Vísir - 25.01.1960, Side 6
6
f SIR
Mánudaginn 25. janúar 1960
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Visir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
y Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði,
kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Þeir eru bara á móti.
Alþingi hefir nú verið stefnt
saman, eins og gert var ráð
fyrir, og hefjast fundir þess
nú í vikunni. En þótt þingið
komi saman, er ekki þar
með sagt, að það muni þeg-
ar í stað geta snúið sér að
vandamálum efnahagslífs-
ins. Sérfræðingar ríkis-
stjórnarinnar hafa verið að
athuga og kynna sér málin
að undanförnu, og þótt ýms-
ar sögur gangi manna á
milli um fyrirætlanir henn-
ar, ber mönnum að taka öll-
um slíkum sögum með var-
úð. Tillögur ríkisstjórnar-
innar verða lagðar fram eins
fljótt og þess verður kostur,
og þá mun það sjást, svart
á hvítu, hvað gera þarf til
bóta.
Einn er sá hópur manna, sem
þarf engar upplýsingar um
tillögur og fyrirætlanir rík-
isstjórnarinnar. Sá hópur
telur einmitt sinnm hag bezt
borgið með þvi^að almenn-
ingur viti sem minnst um
það, sem koma skal, svo að
hægt sé að hræða hann með
allskonar furðusögum og
rugla hann svo í ríminu, að
hann átti sig alls ekki á mál-
Að vestan.
Míkíl veðurblíða, eg fró eru
heiðar ekki ruddar.
Unnið að húsbyggiiiguim \
janúar.
inu, þegar svo verður kom-
ið, að það verður lagt fyrir |
Alþingi. Þetta eru kommún- ^
istar, og það er óhætt að
hnýta Framsóknarmönnum
aftan í, því að þeir keppa nú
ákaft við kommúnista í
.ábyrgðarleysinu og láta
hvergi hlut sinn fyrr en í
fulla hnefana.
Starfsemi og barátta stjórnar-
andstöðunnar — ef baráttu
skyldi kalla — er fólgin í;
því að vera fyrirfram á móti
öllu, sem stjórnin kann að
gera. Stjórnarandstæðingar'
vita ekkert um það, sem fyr-
irhugað er, en samt tilkynna
þeir almenningi: Við erumj
á móti því, og það heróp
hrópuðu þeir einmitt ákaft í
Dagsbrúnarkosningunum, |
sem fram fóru nú um helg-
■ ina. Það kom sér einmitt vel
fyrir þá, að kosningarnar í
því félagi skyldu fara fram,
áður en það er gert heyin
kunnugt, sem stjórnin ætlar
að gera. Það er ekki víst, að
að áróðri kommúnista hefði
verið trúað af eins mörgum
og raun bar vitni, ef tillög-
urnar hefðu verið komnar
fram.
Þa5, sem ftjódin þarfnast.
Engum blandast hugur um, að
fslendingar eru komnir út í
mikla ófæru í efnahagsmál-
unum, Foringjar kommún-
ista vita þetta ekki síður en
;aðrir, enda þótt þeir vilji
ekki við það kannast, því að
um leið mundu þeir viður-
kenna, að stjórn þeirra hafi
mistekizt, þegar þeir ætluðu
að bjarga öllu við í vinstri
vímunni.
Það, sem íslenzka þjóðin þarfn-
ast nú, er fyrst og fremst, að
allar stéttir standi saman og
starfi saman. Það er ekkert
vafamál, að samstillt, sam-
hend þjóð getur sigrast á
flestum erfiðleikum, ekki
sízt þegar þeir eru heimatil-
búnir að langmestu leyti.
Þess vegna eiga íslendingar
að standa sérstaldega vel að
vígi í þessari glímu.
En það fer eftir þjóðhollustu
stjórnarandstöðunnar, hvort
baráttan verður eins auðveld
og hún getur verið. Stjórn-
arandstæðingar þykjast ætla
að móta afstöðu sina eftir
málefnum, og ætti ekki að
þurfa að örvænta, ef þeir
standa við það heit. Fram að
þessu hefir andstaða þeirra
hinsvegar verið á þann veg,
að augljóst er, að þeir vilja
fyrst og fremst gera af sér
bölvun og koma stjórninni
í vanda.
Hin langa og óvenjulega
milda veðurblíða er helzta um-
ræðuefni manna.
Manstu nokkra slíka áður?
eru gömlu mennirnir spurðir.
Svörin eru sitt á hvað. Sumir
muna, nefna jafnvel ártöl. Aðr-
ir muna ekki. Jú! Þetta hefir
gerzt áður og þá sem nú, að í
nágrannalöndum okkar er frost
og mikil snjókoma líkt og nú
gerist úti í Svíþjóð, jafnvel í
Suður-Frakklandi. Samtímis
er norður við heimskautsbaug
eindæma veðurblíða. dag eftir
dag. Væri sól komin hærra á
loft myndu allir telja þetta vor-
eða sumarveður.
Eins og alltaf þegar veðrið er
gott er fólk óttaslegið um, að
þá og þegar hljóti að breytast.
Koma hríðarveður og mikil
frost. Þessi ótti byggist á til-
finningu en ekki á rökum. Vel
má við því búast, að við eigum
eftir að fá ósviknar vetrarskorp-
ur, en sennilega standa þær
stutt.
Það er gamalla manna mái,
að jólafastan og langafasta
dragi svip af hvor annari. Alla
jólaföstu mátti heita ósvikin
veðurblíða. Einstöku sinnum
komu þó dagar með öðrum
svip. Svipað veðurlag mun
verða á langaföstu og vár á jóla-
föstunni. Þá er sjálft vorið eftir.
Skiptir miklu máli, að þá viðri
vel.
Áður
í þessum pistlum hefi eg minnzt
á nauðsyn þess, að vegirnir um
Breiðadalsheiði og Botnsheiði
séu bílfærir að vetrinum, svo
lengi sem unnt er. Þetta eru
stuttir fjallvegir, svo kostnað-
ur við að halda þeim opnum
yrði ekki mjög mikill, sízt í
snjóléttum vetrum eins og nú
er.
Með því að halda heiðum
þessum bílfærum hefði það, sem
af er þessum vetri, verið örugg-
ar samgöngur við ísafjörð, og
einnig oftast bílfært frá íafirði
alla leið til Reykjavíkur, því
bæði Rafnseyrarheiði og
Gemlufallsheiði hafa verið
snjóruddar þegar þörf hefir
gerzt, sem vart hefir verið oft-
ar en einu sinni eða tvisvar.
Vestíjarðavegurinn
nýi hefir verið opinn og bil-
fær án snjóruðnings í nær all-
an vetur sem liðið er, enda ó-
venju snjólétt.
Það er bæði hart og óvið-
kunnanlegt fyrir byggðarlögin
norðan Breiðadalsheiðar, þar
sem ibúafjöldi héráðsins er
mestur, að vera útilokaður frá
bílvegasambandi, sem næstu
nágrannar njóta daglega.
Sem dæmi
um ágæti tíðarfarsins nú í jan-
úar er þess geið, að unnið hef-
ir verið undanfarnar 2 vikur
við að ljúka steypu á hæð, sem
íshúsfélag ísafjarðar hefir í
byggingu, og verkið gengið á-
gætlega.
Gæftir.
Það sem af er janúarmánuði
hafa þær verið með eindæmum.
Aðeins tveir dag'ar, sem frátök
hafa verið; meira sökum
straums en veðurs. Hafa Vest-
firðingar oftast mátt venjast
þvi, að nokkur veðrahamur
væri í janúarmánuði.
Aflabrögðin
frá nýári eru almennt ágæt.
Eiga miklar gæftir þar stóran
hlut að. Aflahæstu bátarnir eru
komnir hátt í hundrað lestir frá
áramótum.
Viðræður fulltrúa sjómanna-
samtakanna og sjómanna um
jólaleytið báru góðan árangur.
Mun nú samið um flest nema
fiskverðið. Bíða aðilar þar á-
tekta.
Hannibal Valdimarsson. hefir
sent Vestfirðingum nýársboð-
skap, sem birtist í blaðinu Vest-
I firðingur. Er það löng hugvekja
og kemur víða við. Hannibal
ver það í alllöngu máli, að nú
sé ekki þörf neinna efnahags-
aðgerða og talar um kauprán
og árásir núverandi ríkisstjórn-
ar á alþýðu. Hannibal er sýni-
lega í all-miklum stríðshug, er
' hann sendir Vestfirðingum ný-
: ár-kveðjuna, en lítill jarðvegur
mun vera fyrir ófriðaraðgerð-
um hjá Vestfirðingum nema ör-
fáum. Vonandi fá þeir ekki að
ráða. Rækileg rannsókn ágrein-
ingsatriða er sjálfsögð og nauð-
synleg, en allt slíkt virðist
nauðsynlegt að gera með eðli-
legri stillingu, og án þess að
stríðsæsingar og ófriðaraðgerðir
komi þar nærri.
Arn.
Pálsmessa er í dag.
Það var trú manna að veðrátta
ársins fari eftir veðrinu á Pálsmessu.
Abnenmngitr ræður.
En það er eitt afl, sem getur
skelft stjórnarandstöðuna og
haldið henni í skefjum, svo
að hún dragi úr skemmdar-
starfi sínu. Það er sterkt al-
menningsálit, sem minnir
stjórnarflokkana á, að þótt
þeir telji sig hafa einhverj-
ar skyldur við foringja sína
og framgirni þeirra, hafa
þeir þó enn ríkari skyldur
við almenning í landinu.
Almenningur þarf að kynna
sér tillögur ríkisstjórnaidnn-
ar vandlega, þegar þar að
kemur. Hver einstakur á að
vega þær og meta, án þess að
láta áróður hafa áhrif á
skoðanir sínar, og ef hann
fellst á, að leið ríkisstjórnar-
innar sé fær og sjálfsagt að
fara hana, eiga hinir ó-
breyttu borgarar að slá
skjaldborg. um stjórnina og
láta alla áróðurspostula. vita,
að þeim sé fyrir beztu að
hafa sig hæga.
í dag, 25. janúar er svokölluð
Pálsmessa, sem haldin er í
minningu þess að Páll postuli
snerist frá ofsóknum gegn
kristnu fólki, tók sjálfur kristna
trú og varð einn ötulasti og á-
kafasti talsmaður kristinnar.
Páll postuli fæddist í litlu
þorpi í Citicar í Litlu-Asíu og
ólst upp í flokki Farísea. Páll
gekk hart fram í ofsóknum
gegn kristnum mönnum, en í
miðjum ofsóknum sínum sner-
ist hann til trúar á Krist.Þá var
Páll á leið til Damaskus.
Af Páli postula eru ritáðar
miklar sögur á íslenzku, bæði
í Postulasögum og viðar,
og eru margar þeirra forn-
ar og merkilegar. Árið 1874
kom út vönduð og ítarleg út-
gáfa af Postulasögum á ís-
lenzku, en voru gefnar út í Nor-
egi af próf. Unger, nafnkunn-
um fræðimanni.
Meðal Norðmanna ríkir sú
trú að Pálsmessa dragi ekki
nafn af Páli postula heldur öðr-
um Páli, sem var bardagamað-
ur, mikil hetja og bogskytta
svo af bar. Þessvegna hafa Norð
menn rist boga á rúmstafi sina,
sem tengdir eru Pálsmessu og
kallað var „Pál skytta.“
Eftir sögunum að dæma var
Páll postuli hálfshöggvinn með
sverði og þessvegna hefur Thor
valdsen einkennt mynd hans
með sverði. Píslarvætti Páls er
talið hafa orðið 66 árum eftir
Krists burð.
Gamlar veðurspár voru í ís-
lenzku þjóðlífi miðaðar við
Pálsmessu. Hér fer á eftir ein
slík veðursná — í Ijóðum:
Heiðríkt veður og himininn
klár
á helga Paulus messu,
mun það boða mjög gott ár;
marka og það af þessu.
En ef þokan Óðins kom
á þeim degi bjargi
fénaður dauða og fellisvor
forsjáll bóndinn syrgir.
Ritstjórn tímaritsins
Andvara.
í rúman aldarfjórðung, eða
síðan árið 1935, hefi eg, vegna
stjórnar Þjóðvinafélagsins, haft
með höndum ritstjórn Andvara
og Almanaks Hins íslenzka þjóð-
vinafélags. Nokkru eftir að
bókaútgáfur Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins voru samein-
aðar, vakti eg máls á því, að
rétt væri og reyndar nauðsyn-
legt að breyta Andvara, gera
; hann að reglulegu tímariti, er
, út væri gefið a. m. k. í 3 heftum
. á ári. Sú tillaga fékk góðar
undirtektir, en framkvæmdir
drógust úr hömlu. Úr því eg
var kjörinn forseti Þjóðvinafé-
lagsins 1958, hreyfði eg þessu
máli á nýjan leik. Siðastliðinn
vetur var svo ákveðið að gera
breytingu á Andvara, stækka
hann og' gera hann að sterkara
þætti í félagsútgáfu Menning-
arsjóðs og Þjóðvinafélagsins en
áður. Talið var eðlilegt, að
i Menningarsjóður hefði hlut-
deild í ritstjórn Andvara, úr
því þessi breyting var ráðin. Eg
hafði í fyrstu hugsað mér
þriggja manna ritstjóra, tvo frá
! Þjóðvinafélaginu og einn frá
Menningarsjóði, en það vurð úr,
að ritstjórarnir yrðu tveir að-
i eins. Tók framkvæmdastjóri
bókaútgáfu Menningarsjóðs, en
| af hálfu Þjóðvinafélagsins ann-
aðist eg hana áfram. _Nú hefir
sú breyting orðið á ritstjórn
Andvara, að Helgi Sæmunds-
son, formaður Menntamálaráðs,
hefir tekið sæti Gils Guð-
mundssonar. Tilkynning um
þetta, sem nýlega birtist í blöð-
| um og útvarpi, hefir valdið mis-
skilningi nokkrum, og því er
þessi orðsending birt. Af hálfu
Þjóðvinafélagsins mun eg ann-
ast ritstjórn Andvara eins og
hingað til, þar til stjórn Þjóð-
vinafélagsins gerir hér aðra
skipan á.
Þorkell. Jóhannesson.