Vísir - 25.01.1960, Blaðsíða 3
Mánudaginn 25. jaiiúar 1960
yíspR
3
Halla og Hal Linker hafa að
vanda gert víðreist undanfarið
ár, en svo sem flestir vita, er
það þeirra starf að ferðast um
Og taka kvikmyndir af ferðum
sínum, sem þau síðan selja eða
leigja til sýninga.
Kvikmyndir Linkers eru
mjög eftirsóttar og sýndar víða
um heim, og hafa íslenzkir bíó-
gestir oft séð þær. Halla, kona
Linkers, er íslenzk, og ferðast
txm með manni sínum og syni
þeirra Davíð. Vísir hefir orðið
sér úti um fréttir af síðustu
ferðum þeirra, sem voru mn S.-
Ameríku.
Þau flugu til Mexico City frá
Los Angeles og dvöldust þar í
marga daga við kvikmynda-
töku. Um 30 kílómetra frá borg-
inni tóku þau myndir af hinu
fræga musteri fjaðrasnáksins
Quetzalcoatl. Skýra þjóðsögur
Indíána frá því að hvítur maður
og rauðskeggjaður, er klæddist
skikkjum frábrugðnum þeim,
er þeir höfðu áður séð, hafi
komið til Mexico og Yucatan
hundruðum ára á undan Spán-
verjum. Hann kenndi Indíánum
ýmislegt, er þeir aldrei höfðu
heyrt um áður, eins og t. d. um
ræktun. Sögur segja að hann
hafi orðið illur, þegar Indíánar
tóku aftur upp þann slð að
fórna lifandi mönnum til gúð-
anna, og hann fór frá þeim í
illu, og sagði að einhverntima
kæmi að því að bræður hans
hinu megin við höfin, mundu
koma og sigra Indíána.
Var þetta
víkingur?
Þess vegna var það, að þegar
Spánverjar komu síðar, voru
Indíánar hræddir við þá, því
að þeir þóttust vissir um að þar
væru bræður hvíta mannsins.
Þegar þessi hvíti maður fór frá
Indíánum, segja sögur að hann
hafi siglt á fjaðrasnák til aust-
urs, en þaðan hafði hann upp-
runalega komið. Síðan hefur
hans verið getið í sögum um
,,fjaðrasnákinn“, og margir
sögufræðingar eru á þeirri
skoðun að hann hafi sennilega
verið Evrópumaður, og þá ef
til vill víkingur, sem sigldi til
Ameríku, og að vængjaði snák-
urinn, sem hann sigldi burt á,
hafi verið víkingaskip með
drekahaus á stafni.
Bolivíu tóku þau ýmsar myndir
af furðulegum rústum við Tia-
huanaco, og skrítnum djöfla-
dönsum Indíána.
Hér er Halla að búa um rúm. Þessi mynd cr tekin ofarlega við Amazonfljót, bar sem þau
voru tvær nætur um kyrrt. Flugnanet er yfir rúminu, bví að ella er ekki vært í bví.
Hauðskeggur
á fjaðrasnák
Halla og Hal Linker
í S.-Ameriku
Frá Mexico flugu þau Linker-
hjönin beint til Perú, en þar
tóku þau nokkrar myndaræmur
í Lima, höfuðborginni. Síðari
flugu þau yfir Andesfjöllin til
Iquitos við efri hluta Amazon-
fljótsins. Þau i fóru síðan með
litlum vélbát uppeftir árini og
dvöldust tvær nætur í strákofa,
meðan þau voru að taka kvik-
myndir af þjóðflokkunum þar.
Síðan var aftur farið til Lima,
og flogið yfir Andesfjöllin, til
!Cuzco. Flugvélarnar á þessari
leið eru Douglas-Dakota vélar,
!og hafa ekki þrýstiloftsklefa,
þannig að farþegar verða að
setja á sig súrefnisgrímur þegar
farið er yfir fjöllin í 20 þús.
feta hæð, svo þeir missi ekki
meðvitund.
Til týndu
borgarinnar.
Þau tóku myndir af dönsum
I Inkanna í Cuzco, en ferðuðust
síðan heiian dag til að komast
til Machu Picchu, hinnar týndu
borgar Inkanna, sem fannst fyr-
ir aðeins 40 árum. — Frá
Cuzco fóru þau með járnbraut-
arlest og ferðuðust í heilan dag,
þar til komið var að Titicaca
|vatni, sem er hæsta skipgenga
|stöðuvatnið í heimi, og um
nóttina sigldu þau yfir vatnið
til Bolivíu. Vatnið er í 12 þús.
feta hæð yfir sjávarfleti. í
Götuuppþot —
og til Chile.
La Paz er hæsta borg í
heimi, og stendur á 11 þús. til
13 þús. féta hæð yfir sjó. Borgin
stendur í brekku, þess vegna
fer það eftir því, hvar mað-
ur er staddur í borginni, hve
hátt maður er yfir sjó. Þarna, í
La Paz, vildi það til, að þau
hjónin lentu í götuuppþoti, sem
varð í sambandi við hersýn-
ingu. Steinn lenti í höfði Davíðs
litla, en sem betur fór varð ekki
alvarlegt sár af, en blæddi þó
mikið.
j Síðan flugu þau til Santiago
í Chile og tóku þar myndir.
Síðan fóru þau með jeppa til
Farallones, sem er frægur
skíðabær í Andesfjöll'unum. Frá
Chile flugu þau síðan enn einu
sinni yfir Andesfjöllin, en í
I þetta sinn í fullkominni flug'vél
' með loftþéttum farþegaklefa,
— til Buenos Aires, síðan á-
fram í Sunderland flugbáti yfir
Platofljót til Monteviedo í
Uruguay, og tóku þar myndir
af nautasmölun í Uruguay. Þá
var flogið til Rio de Janeiro, og
í þeirri ferð var Marlene
Dietrich einnig farþegi. í Rio
voru margar kvikmyndir tekn-
ar. Þau dvöldust þar á Copa-
cabana-ströndinni, en flugu síð-
an til Trinidad. Þar voru mynd-
ir teknar af ýmsum þjóðlegum
dönsum og ýmsu öðru athyglis-
verðu, svo sem tjörupollinum
mikla, þar sem tjáran vellur
upp úr jörðdnni, og er sett beint
^ á tunnur til útflutnins.
I Tóku 40 stuttar
: kvikmyndir.
I Síðan var flogið til Curacao í
Vestur-Indíum, en loks til
Panama. í Panama tóku þau
myndir af Panama skipaskurð-
inum, og fengu til þess sér-
stakt leyfi yfirvalda. Þá var
snúið aftur til Los Angeles með
flugvél, sem kom við í öllúm
helztu ríkjum Mið-Ameríku á
leiðinni.
í þessari ferð tóku þau að
minnsta kosti 40 stuttar kvik-
Framh. á bls. 10.
Þessi bolivíska Indíánakona, sem Halla Linker
mætti á förnum végi, notaði tímann vel, því að
hún spann af kappi á göngunni. Myndin er tekin
í 12,000 feta hæð í Andesfjöllum.
Þarna eru Halla og Davíð, sem er bara orðinn
býsna hár í loftinu, að skoða musteri í Mexíkó. Það
er helgað Quetzalcoatl, fjaðrasnáknum, sem sagt er
frá í meðfylgjandi grein.
Þessir broshýru karlar eru „gauchos“, kúrekar, í
Uruguay. Og það er cðlilegt, að beir brosi, því að
þeir eru yíst ckki vanir að sjá bjartliærðar meyjar
frá „ísa köldu landi“.