Vísir - 15.02.1960, Blaðsíða 3
Mánudaginn 15. febrúar 1960
VÍSIB
íþróttir úr öllum áttum
Skarphéðinn Guðmundsson, eini stökkmaðurinn í hópnum.
Nk. fimmtudag hefjast Vetrarleikarnir.
Við sendum fjóra keppendur til keppninar a5 sinni.
Þei*1 keppa í alpagreinunum og stökki. “ Allt reyndir skí5amenn
sem keppt hafa erlendis ™ sumir þeirra oft.
Xú er tæp vika þar til vetrar-
leikimir hefjast, og eins og
kunnugt er dveljast nú 5 ís-
ienzkir skíðamenn vestan hafs,
þar af munu fjórir taka þátt í
sjálfum Olympíuleikunum. Þeir
sem f.vlgzt hafa með skíoaíbrótt
inni hér ó landi undanfarið
munu vafalaust kannast við
nöfn þeirra flestra. Hinir fjórir
þátttakendur íslands í þessum
8. vetrarleikum, sem háðir eru,
eru komnir hvcr úr sinni átt-
inni, ef svo má segja, að vísu
aðeins úr þremur áttum þó, því
að tveir þeirra koma frá Siglu-
firði, sem reyndar er ekki að
furða, því að óvíða á landinu á
skíðaíþróttin jafnmiklum vin-
sældum að fagna og þar.
Er 7. vetrarleikarnir voru
háðir í Cortina á Ítalíu fyrir
fjórum vetrum, sendum við
þangað átta manna lið til
keppni, og í þeim hópi var
fyrsta og til þessa eina konan
sem tekið hefur þátt í vetrar-
leikunum, en hún var Jakobína |
ekki nema tvítugur. Hann mun
fæddur í Hnífsdal, en er nú bú-
settur á ísafirði. Kristinn hef-
ur dvalizt erlendis meira. eða
minna undanfarna 3 vetur, bæði
við keppni og æfingar. Hann
Jakobsdóttir frá ísafirði. Að-1
eins einn hinna átta, sem tóku
þátt í leikunum þá. eru nú með
al keppenda. en bað er Eysteinn
Þórðarson. Hinir þrír, sem nú
skulu heyja baráttuna við hin
erlendu stórveidi skíðaíþróttar-
innar eru, Kristinn Bened'kts-
son frá ísafirði. o<J Siglfirðing-
arnir Jóhann Vilbergsson og
Skarphéðinn Guðmundsson, en
hann kenDÍr í stölcki. Hinir þrir
'keDpa aliir í alpagreinum. A.uk
þeirra dvelst svo vestra ungur
skíðamaður héðan úr Reykja-
'vík, Leifur Gislason. Hann hef-
ur m. a. kennt á HolmenkolleD
1958, orðið unglingameistari
(Revkjavik) í svigi sama ár,
auk þess sem hann vann stór-
'svigkenpni sem haldin var í
•maimánuði s.l. vor. Hann mun
þó ekki taks þátt í Ol-ieikunum
'sjálfum, heldur kenpa við nokk
ur önnur tækifaéri.
Eins og áður er sagt, er hér
um að ræða ágæta menn í sinni
íþrótt. Yngstur af þátttakénd-
unum fjórum er ísfirðingurinn
Kristinn • Benediktsson. Hann
er' faéddur 5. maí 1939 og því
Kristin Benediktsson, yngsti
þátttakandinn.
hefur gerzt æði víðreistur, kom-
ið m. a. þeirra erinda til Sví-
þjóðar, Noregs, Austurríkis og
Sviss. Hann var einn af þeim
sem valdir voru til þátttöku í
heimsmeistarakeppninni, sem
haldin var í Bad Gastein í Aust-
urríki 1938. Kristinn komst þó
ekki svo langt að keppa í það
skiptið, því að hann var.ð, fyrir
slysi meðan á æfingum stóð og
gat því ekki tekið þátt. Um
haustið 1958 var Kristinn aftur
,í Austurríki og stundaði þar æf-
• ingar og keppti 6 sinnum, bæði
j í Austurríki og Sviss, auk þess
sem hann fór þá einnig til ítal-
| íu til keppni. Hann tók einnig
þátt í Holmenkollenmótinu á
j s.l. vetri og varð þar 14. í svigi
! og bruni og 16. í stórsvigi. Þá
! tók hann einnig þátt í keppni í
! Are í Svíþjóð á s.l. vetri og varð
! þar 6. í stórsvigi.
Þá varð Kristinn. einnig 1.
hér heima á Skíðamótinu, sem
haldið var á Akureyri og hann
náði einnig 1. sæti á móti sem
haldið var í fyrra á ísafirði. 1
i bæði skiptin var um svig að
ræða.
í haust sem leið lagði Krist-
inn leið til Danmerkur, þar sem
hann vann eitthvað, en síðan
hélt hann til Austurríkis. Þar
tók hann þátt í nokkrum smá-
mótum fyrir jólin, og gekk vel.
Þess má geta, að Kristinn mun
að einhverju leyti hafa æft með
austurríska Olympíuliðinu.
Elztur keppendanna er Sigl-
firðingurinn og stökkmaðurinn
Skarphéðinn Guðmundsson.
Hann er fæddur 7. apríl 1930,
og er því nær þrítugur. Hann
er um þessar mundir okkar
bezti stökkmaður, og á því leik-
ur lítill vafi, að þegar honum
tekst vel, þá er hann stílfeg-
ursti stökkmaðurinn. Skarphéð-
inn hefur iðkað stökk frá unga
aldri, og þegar árið 1947 dvald-
ist hann við æfingar í Noregi.
Hann hefur m. a. þrisvar orðið
íslandsmeistari í stökki, og
einkum hefur hann náð sér á
einn fyrir 40 m stökk, annar
fyrir 60 m og sá þriðji fyrir 90
m stökk. Skarphéðinn hafði þá
notað tvo hina fyrrnefndu, og
stökk m. a. af sextíu m pallin-
um 175 fet, eða um 53 m. Stóð
þá til að honum byðist nokkur
tækifæri til að keppa, áður en
leikarnir hæfust.
Sá skíðamannanna, sem einna
þekktastur mun af þeim fjór-
ntenningunum, og eini Reyk-
víkingurinn 'í hópnuni, er Ey-
steinn Þórðarson. Hann er
þeirra næst-elztur, fæddur 3.
marz 1934. Að vísu mun Ey-
steinn fæddur og uppalinn á Ól-
afsfirði, en hann hefur búið hér
í Reykjavík mörg undanfarin
ár og þá keppt sem slíkur. Eins
og áður var minnzt á, var Ey-
steinn einnig rneðal þátttak-
enda á siðustu vetrarleikum.
þar var hann 56. af 95 keppend-
um í stórsvigi og 26. af 95 kepp-
endurn í svigi, Síðan hefur Ey-
steinn farið viða. Hann var val-
inn til þáttt.öku i heimsmeistará
keppninni 1958. — Þremur ár-
um áður, eða árið fyrir Olym-
píuleikana, keppti hann í fyrsta
skipti í Holmenkollenmótinu og
sama ár varð hann ísl. mejst-
ari í svigi og stórsvigi. Ol-árið
keppti hann einnig í Kiszbúhl
í Austurríki og á Holmenkollen-
mótinu, auk þess sem hann
varð þá ísl.meistari í svigi, stór
svigi og bruni. Árið 1957 tók
Eysteinn þátt í alþjóðiegu skíða
móti, sem haldið var i Garm-
isch Partenkirchen en brá sér
einnig til Ítalíu og keppti þar.
Það ár hélt hann einnig titli
sínum hér heima í svigi og
bruni. 1958 keppti hann í Weng-
en í Sviss auk þátttökunnar í
heimsmeistaramótinu. Það ár
fór hann aftur til keppni á ítal-
íu og var ísl.meistaratitla sina
frá árinu áður. í fyrravetur
keppti hann bæði á Homenkoll-
enmótinu og í móti sem haldið
var í Chamonix. Ekkert íslands
mót var haldið í fyrravetur, og
var þvi ekki um að ræða að
verja þá titla.
Eins og sjá má af ofanrituðu,
'er Eysteinn reyndasti skíðamað-
uroinn, a. m. k. ef miðað er við
þátttöku í hinum harðsnúnu
mótum erlendis. En það er ein-
rnitt sú reynsla sem vill koma
að notum þegar á hólminn er
komið við hóp hinna erlendu
keppenda. Að öllum öðrum
keppendum ólöstuðuni, má
segja að mestar vonir séu tengd
ar við Eystein, enda héfur hann
verið í framför öll undanfarin
ár. Hann er orðinn það reyndur
skiðamaður, að hann verður
vafalaust látinn njóta þeirra
forréttinda ásamt öðrum góð-
um skíðamönnum, að fá lágt
rásnúmer í svigi, en það getur
haft mikið að segja, að komast
í brautina áður en hún er öll
uppgrafin. Eysteinn fór til Aust
urríkis fyrir jólin og hefur
keppt bæði þar og í Sviss í vet-
ur. Hann hélt vestur til Aspen
í lok janúar.
t ' rr” ’
■lllSi' ^
Eysteinn Þórðarson, Reykvík-
ingurinn í hópnum. (Þó ættað-
ur frá Ólafsfirði).
strik nú seinni árin, orðið Norð-
urlandsmeistari þrjá síðustu
vetur. Skarphéðinn er Sam-
vinnuskólagenginn og gegnir
| forstjórastarfi á Siglufirði. —
| Skarphéðinn var einn þeirra
I þriggja skíðamanna, sem biðið
i var til Aspen í Colorado í
| Bandaríkjunum nú í upphaíi
j janúarmánaðar (hinir voru Jó-
hann Vilbergsson og Leifur
Gíslason). Hann skrifaði hing-
að laust fyrir mánaðamótin s.l.
og var þá í bezta yfirlæti í Asp-
en. Þar voru þrír stökkpaílav,
Jóhann Vilbergsson. Hann er
frá Siglufirði eins og Skarp-
héðinn.
Jóhann Vilbergsson, hinn Sigl
firðingurinn, er árinu yngri en
Eysteinn, fæddur 20. marz 1935.
Hann var valinn til þátttöku í
heimsmeistarakeppninni í Bad
Gastein 1958, en hann hefur
samt stundað utaní'erðir vegna
íþróttarinnar, bæði til keppni
og æfinga, síðan 1957, en það
ár tók hann m.a. þátt í Holmen-
kollenmótinu, og náði góðum
árangri hér heima á landsmót-
inu. Árið 1958 keppti hann á
tveimur stöðum erlendis, auk
Bad Gastein. Annar þeirra var
á Italiu. Jóhann var einn af
þeim sem æfðu með Egon Zimm
ermann, skíðakappanum aust-
urríska, á mcðan hann dvaldist
hér um 2 mánaðaskeið á s.l.
vetri. Auk þess bar Jóhann sig-
ur úr býtum í nokkrum mót-
um sem haldin voru hér á s.l.
ári. Jóhann var einn hinna
þriggja sem héldu 'til Aspen í
janúarbyrjun.
íslendingarnir tóku um s.l.
helgi þátt í móti, sem haldið
var í Aspen, og gekk þar mis-
jafnlega. Annars hefur verið
skýrt frá því í blaðinu hér áð-
ur (fimmtudag).
Þessi mynd er frá Aspen í Colorado, þar som ísl. skíðamennirnir
kcpptu um síðustu helgi. Brekkan heitir Thundcr Bowl, eða
„þrumuskál".