill hefur
hin reyndari móðir einnig á*
huga á því að bera þekkingu
sína saman við álit annarra, og
þá er hugsanlegt, að hún geti
furdið eitthvað. sem henni .gætt
komið að gagni.
Bæklingur þessi er sendur
meðlimum samtakanna, sem
benda þeim á að gefa hann öðr-
um, þurfi þeir hann ekki sjálfir.
Tekið er á móti nýjum meðlim-
um í síma 1-97-22 milli kl. 1 og
4 og 5 og 7. Árgjald er kr. 25,
Prentum fyrir yður
smekklega
og fljótlega
PRENTVERK
KLA^PARST.Iö 40 — SIMí 1 94 43
Happdrætti Há§kola í§land§
Dregið veröur tí íöstutSatj i /. ilakki.
Meðcd vmninga er annar aðalvmningur ársins:
htííí millgón krónnr
1 dag og á morgun eru seinusfu forvöð að endurnýja.
HAPPDRÆTTÍ HÁSKÖLA ISLANDS.