Vísir - 25.01.1960, Síða 9
Mánudaginn 25. janúar 1960
VlSIR
i
Aðalstræti 6
nmar
vk
$§p|SjÍP
Flótti -
F' .11 llftL.
Einhver mest áberandi af
slíkum gagnráðstöfunum
stjórnarvaldanna var, þegar
Austur-Þýzkaland var skilið frá
Vestur-Þýzkalandi mcð hinu j
svonefnda járntjaldi, sem reistj
var fyrir einum áratug. Það
er gaddavírsgirðing — sumpart
rafmögnuð — plægð landræma.
ca 90 m. á breidd, vélbyssur og
varðturnar og um 5 km. breitt
,,bannsvæði“. Lögregluvörður-
inn við landamærin hefir verið
eitthvað 40.000 manns, þar til
í júlí í sumar, að hver varðmað-
ur fékk sér til aðstoðar meðlim
úr ,,bardagasveit“ ríkisverk-
smiðja og iðnvera í landinu.
Fleiri flýja
um Berlín.
Afleiðingin af þessum aðgerð-!
xim yfirvaldanna er sú, að
straumur flóttamanna gegnum
Berlín verður sífellt meiri hlut-
fallslega. Yfir árið 1957 fóru
40 af hundraði flóttamanna
gegnum Berlín. Fyrri hluta árs
1958, þegar hömlur voru fyrst
settar á ferðir manna til Vestur-
Þýzkalands, var hlutfallstalan
orðin 60 af hundraði og um
miðbik ársins 1958 var hún orð-;
in 80 af hundraði. Þannig er
Berlín raunverlega orðin síð-
asta smugan í járntjaldinu, semj
unnt er að komast í gegnum.
Austur-þýzk yfirvöld geta
ekki hindrað ferðir manna frá
Austur-Þýzkalandi til Austur-1
Beriínar, vegna þess að hún er j
talin höfuðborg hins austur- j
þýzka alþýðulýðveldis. Þeim
hefir ekki — a. m. k. enn sem
komið er — tekizt að einangra
austurhlua borgarinnar frá
vesturhlutanum í meira en fá-
eina daga 1 senn, og þá hefir
það verið með ólöglegum að-
gerðum, því aö í lögum fjór-
veldanna frá 1945 er kveðið á
um, að ferðir manna til og frá
innan takmarka borgarinnar
skuli vera frjálsar. Þrátt fyrir
það hafa austur-þýzk yfirvöld
neytt allra bragða til að ganga
á bak þessara laga og setja upp
einskonar landamæravörð á
mörkum austur- og vesturhlut-
ans og taka þannig fyrir flótta-
mannastrauminn til vestur-
landa yfir Berlín.
En á meðan þessar aðgerðir
bera ekki árangur, heldur fólk-
ið áfram að flýja yfirráð
kommúnismans gegnum þessa
einu smugu í járntjaldið, Vest-
ur-Berlín. Það má því í raun og I
veru segja, að sameining j
Þýzkalands, a. m. k. hvað snert-
ir þýzku þjóðina, eigi sér nú
stað í Vestur-Þýzkalandi.
nng-/U/ me©
brotna frsmsúBu.
Boeing 707 þota lenti hcilu
og höldnu nýlega í New York,
eftir að flugstjórinn hafði til-
kynht, að framrúða í flugstjóra-
arklefa væri sprungin.
í þotunni voru 120 farþegar.
Það hefir sem kunnugt er all-
oft komið fyrir, að lendingarút-
búnaður (hjólaútbúnaður)
flugvéla af þessari gerð, hefir
reynzt í ólagi, og mikið verið
unnið að endurbótum, svo að
slíkt endurtæki sig ekki.