Vísir - 15.02.1960, Síða 1
12
síður
Ffl. árg.
Hér sjást íslendingarnir í Aspen í Colorado í sl. viku.
Frá vinstri: Hermann. Stefánsson fararstjóri, Eysteinn Þórðar-
son, Jóhann Vilbergsson og Leifnr Gíslason.
*
Banaslys á Akureyri.
Maður hrapaði í stiga, var örendur, er
komið var meÖ hann í sjúkrahúsið.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Aðfaranótt s.l. sunnudags
varð banaslys á Akureyri, er
maður hrapaði í stiga og mun
sennilega hafa látizt samstund-
is.
Slysið skeði á þori’ablóti, sem
starfsmenn Akureyrarbæjar og
Landsbankaútibúsins á Akur-
eyru héldu sameiginlega í fé-
lagsheimili karlakórsins Geys-
is að Lóni á Akureyri.
Þess má geta að samkoman
fór fram á efri hæð hússins, en
þangað upp er brattur og óað-
gengilegur stigi. Klukkan þrjú
um nóttina þegar gestir voru
að búast til brottferðar, steypt-
ist einn þeirra fram yfir sig of-
arlega í stiganum og hrapaði
niður. Maður þessi, Stefán Að-
alsteinsson múrarameistari,
Munkaþverárstræti 20, var þeg-
ar í stað fluttur í sjúkrabifreið
í spítalann, en hann var örend-
ur þegar þangað kom.
Stefán heitinn var 52 ára
gamall, kvæntur og áttu þau
hjónin fjögur börn. Var kona
hans með honum í hófinu þeg-
ar slysið skeði og var rétt kom-
in niður stigan þegar Stefán
hrapaði. Stefán var Svardæling
ur að ætt og uppruna, en var
búinn að vera heimilisfastur á
Akureyri þrjá síðustu áratug-
ina eða vel það. — Frh. á 12. s.
Tvísýnar horfur á Kýpur.
StærÖ Rands undir Riersföðvar
áfrám ágreiningsefni.
Mánudaginn 15. febrúar 1960
Dágóður afli
Hrollaugseyjar.
Afli var yfirleitt tregur fyrir
helgina, nema nokkrir Vest-
mannaeyjabátar, sem sóttu
langt austur með landi, austur
að Hrollaugseyjum, þeir öfluðu
vel.
Akranesbátar öfluðu illa á
laugardaginn, fengu aðeins 75
lestir á 14 báta, mestan afla
fékk Sigrún 8.8 lestir, en þeir,
sem veiddu minnst fengu ekki
nema 3 lestir. Hefur aflatregða
verið hjá Akranesbátum alla
síðustu viku. Flestir Akranes-
bátar eru á sjó í dag, en þó ekki
allir.
' Keflavíkurbátar munu líka
hafa fengið mjög trega veiði á
laugardaginn, en Grindavíkur-
bátar eitthvað skárra.
37. íbl.
Eftir seinasta fund Hugh
Foot landstjóra Breta á Kýpur
og leiðtoganna tveggja Maka-
riosar og Kutchuks eru horfur
enn tvísýnar, þótt nokkuð þok-
aði í rétta átt fyrir lielgi.
Makarios sagði eftir fundinn
í gær: ..... yj y -
„Ef Bretar þráast við að
krefjast 300 ferm. landsvæðis
undir herstöðvar er engin von
um samkomulag."
Sagt er, að 200 ferkm. sé há-
mark þess, sem Makarios vilji
láta þá fá.
Stærð herstöðvanna er aðal
áreiningsefnið nú sem fyrrum.
Frézt hefur, að lýðveldi
kunni að verða lýst yfir á Kýp-
ur fyrir marzlok, hvort sem
Bretum líkar betur eða verr.
Forsetinn að
Hrafnistu.
Forseti íslands, lir. Ásgeir
Ásgeirsson, og forsetafrú Dóra
Þórhallsdóttir konxu í opinhera
heimsókn í Hrafnistu, Dvalar-
heimili aldraða sjómaima,
sunnudaginn 7. febrúar.
Forstjórahjónin, frú Rann-
veig Vigfúsdóttir og Sigurjón
Einarsson, tóku á móti forseta-
hjónunum. Forseti ávarpaði
heimilisfólkið og stjórn þess, en
forttiaður Sjómannadagsráðs,
Henr.rý Hálfdánarson, þakkaði
og gat stuttlega framtíðarmála
félagsskaparins.
Heimsókn þessi fór í alla
staði prýðilega fram og var
gamla fólkinu bersýnilega til
mikillar ánægju.
I Hrafnistu eru nú samtals
124 vistmenn, þar af 44 í sjúkra
deild.
Menn verða að Iæra list nautabanans eins og annað, og námið
er bæði erfitt og hættulegt. Hér sést til dæmis lærlingur í bæix-
um Valdemorillo á Spáni í hættulegri aðstöðu. Lærlingurinn er
kallaður Bombita (litla sprengjan), og honum tókst að sigra
bola um síðir, þótt hann meiddist nokkuð í byltunni.
Ægir fann talsveröa
síld SA af landinu.
Hefur aöra 12 daga leit í kvöld. —
Jakob Jakobsson stjórnar leitinni.
Varðskipið Ægir er nýkom-
inn úr síldarleitarferð fyrir
sunnan og suðaustan land og
fann talsvert magn á síðarnefnd
um slóðum.
Ægir hefur hér skamma við-
dvöl, fer aftur í kvöld og
heldur áfram að kanna, hvað
verði af síldinni, sem hverfur
frá SV-landi í janúar, að því
Rafmagnsskömmtun á Akureyri.
Leiðlndaveður nyrðra með 8 stiga frosti.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Akureyrarbær hefur átt í erf-
iðleikxun nxeð rafmagn enn að
nýju vegna klakastíflu í Laxá
og x’ar skömmtun tekin upp í
bænxun á 10. tínianum í gær-
kvöldi.
Á laugardagskvöldið gekk
upp með leiðindaveður nyrðra,
kólnaði verulega og gerði norð-
anfjúk, sem síðan ágerðist. í
gær var hvassviðri á Akureyri
með éljagangi og í morgun var
þar 8 stiga frost og leiðindaveð-
ur, nokkur snjókoma, en ekki
mikil.
Strax á laugardagskvöldið
tók að skafa í Laxá og von
bráðar safnaðist í hana
krap, sem síðan óx smám sam-
an í allan gærdag, og í gæi’-
kvöldi var krapið orðið svo mik-
ið að ekki var nægjanlegt vatn
fyrir allt kerfið. Var þá tekin
upp skömmtun á rafmagninu
og Akureyri hefur bænum ver-
ið skipt í tvö kverfi. Fær hvert
þeirra raforku 4 klst. í senn.
í morgun var allt í fullkom-
inni óvissu með rafmagnið og
er viðbúið að hert verði á
skömmtuninni frá því sem nú
er.
feidverjar laeffja
samkeppiii
Indverjar byrjuðu í fyrsta
skipti útflutning reiðhjóla á
síðasta ári.
Vonast þeir til að geta unnið
mikla markaði í Asíulöndum,
sem Evrópuþjóðir hafa m. a.
isetið að, og að þetta geti orðið
imjög ábatasamt. (UPI.)
er leitarstjórinn, Jakob Jakogs-
son fiskifræðingur sagði við
Vísi í morgun.
Ægir fór af stað í ferðina 3.
þ. m., og hafði Jakob fiskifræð-
ingur tvo aðstoðarmenn úr landi
og auk skipshafnar, en skip-
herra á Ægi er nú Jón Jóns-
son. Fyrst var leitað fyrir suð
vestan land, en þar urðu þeir
ekki varir. Þá var haldið aust-
ur með landi og leitað suðaust-
ur af landinu, þar sem fannst
tálsvert magn.
Það er vitað mál, að eitthvað
af síldinni, sem hverfur héðan
í janúar, heldur í áttina til Nor-
egs. En nú liggur fyrir, að
kanna straummótin út af Aust-
urlandi, hvort síldin nemur þar
staðar til að hrygna.
Mögulegt er, að síldin haldi
sig það djúpt, að enda þótt síld
in sé ekki tiltæk fyrir veniu-
lega síldveiðibáta, getur verið,
að hún haldi sig á djúpmiðum
og heppilegt sé fyrir togara að
stunda þar síldveiði eftir að
þeir hafa nú fengið flotvörpu
til islíkra veiða.
Eins og áður segir, leggur
! Ægir aftur af stað í kvöld, og
mun leit og könnun standa enn
! yfir í 12 daga. Jakob Jokobs-
son stjórnar leitinni áfram.
-^r Kínverjar skutu af strand-
virkjabyssum á Matsu um
sl. helgi.